Hjá Attikk erum við vön að fá tugi nýrra vara í viku sem fara í gegnum strangt vottunarferli, ásamt verðmati áður en þær fara í sölu. Fram að þessu hafa vörurnar síðan farið í sölu í verslun og netverslun samtímis, eða um leið og tími gefst í að mynda þær. 

Héðan af ætlum við að hafa skipulag á hlutunum. Allar nýjar vörur inn á ákveðnum tíma og því geta viðskiptavinir okkar haldið betur utan um nýjustu vörurnar hjá okkur. 

Alla daga á slaginu 20:00 koma inn nýjar vörur á Attikk.is og verða aðgenilega i verslun næsta dag. Magn vara hvert sinn verður auðvitað breytilegt en núna getur þú verið á varðbergi á þessum tíma ef þú ert í leit að drauma merkjavörunni.