Vörur í sölu hjá Attikk sem að hafa nýlega lækkað í verði. Tryggðu þér þína lúxus merkjavöru á lækkuðu verði.
Hentug snyrtitaska frá Louis Vuitton í monogram canvas. Eitt rennt aðalhólf með einu auka hólfi.
Glæsileg Dauphine taska frá Louis Vuitton í svörti Epi leðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf sem skiptist í þrennt, tvö opin og eitt rennt hólf. Með töskunni fylgir bæði fjarlægjanleg keðjuól og leðuról, m.a. upprunalegur rykpoki.
Hrikalega falleg og sjaldgæf Chanel taska í svörtu lambaleðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf með þremur renndum auka hólfum, tvö í innvolsi og eitt að aftan. Framleidd í kringum 1981 - 1991.
Ótrúlega falleg baguette hliðartaska frá Fendi. Taskan er í eftirsótta FF Jacquard mynstrinu í Tobacco lit og með gylltum málm. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni sem opnast með smellu, þar ofan í er eitt rennt auka hólf. Með töskunni fylgja tvær ólar, ein löng og ein stutt, báðar í FF Jacquard mynstrinu. Einnig fylgir upprunalegur kassi og rykpoki með. Taskan er enn til sölu hjá Fendi og kostar þar 445.470 ISK
Fallegir og sjaldgæfir vintage gylltir eyrnalokkar úr burstuðum málmi frá Jean Paul Gaultier. Eyrnalokkarnir minna á íkonísku keilubrjóstahaldarana eftir hönnuðinn frá 9. áratugnum.
Flott Ophidia Mini taska í mittistösku útgáfu. Taskan er úr GG Supreme efni með klassísku Web litunum að framanverðu. Aðalhólf er rennt með einum minni vasa í innvolsi en á framhlið töskunnar er einn renndur vasi. Belti töskunnar er í stærð 85. Taskan kostaði ný um 1.150 usd (e. est. retail). Upprunalegur rykpoki fylgir.
Æðislegt G-class úr frá Gucci með svartri skífu, rómverskum tölum og silfur málm (stainless steel). Upprunalegur kassi fylgir með.
Æðisleg axlartaska frá Fendi í brúnu og svörtu zucca munstrinu með silfur málm, eitt rennt aðalhólf með einu auka renndu hólfi ofan í.
Ótrúlega skemmtileg sólgleraugu frá Christian Dior í svartri umgjörð með hvítu lógó á hliðunum og bláu lógó gleri. Upprunalegur kassi og hulstur fylgir með.
Töff Rockstud City stígvél frá Valentino Garavani í svörrtu suede leðri.
Vintage Burberry's rykfrakki í drapplituðum lit með köflóttu mynstri að innan. Tveir hnepptir vasar eru á hliðunum og að innan.
Flottur jakki frá Yves Saint Laurent í hvítu og svörtu köflóttu mynstri.
Hentug duffle taska frá Gucci í supreme mynstrinu með brúnu leðri og tauhöldum. Eitt rúmgott, rennt aðallhólf er á töskunni, þar ofan í eru nokkur auka hólf, eitt rennt, tvö opin og tvö pennahólf.
Æðisleg Chocolate Bar Bowling taska frá Chanel í glæsilegum bleikum lit og með silfur tónuðum málmum. Eitt rennt aðalhólf ásamt einu renndu hólfi þar fyrir innan. Beggja vegna við rennda aðalhólfið eru tvö hálf-opin hólf sem lokast með segli. Upprunakort, rykpoki og kassi fylgir með.
Skemmtilegir grænir inniskór frá Off-White. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með.
Lítil og hentug mittistaska frá Burberry í svörtum lit með hvítu lógó. Eitt rennt aðalhólf og eitt auka hólf að framan, upprunalegur rykpoki fylgir.
Lás og lyklar frá Louis Vuitton í sérstakri ferðaútgáfu og í samstarfi við TSA, Transportation Security Administration - sem er hliðstætt íslensku Tollgæslunni. Kemur í upprunalegum rykpoka.
Falleg og stílhrein Tote taska frá Chanel í svörtu caviar leðri með vínrauðu tau innvolsi. Hægt er að renna aðal hólfi að miklu leiti, í hliðum aðal hólfsins er öðru megin renndur vasi og hinu megin tveir misstórir opnir vasar. Málmar töskunnar eru silfur litaðir og með töskunni fylgir CC bag charm sem er fjarlægjanlegt. Pochette fylgir og er á bandi sem er fast við töskuna en krókur er á enda þess og því hægt að taka Pochette af til að nota sér. Upprunakort og bæklingur fylgir með.
Ótrúlega töff Le Cagole hliðartaska frá Balenciaga í xs, minnstu stærðinni, sem er jafn framt vinsælasta stærðin af Balenciaga töskum. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og keðjuól sem er hægt að hafa einfalda eða tvöfalda eftir því hvort hentar betur og krókur á öðrum endanum. Silfur tónaður málmur með svörtum áherslum. Fjarlægjanlegt klink veski og spegill fylgir með ásamt upprunalegum rykpoka. Taskan er úr svörtu, lituðu, lambaskinni frá haust/vetrar línunni 2021. Því er taskan framleidd seint 2021 eða mjög snemma 2022. Kostar ný í dag um 280.000 kr.
