Falleg New Wave Multi Pochette taska frá Louis Vuiitton í svörtu kálfaleðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf með einu auka hólfi ofan í. Tvær ólar fylgja með, ein lítil keðjuól og önnur lengri tauól með fjarlægjanlegri buddu. Upprunalegur rykpoki fylgir með, kassi og verslunarpoki.
Æðisleg síð ullarkápa frá Burberry úr 80% ull og 20% viscose. Á kápunni er belti sem er hægt að binda um mittið. Kápan er hneppt alla leið í háls en tölur eru faldar. Einn vasi í innvolsi, einn á hvorri hlið að utanverðu.
Ótrúlega falleg taska frá Gucci í svörtu matelasse leðri með gylltum málm. Sterkur segull er á töskunni sem lokar og inní töskunni er pastel bleikt rúskin, tvö stór hólf og lítil hólf fyrir smáhluti á sitthvorri hliðinni, annað er rennt og hitt er opið.
Glæsilegt Rolex Datejust 36, ref.16233, í klassískri tvítóna útfærslur úr ryðfríu stáli og 18k gulli. Úrið skartar fallegri kónga blárri skífu með demöntum og gylltum vísum, riffluðum gullramma (fluted bezel) og hinu sígilda Jubilee-ól frá Rolex. Úrið býr yfir sjálfvirku Rolex Caliber 3135 gangverki og dagsetningarglugga með Cyclops-stækkunargleri. Gler úrsins er Safírgler og er úrið árgerð 1994. Með úrinu fylgir veglegur Rolex kassi, ekki sá sem fylgdi með úrinu upprunalega en þó Rolex kassi í góðu ástandi. Úrið var ekki vottað af sérfræðingum Attikk heldur hefur það verið yfirfarið af úrasmiði sem staðfesti raðnúmer úrsins við gagnagrunn Rolex.
Æðisleg og hentug messenger taska frá Gucci í ljósu supreme canvas með brúnu leðri og silfur málm. Eitt rennt aðalhólf með þremur auka hólfum, eitt rennt og tvö ''korta'' hólf, m.a. eitt auka rennt hólf að framan. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Virkilega falleg Pochette Twin GM taska frá Louis Vuitton í klassískum brúnum monogram canvas. Eitt aðalhólf sem lokast með smellu, í því er opinn vasi sem rúmar flesta snjallsíma.
Ótrúlega falleg Baguette taska frá Fendi í brúnu leðri með silfur málm og handsaumuðum áherslum meðfram brúnum. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf með einu auka renndu hólfi ofan í. Upprunalegur rykpokii og tvær fjarlægjanlegar ólar fylgja með, ein lengri og hin styttri. Kostar ný €3,600, eða 490.500isk á núverandi gengi.
Hliðartaska frá Burberry í svörtu nylon efni með Burberry lógó. Eitt rennt aðalhólf með þremur kortahólfum og einu auka renndu hólfi að framan.
Prada tote taska í svörtu nylon efni með patent leðri og hvítum saumum. Eitt opið aðalhólf með einu auka renndu hólfi og krók til að loka aðalhólfinu.
Ótrúlega fallegur Fendi blazer í endurtekna ''FF'' mynstrinu í brúnum og svörtum lit.
Geðveikur jakki frá Gucci í svörtu Supreme mynstrinu með silfur tölum og hettu sem hægt er að fjarlægja. Upprunalegt herðatré fylgir með.
Æðisleg brún Bowling axlartaska frá Prada. Taskan er vintage og með mikinn persónuleika en ummerki um fyrri notkun gefa henni svolítið "distressed" útlit. Einn renndur vasi er að framanverðu. Innvols er stórt og tvískipt með einum renndum smáhlutavasa og einum opnum vasa.
Glæsileg Dauphine taska frá Louis Vuitton í svörti Epi leðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf sem skiptist í þrennt, tvö opin og eitt rennt hólf. Með töskunni fylgir bæði fjarlægjanleg keðjuól og leðuról, m.a. upprunalegur rykpoki.
Klikkað fallegir hælar frá Fendi í dýramynstri úr kálfahárum.
Ótrúlega fallegir, fylltir hælar frá Jimmy Choo í drapplituðum lit.
Glæsileg Hudson taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka opnum hólfum. Þrjú auka hólf eru að framan, tvö sem opnast með smellu og eitt rennt. Framleidd árið 2006.
Falleg Tote taska frá Gucci í svörtu glans coated canvas með leður höldum. Eitt rennt rúmgott aðalhólf með þremur auka hólfum, tvö opin og eitt rennt.
Hentug snyrtitaska frá Louis Vuitton í monogram canvas. Eitt rennt aðalhólf með einu auka hólfi.
Æðisleg My Dior Daily taska frá Christian Dior í svörtu lambaleðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur sex kortahólf, eitt rennt hólf og tvö opin. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Falleg, vintage taska frá Gucci í supreme mynstrinu með web (rauð & græn) línunni að framan, dökkbrúnu leðri og gylltum málm. Eitt aðalhólf með auka opnu hólfi.