Við lokuðum verslun okkar fyrir rúmum mánuði síðan og söknum þess alveg svakalega að sjá ykkur alla daga. Okkur tókst að losna undan leigunni sem var svo erfitt í rekstri, og sömdum loksins um samningslok! 

Uppgjörið var okkur þungbært og því gætu orðið smávægilegar tafir á greiðslum í kjölfarið - takk fyrir alla þolinmæðina og stuðninginn

Við höfum ákveðið að halda versluninni okkar á netinu, amk í bili. Við opnum litla móttöku til þess að taka reglulega á móti vörum, þá fer flæðið á vörum aftur á fullt eins og áður!

Móttakan verður opin á morgun(Miðvikudaginn 8. okt) fyrir seljendur milli 16-18
https://maps.app.goo.gl/2BLGVmniWp8HfTLU9