Hjá Attikk getur þú selt merkjavöruna þína, verið viss um að varan þín sé meðhöndluð af þeirri varfærni sem hún á skilið og að þú sért að fá besta mögulega verð sem markaðurinn bíður uppá hverju sinni.
Þú mætir með merkjavöruna þína niður í Attikk, Laugavegi 90, þar sem að varan er sanngildisvottuð, ástandsskoðuð og verðmetin. Í framhaldinu getur þú fengið greitt allt að 85% af söluandvirði vörunnar. Sjá nánar þóknunartöflu neðst á síðu.
Við tökum ekki við skemmdum vörum og mælum með því að þú mætir með vöruna þína hreina og helst pressaða/straujaða ef við á. Við erum einungis að taka við söluvænlegustu vörunum.
Þú mætir með vöruna þína til Attikk á Laugaveg 90.
Þegar þú mætir með vöruna þína til okkar er hún strax sett í ferli fyrir sanngildisvottun. Attikk nýtir þjónustu sérfræðinga fyrir hvert vörumerki til þess að sanngildisvotta (e. authenticate) allar vörur áður en þær fara í sölu. Sanngildisvottun tekur yfirleitt innan við einn virkan dag en getur tekið allt að 2 virka daga. Sanngildisvottun ein og sér kostar 3.995,- nema að varan sé seld hjá Attikk, sjá nánar verðskrá.
Verðmat sem þú samþykkir eða hafnar.
Þegar að varan þín hefur lokið sanngildisvottun og fengið grænt ljós fer hún í gegnum ástandsskoðun og verðmat. Starfmaður Attikk sendir þér í kjölfarið tölvupóst þar sem að verðmatið er borið undir þig og þú samþykkir eða hafnar. Þú getur ákveðið hvaða verð er sett á vöruna þína.
Þú velur hvernig þú vilt fá greitt fyrir vöruna þína.
Attikk býður uppá þrjú mismunandi greiðslumódel sem þú getur valið úr. Attikk tekur mismunandi þóknun eftir því hvaða módel þú velur og eftir verðmæti vörunnar.
Verðmat/Söluverðmæti | Módel C | Módel B | Módel A |
undir 20.000 ISK |
50% 45% * |
65% |
75% |
20.000 - 49.999 ISK |
40% 35% * |
60% |
70% |
50.000 - 99.999 ISK |
30% 25% * |
50% |
60% |
100.000 - 199.999 ISK |
25% 20% * |
45% |
55% |
200.000 - 999.999 ISK |
20% 15% * |
40% |
50% |
1.000.000 ISK eða yfir |
15% 10% * |
35% |
45% |