Veskin eru vinsæl hjá Attikk og koma til okkar í öllum stærðum og gerðum frá öllum helstu lúxusmerkjunum.
Fallegt veski frá Chanel í svörtu lambaleðri með silfu málm. Eitt rennt aðalhólf sem skiptist í nokkur hólf, tíu opin hólf og eitt rennt í miðjunni. Upprunalegur kassi fylgir með. Taskan var framleidd árið 2016.
Vitello Cruise veski með upphleyptu F monogrami í klassíska brúna tóbakslitnum og gulu leðri með silfur F logi. Veskið opnast og lokast eins og umslag og læsist með smellu. Veskið skiptist í þrjú hólf fyrir miðju er renndur vasi og sitthvoru megin við eru ýmist kortahólf og flatir vasar.