Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!
Flott Abby Tote taska frá Gucci í svörtu endurteknu GG mynstri með silfur málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt opið og eitt rennt.
Skemmtileg og hentug Hobo taska frá Gucci í supreme canvas með brúnu leðri og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með fjórum auka hólfum, eitt rennt, tvö kortahólf og eitt opið að aftan. Fjarlægjanleg ól fylgir með og upprunlegur rykpoki.
Sívinsæla og glæsilega Speedy taskan frá Louis Vuitton í stærð 30. Taskan er í klassíska monogram canvas með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf og annar renndur lítill vasi að innan.
Sígilda og eftirsótta Neverfull MM taskan frá Louis Vuitton í brúna monogram mynstrinu. Eitt aðalhólf er á tösunni sem opnast með krækju, þar innan í er eitt auka hólf sem rúmar snjallsíma og aðra smáhluti. Taskan kostar ný á heimasíðu Louis Vuitton 1.500€ sem er ca. 234.000isk á núverandi gengi.
Glæsileg Louis VuiitonHampsted taska í damier ebene canvas með gylltum málm og rauðu innvolsi. Taskan er í stærð PM og hefur eitt opið aðalhólf með þremur auka hólfum, eitt rennt og tvö opin.
Sæt og hentug mittistaska frá Gucci í svörtu matelassé leðri með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka hólfi. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Flott Dionysus taska frá Gucci í Supreme mynstri með rauðu rúskinni í innvolsi. Klassísk, silfruð málmskeifa að framanverðu og gróf keðja í sama lit sem hægt er að hafa cross-body eða tvöfalda.
Töff taska frá Miu Miu í svörtu leðri með gylltum málm og fallegu hjartaskrauti á rennilásnum að framan. Eitt rennt aðalhólf með fjórum auka hólfum, eitt opið og eitt rennt í innvolsi, m.a. tveir renndir að utan.
Skemmtileg Neo mittistaska frá Gucci í Supreme mynstri með web ól og gylltum málm. Taskan lokast með segli og hefur eitt aðalhólf.
Falleg tote taska frá Gucci í supreme mynstri með hvítu leðri og gylltum málm. Eitt opið aðalhólf sem hægt er að loka með smellu, þar ofan í er eitt opið auka hólf.
Flott og vinsæl Marmont hliðartaska frá Gucci í svörtu matelasse leðri með gylltum málm og ísaumuðu ''GG'' lógó að aftan. Eitt rennt aðalhólf með einu auka hólfi. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Hrikalega falleg og eftirsótt LouLou taska frá Yves Saint Laurent. Taskan er í svörtu vatteruðu kálfaleðri með silfur málm. Eitt aðalhólf sem opnast með segli og þar innan í eru nokkur hólf, eitt rennt, eitt opið en aðalhólfið skiptist í tvennt.
Klikkað flott hliðartaska frá Alexaander McQueen í ljósu quilted lambaleðri með silfur málm. Að framan er graffað silfur ''McQueen'' lógó og málmskraut sem rúmar fjóra fingur. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf með einu auka kortahólfi. Upprunalegur rykpoki, kassi og poki sem fylgir með. Hriklega töff taska og fylgir einnig upprunalegu miði.
Flott og hentug Off The Grid tote taska frá Gucci. Taskan er úr svörtu nylon-efni með endurteknu „GG“ mynstri og glæsilegu gylltu „Gucci“ lógói að framan. Eitt stórt aðalhólf með tveimur auka renndum hólfum. Með töskunni fylgir löng axlaról, þannig að auðvelt er að bera hana bæði yfir öxl eða í hendi – eftir tilefni og stíl.
Louis Vuitton Amarante Vernis Brea burgandy taska með gylltum áherslum. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf sem inniheldur einn minni flatan vasa. Með töskunni fylgir fjarlægjan ól sem krækist í sérstaka hanka. Með töskunni fylgir rykpoki.
Falleg, lítil taska frá Chloe í rauðu leðri með gylltum málm, eitt rennt aðalhólf og þar innan í er eitt auka rennt hólf.
Vintage Fendi Tote Zucca taska með gylltum áherslum úr FF canvas. Taskan hefur eitt rúmgott aðalhólf sem lokast með rennilás. Að innan er einn minni flatur vasi sem hægt er að renna. Á töskunni eru handföng úr brúnu leðri sem eru áföst með fallegum gylltum FF áherslum. Á hliðunum eru smellur og er í boði að smella endunum að ofan á smellurnar og "minnka" útlitið á töskunni.
Æðisleg og sæt Chanel boy taska íi gráu lambaleðri með glansandi silfur málm. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl. Taskan var framleidd í kringum 2017 - 2018.
Hentug og falleg ''wallet on chain'' hliðartaska frá Chanel úr endingargóða og klassíska Caviar leðrinu í hvítu. Taskan opnast með smellu og hefur nokkur hólf, tvö rennd, tvö opin og sex kortahólf.
Ótrúlega falleg Boy taska frá Chanel í glæsilegum baby pink lit með silfur málm. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl.
Ótrúlega falleg taska frá Gucci í svörtu matelasse leðri með gylltum málm. Sterkur segull er á töskunni sem lokar og inní töskunni er pastel bleikt rúskin, tvö stór hólf og lítil hólf fyrir smáhluti á sitthvorri hliðinni, annað er rennt og hitt er opið.
Virkilega falleg Pochette Twin GM taska frá Louis Vuitton í klassískum brúnum monogram canvas. Eitt aðalhólf sem lokast með smellu, í því er opinn vasi sem rúmar flesta snjallsíma.
Hliðartaska frá Burberry í svörtu nylon efni með Burberry lógó. Eitt rennt aðalhólf með þremur kortahólfum og einu auka renndu hólfi að framan.
Ótrúlega falleg Baguette taska frá Fendi í brúnu leðri með silfur málm og handsaumuðum áherslum meðfram brúnum. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf með einu auka renndu hólfi ofan í. Upprunalegur rykpokii og tvær fjarlægjanlegar ólar fylgja með, ein lengri og hin styttri. Kostar ný €3,600, eða 490.500isk á núverandi gengi.