Eitt af vinsælli lúxus merkjum hjá íslendingum þessa dagana er Gucci. Hjá Attikk kemur mikið af vörum frá þeim í hverri einustu viku og eru þær oft á tíðum jafn fljótar að fara í hendur nýrra eiganda. Verandi vinsælt merki er einnig algengt að eftirlíkingar séu í umferð, viðskiptavinir Attikk geta verið vissir að allar Gucci vörur sem seldar eru hjá Attikk séu ekta þar sem þær gangast allar undir ítarlega skoðun hjá sérfræðingum.
Æðisleg sólgleraugu frá Gucci með gylltri umgjörð og gulu gleri. Upprunalegt box fylgir með.
Falleg 100% ullarkápa frá Gucci í bláum lit með rauðum detail, sætum tölum og bleiku innvolsi.
Æðisleg axlartaska frá Gucci í GG Supreme canvasnum með Web línu (rauð og græn) lóðrétt niður á framhlið töskunnar. Brún áföst leður ól ásamt sama leðri á köntum. Axlar ólina er hægt að stilla örlítið en það eru þrjú göt svo hægt er að stilla hana örlítið. Megnið af málminum er gylltur en rennilás er brúnn. Eitt rennt rúmgott aðalhólf ásamt flötum renndum vasa að innanverðu. Innvols er ljóst úr mjúku efni.
Hentug Messenger hliðartaska frá Gucci í svörtu GG Supreme mynstri með svartar leður áherslur og silfur málm. Web (blá og rauð) stillanleg ól er á töskunni og eitt rúmgott aðalhólf, þar fyrir innan er lítill flatur vasi og rúmgóður renndur vasi. Framan á töskunni er einnig renndur vasi.
Töff bakpoki frá Gucci í svörtum lit með silfur málm og gylltu ''Gucci'' lógó að framan. Eitt rennt aðalhólf er á bakpokanum ogg tvö auka hólf, eitt í innvolsi og hitt að framan.
Ótrúlega falleg tote taska frá Gucci í brúnu endurtekna ''GG'' mynstrinu í velvet efni og með web (rauð & græn) línu og tígrisdýr að framan. Eitt opið aðlhólf sem lokast með smellu, Með töskunni fylgir veski með í sama mynstri og upprunalegur rykpoki.
Glæný og ónotuð GG Supreme Ophidia mittistaska frá Gucci með hvítu leðri og burstuðum gulllituðum málmi. Eitt stórt aðalhólf með segullokun. Uppranlegur rykpoki og kassi fylgja.
Vintage taska frá Gucci í Supreme mynstrinu með web (rauð og græn) línunni að framan og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf sem skiptist í þrjú hólt, í einu hólfinu er auka rennt hólf.
Skemmtileg og falleg bucket taska frá Gucci í svörtu leðri með gylltum málm og bambus haldfangi. Með töskunni fylgir gyllt, fjarlægjanleg keðjuól og opnast taskan með smellu.
Glæsileg sólgleraugu frá Gucci í grá tónuðum, flæðandi lit utan á umgjörð og í áttina að perlu hvítum flæðandi lit að innan. Gulltóna málmar. Upprunalegt hulstur og rykpoki fylgir með.
Stórglæsileg Crystal Stud Mask sólgleraugu frá Gucci úr Hollywood Forever Collection. Svört umgjörð með glærum steinum í endurteknu "Gucci" fyrir ofan og neðan glerin ásamt röð af steinum fyrir ofan og á hliðum framhluta umgjarðarinnar. Gylltir málmar, mjóar hliðar og "GG" interlocking lógó á endunum. Upprunalegur Hollywood Forever Collection (Gucci) hulstur fylgir með og ónotað gleraugnaklútur frá Gucci.
Flottir Ace strigaskór frá Gucci í endurtekna supreme mynstrinu með gylltum býflugum og web (rauð og græn) línunni á hliðunum.
Gucci Ophidia GG Supreme canvas, Web (blá og rauð) lína lárétt niður miðja töskuna. Eitt rennt aðalhólf sem opnast að ofan verðu, þar fyrir innan er eitt rennt auka hólf. Rennt hólf framan á töskunni.
Vintage Gucci GG Supreme hliðartaska með svartri leður umgjörð og Sherry Line (blá og rauð) niður miðjuna. Opnast með flap sem leggst yfir töskuna og lokast með smellu. Eitt opið aðalhólf og renndur vasi þar fyrir innan. ATH ástand.
Glæsilegt og vinsælt reversible belti frá Gucci með gylltu GG lógó að faman sem hægt er að snúa við. Einum megin er endurtekna ''GG'' mynstrið en hinum megin er bara brúnt. Upprunalegur rykpoki fylgir með. Kostar nýtt $570 sem er ca 69,597 isk á núverandi gengi.
Töff Bucket hattur frá Gucci í endurtekna ''GG'' Supreme mynstrinu.
Æðisleg Ophidia taska, með Web línu (rauð og græn) fyrir miðju, frá Gucci í GG Supreme canvasnum af stærðinni Small. Taskan opnast með smellu undir flipanum (e. flap), þar undir er eitt rúmgott aðalhólf, einn frekar rúmur flatur vasi þar fyrir framan. Í aðalhólfinu er einn flatur renndur vasi og opinn flatur vasi. Allur málmur er gylltur. Brúnt leður á slitflötum og er stillanlega ólin í sama leðri. Upprunalegur rykpoki og kassi fylgir með. Kostar ný um 275.000kr.
Sæt, lítil bucket taska frá Gucci í klassíska endurtekna ''GG'' mynstrinu með web (rauð og græn) línunni að neðan. Eitt aðalhólf sem lokast með togbandi og stillanleg axlaról. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með.
Fallegt úr frá Gucci í rose gold lit með hvítri sylgju og endurtekna ''GG'' mynstrinu. Swiss Made Quarts
Glæsileg Soho Tote taska frá Gucci í hvítum lit með gylltum málm og áhangandi kögri að framan. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með þremur auka hólfum, tveimur opnum og einu renndu, upprunalegur rykpoki fylgir með. Fullkomin hversdagstaska!
Skemmtileg top handle taska frá Gucci í svörtu leðri með rauðum köntum og gylltum málm. Eitt aðalhólf sem opnast með smellu, þar ofan í er eitt auka opið hólf í innvolsi. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki og fjarlægjanleg ól.
Brúnleitir Interlocking G Rubber Slides inniskór frá Gucci með stóru upphleyptu logo framan á. Skórnir eru með þykkum botni og meðfylgjandi eru tveir rykpokar og kassi.
Ótrúlega fallegir hælar frá Gucci í svörtum lit með glæsilegum tré hæl.
Vegleg Ipanema GM taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Einn opinn vasi að framanverðu. Aðalhólf er rennt og hefur að geyma tvo minni opna vasa að innanverðu.