Fallegt kortaveski frá Chanel í fjólubláum lit með gulltónuðu CC lógó að framan. Þrjú kortahólf og eitt aðeins dýpra í miðjunni sem gæti rúmað seðla eða kvittanir. Upprunalegur kassi fylgir með.
Klikkað töff höfuðband frá Gucci í hvítum lit með rauðu og grænu web línunni. Upprunalegur kassi fylgir. 75% Polyester & 25% teygju efni.
Æðisleg Travel Line Tote taska frá Chanel í drapplituðu. Canvas töskunnar er úr Nylon og höldurnar úr leðri. Málmar eru gulltónaðir. Eitt opið aðalhólf og þar að innan eru tveir rúmgóðir renndir vasar og krókur á bandi til að festa t.d. lykla eða seðlaveski.
Bleikur silkiklútur frá Christian Dior með fallegri mynd af blómum í römmum ásamt fleiru skrauti.
Falleg Gucci Python axlartaska í snáka líkis leðri og með svörtu bambus haldfangi. Málmar eru gulltónaðir og er áfast lítið veski sem fylgir með.
Hrikalega flott Lady Dior taska frá Christian Dior. Taskan er í dökkdökk grænum lit með bláu og hvítu floral printi og silfur málm. Eitt aðalhólf err á töskunni, sem opnast og lokast með smellu, þar ofan í eru tvö auka hólf. Með töskunni fylgir fjarlægjanleg ól og veski með.
Skemmtilegur bucket hattur frá Gucci íi endurtekna GG mynnstinu með web línunni.
Hvíta Triangle taskan frá Prada úr leðri. Taskan er skemmtileg í lögun eins og þríhyrnda Prada lógóið. Aðalhólfið er rennt en á ólinni er einnig minna rennt veski sem hægt er að smella af ef maður vill. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Flottir Arizona mokkasíur frá Louis Vuitton í Eclipse mynstrinu, upprunalegur rykpoki fylgir með.
Æðislegur Louis Vuitton Bomber jakki í monogram denim mynstri með leður örmum.
Flottir strigaskór fá Chanel í svörtu leðri með hvítum botn og CC lógó. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Æðislega bleik Medium Boy Flap taska frá Chanel úr endingargóða og klassíska Caviar leðrinu í bleikum lit. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl. Málmurinn er burstaður gylltur/kopar og fylgir upprunalegur rykpoki með töskunni. Sanngildiskortið vantar. Taskan var framleidd árið 2018.
Hentug Messenger hliðartaska frá Gucci í svörtu GG Supreme mynstri með svartar leður áherslur og silfur málm. Web (blá og rauð) stillanleg ól er á töskunni og eitt rúmgott aðalhólf, þar fyrir innan er lítill flatur vasi og rúmgóður renndur vasi. Framan á töskunni er einnig renndur vasi.
Flott Unisex Cube mittistaska frá Burberry í dökkbrúnu Check mynstri. Aðalhólf er rennt með einum opnum vasa en að aftan er einnig rennur smáhlutavasi. Ól er stillanleg og með fylgir kassi og rykpoki. Tilvalin gjöf.
Falleg tote taska frá Louis Vuitton í glæsilegu grænu Epi leðri með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt og eitt opið, einnig er krókur í innvolsi. Taskan var framleiddí nóvember 1995 í Frakklandi.
Svört leður TB Burberry mittis taska úr lambaskinni með gylltum áherslum. Taskan opnast með flipa og lokast með segulloka og smellu. Taskan hefur eitt aðalhólf sem inniheldur tvenna flata vasa einn minni fyrir kort og annað aðeins stærri. Á leðrinu er útsaumað TB út um allt eins konar vatterað í leðrið og framan á er gyllt TB málmur.
Glæsileg crerwneck peysa frá Fendi í svörtum lit með vasa í ''FF'' mynstrinu að framan. Kostar ný € 920,00, eða 132.728isk á núverandi gengi.
Glæsilegur stutterma bolur frá Fendi í ljósa ''FF'' mynstrinu. Kostar nýr um 156.000kr.
Klassískur stuttermabolur frá Christian Dior í hvítum lit með ''CD'' lógó að framan. Kostar nýr um 86.000kr.
Stórglæsileg Crystal Stud Mask sólgleraugu frá Gucci úr Hollywood Forever Collection. Svört umgjörð með glærum steinum í endurteknu "Gucci" fyrir ofan og neðan glerin ásamt röð af steinum fyrir ofan og á hliðum framhluta umgjarðarinnar. Gylltir málmar, mjóar hliðar og "GG" interlocking lógó á endunum. Upprunalegur Hollywood Forever Collection (Gucci) hulstur fylgir með og ónotað gleraugnaklútur frá Gucci.
