Klassísku oversized strigaskórnir frá Alexander McQueen sem slógu mikið í gegn fyrir nokkrum árum síðan. Svartir og stórir um sig með hvítum sóla og hæl. Upprunalegur rykpoki fylgir. Auka innlegg fylgja einnig og auka upprunalegar reimar.
Fjölhæf Pouch clutch taska frá Gucci í dökkbláu GG Supreme mynstri úr Ophidia línunni. Virkar vel sem clutch taska eða jafnvel undir snyrtivörurnar. Í innvolsi er einn lítill vasi. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Æðisleg Small Pouch Clutch taska frá Celine úr fallegum Triomphe Monogram canvas. Brún leður og stutt ól yfir úlnlið (fjarlægjanleg). Innvolsið er eitt stórt hólf. Upprunalegur rykpoki og kassi fylgja.
Klikkað flott Off The Grid Duffle taska frá Gucci. Taskan er úr svörtu nylon-efni með endurteknu „GG“ mynstri og glæsilegu gylltu „Gucci“ lógói að framan. Taskan er með eitt rúmgott rennt aðalhólf og tveimur auka hólfum að innan, sem gerir hana fullkomna bæði fyrir stuttar ferðir, ræktina eða sem stílhreina helgartösku. Með töskunni fylgir löng axlaról, þannig að auðvelt er að bera hana bæði yfir öxl eða í hendi – eftir tilefni og stíl.
Gæðaleg og vinsæl Woody Tote taska frá Chloé í stærðinni Medium. Fullkomin hversdags taska í vinnuna og/eða skólann. Eitt stórt opið hólf og einn lítill vasi í innvolsi. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki.
Hrikalega fallegir skór frá Chloé í svörtum lit, gerðir úr blúndu og neti. Með skónum fylgir upprunalegir rykpokar.
Snyrtitaska frá Louis Vuitton í Monogram canvas. Hentar vel undir snyrtivörur þar sem hún er rúmgóð og vel skipulögð. Eitt rennt aðalhólf, annað opið hólf þar fyrir innan og þrjár teygjur. Framleidd í Frakklandi í Apríl 1988. Ath ástand vel.
Æðisleg snyrtitaska frá Louis Vuitton í klassíska Monogram canvasnum. Hentar líka sem veski fyrir helstu hlutina út í daginn. Framleidd í Frakklandi í Febrúar 1985. Ath ástand vel.
Æðislegir Runway Drocade hælaskór frá Gucci í suede efni með fallegu mynstri og silfur sylgju að framan.
Stór og vegleg gamaldags ferðataska frá Fendi í klassísku Monogram canvas og brúnu leðri. Eitt stórt hólf sem er þrískipt, miðjuhólfið rennt. Tveir minni renndir vasar að framan. enn renndur vasi að aftanverðu. Töskunni er lokað með sylgju.
Fallegt kassalagað Quadro 6200L kvenmannsúr frá Fendi úr ryðfríu stáli og keramík. Quartz úr sem kemur í öskju/boxi og hentar vel sem gjöf.
Vintage Clutch taska frá Gucci í GG Supreme útgáfu og skartar Web flipa (grænu og rauðu línunum) að framanverðu. Eitt stórt aðalhólf með minni vasa sem er hægt að smella.
Þessi klassíska í stærð 50 og með aukaól yfir öxlina sem er fest í krók á hvorri hlið. Fullkomin í ferðalagið, sundferðina eða ræktina. Athugið ástand vel.
Vintage Pochetta Homme Clutch frá Louis Vuitton í klassíska monograminu með gylltum rennilás. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf og framan á töskunni er einn opinn vasi. Taskan er vintage gullmoli og var framleidd árið 1990 og upphaflega hönnuð fyrir karla.
Æðisleg Reporter PM taska frá Louis Vuitton í Monogram útgáfu. Virkilega fjölhæf taska með einum opnum vasa að framanverðu og tveimur renndum aðalhólfum. Í einu aðalhólfinu er opinn smáhlutavasi. Stillanleg ól. Taskan er frá árinu 2000.
Klæðileg og rúmgóð Boston taska frá Burberrys í fallega Haymarket mynstrinu. Aðalhólfið er rennt og í innvolsi er einn renndur vasi. Með töskunni fylgir lengri ól sem er hægt að festa í krókana á hliðunum. Að innan er harður leðurbotn sem er hægt að fjarlægja - festur með frönskum rennilás.
Espadrillur frá Gucci með þykkum botni, gylltu leðri og skreyttir stórri slaufu að framanverðu í Sylvie Web litunum.
Svört, síð Lanoux dúnúlpa með belti frá Moncler. Tveir renndir vasar að framanverðu og hægt að renna hettunni af.
Gullfallegt Quartz úr frá Christian Dior með svörtu dial og gullhúðaðri ól. Kemur í fallegri öskju og er tilvalin gjöf! Aukahlekkir fylgja.
Æðisleg kassalögum Nylon taska frá Prada með málmlógó að framanverðu í stækkaðri útgáfu. Aðalhólfið er lokað með segulsmellu en í innvolsi er einn renndur vasi.
Fallegur sundboldur frá Chanel í bleikum, bláum og hvítum lit. Hliðarnar eru með opum og þar á milli er fallegt ''CC'' kristalla lógó. Frá 2022 Collection eftir Virginie Viard.
Hrikalega flott silki skyrta frá Versace með Baroque Medusa mynstri. Skyrtan er hneppt upp að framan og er í Heritage Fit (sniði). Efsta hneppan á skyrtunni er gulllituð og er með Medusa merkinu, hinar tölurnar eru svartar. Virkilega flott og smart skyrta í stærð 48.
Ótrúlega fallegir strigaskór frá Gucci í brúnu rúskinn efni með ''GG'' lógó á hliðunum. Upprunalegir rykpokar fylgja með.
Fallegur og hentugur Ellipse bakpoki frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvas með ljós brúnu leðri og gylltum málm. Eitt rennt rúmgott aðalhólf erá töskunni, þar ofan í er eitt auka hólf. Hægt er að lengja og stytta leðurböndin. Framleidd árið 1999.