Ótrúlega vinsæl, hentug og glæsileg Neverfull taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene mynstrinu með gylltum málm. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með eitt auka rennt hólf og krók. Taskan var framleidd árið 2011 og hægt er að snúa töskunni við og nota hana öfuga, sem er sjúklega kúl! Kostar ný $2,170.00, eða 265,260isk á núverandi gengi.
Glæsilegur jakki frá Moncler í dökkum lit, með fjórum vösum að framan og tveimur rennilásum.
Vegleg Ipanema GM taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Einn opinn vasi að framanverðu. Aðalhólf er rennt og hefur að geyma tvo minni opna vasa að innanverðu.
Æðisleg Small Pouch Clutch taska frá Celine úr fallegum Triomphe Monogram canvas. Brún leður og stutt ól yfir úlnlið (fjarlægjanleg). Innvolsið er eitt stórt hólf. Upprunalegur rykpoki og kassi fylgja.
Hrikalega fallegir skór frá Chloé í svörtum lit, gerðir úr blúndu og neti. Með skónum fylgir upprunalegir rykpokar.
Fallegur og hentugur Ellipse bakpoki frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvas með ljós brúnu leðri og gylltum málm. Eitt rennt rúmgott aðalhólf erá töskunni, þar ofan í er eitt auka hólf. Hægt er að lengja og stytta leðurböndin. Framleidd árið 1999.
Flott síðúlpa frá Moncler í svörtum lit, bæði tölur og rennilás er á úlpunni og dökkt Moncler lógó á ermi. Ath. ástand
Skemmtilegur vindjakki frá Moncler í bláum, hvítum og rauðum lit. Tveir renndir vasar eru á hliðunum.
Glæsileg úlpa frá Moncler í dökkum lit með lógó á ermi. Tveir vasar eru á hliðunum.
Klikkað falleg stígvél frá Prada í svörtu Nappa leðri. Upprunalegur kassi og rykpokar fylgja með.
Æðisleg svört sokkastígvél frá Prada. Rennilás innan á kálfa og Prada lógó utan á ökkla.
Glæsilegur og eftirsóttur Kensington rykfrakki frá Burberry í svörtum lit með Nova Check mynstur að innan. Tveir vasar eru á hliðunum og fylgir mittisband með. Hægt er að stíla rykfrakkann á svo margar vegur, fullkominn fyrir haustið!
Mittisbelti frá Burberry í svörtu patent leðri með hvítu, gráu og svörtu Nova check mynstri. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með.
Vintage Crécy taska frá Céline úr svörtu patent leðri og gylltum málmi. Á töskunni er áföst ól sem er stillanleg. Taskan opnast með flipa og læsist með smellu. Taskan skiptist í þrjú aðalhólf. Einn renndur flatur vasi innst og tveir opnir vasar í miðju hólfinu. Virkilega sæt hentug vintage taska. Með töskunni fylgir rykpoki, ekki upprunalegur.
Vintage svart leður belti frá Celine með Celine gylltri hesta sylgju.
Ótrúlega falleg, unique ferðataska frá Louis Vuitton í Monogram canvas frá árinu 2017. Eitt stórt, rennt aðalhólf er á töskunni og tvö auka rennd hólf, eitt í innvolsi og annað að framan. Einnig fylgir henni sérstakt hólf sem geymir útdraganlegt handfang, sem gerir það mögulegt að breyta töskunni í þægilega ferðatösku. Allur málmur er gylltur og eru tvö dekk á einni hliðinni. Sjúklega hentug og stílleg taska í ferðalögin!
Sjaldgæfur, flottur og vel með farinn svartur frakki frá Prada. Frakkinn er með tvöföldum tölum að framan sem hægt er að hneppa í báðar áttir og er aðsniðinn.
Sætir sandalar frá Gucci í fallegum ljós bleikum lit með perlu ''GG'' mynstri á hliðunum.
Falleg sólgleraugu frá Gucci í svörtum lit með gylltu ''GG'' lógó á hliðunum. Upprunalegt box fylgir með.
Töff belti frá Prada í svörtum lit með silfur sylgju. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með. 175 cm (68,9)
Nettir og stílhreinir hvítir strigaskór frá Celine úr kálfaleðri með dökkbláum línum á hliðunum og látlausu lógó á tungunni. Skórnir kosta nýjir um $850 hjá Celine, þ.e. um 115.000 isk á núverandi kortagengi. Upprunlaegir rykpokar fylgja.
Louis Vuitton Damier Ebene Pariolo PM taska. Taskan lokast með segulloka og hefur eitt aðalhólf og tvo opin hólf inn í. Að innan er taskan gerð úr velúr eða rúskinni sem er appelsínugult á litinn. Taskan er framleidd árið 2004. Rykpoki fylgir.
J'Adior svört leður taska frá Christian Dior með burstaðri gylltri keðju og gylltum áherslum. Taskan lokast með flipa og læstist með segulloka. Taskan hefur eitt aðalhólf sem inniheldur einn minni flatan vasa. Framan á töskunni er J'Adior úr gylltum málmi. Taskan er frá árinu 2019. Með töskunni fylgir rykpoki.