Vörur sem að hafa verið lengur en 80 daga á sölu og gætu verið sóttar af eiganda fljótlega.
Yeezy Boost 700 V2 í litnum „Static“ er einn af eftirsóttustu litum línunnar, hannaður af Kanye West fyrir Adidas. Skórinn sameinar chunky 90’s útliti. skórnir eru yfirbyggður úr mesh og rúskinni með leður- og endurskinsskreytingum. „Static“ liturinn er blanda af gráum og hvítum tónum. Með skónum fylgir kassi.
Glæsilegt Louis Vuitton Pochette Eclipse veski úr Monogram Eclipse canvas með svörtu leðri og silfur áherslum. Að innan er hún klædd með dökkum textíl og hefur eitt rennt hólf, og nokkur kortahólf sem gera hana einstaklega praktíska í notkun. Með veskinu fylgir einnig lítið rennt veski í sama mynstri, sem hægt er að nota eitt og sér fyrir smápeninga, lykla eða kort. Með veskinu fylgir upprunalegur rykpoki.
Tom Ford tote taska úr slitsterku brúnu canvas efni með svörtum leðurumgjörðum og botni. Með töskunni fylgir stillanleg og fjarlægjanleg ól, en á töskunni eru tvö löng leður handföng. Að innan er rúmgott aðalhólf sem hægt er að renna sem inniheldur einn minni vasi sem hentar vel fyrir smáhluti. Að framan er stendur Tom Ford á svörtu leðri. Taskan hentar jafnt í vinnu, daglega notkun eða sem ferðataska.
Geggjað Dior Oblique veski, eða taska úr klassíska „Oblique“ mynstrinu frá Dior. Á töskunni er handfang sem getur farið utan um úlnliðinn, þannig að það er auðvelt að bera hana á hendi. Taskan er úr slitsterku efni með dökku leðri og silfur málmi. Að framan er flatur rennilásavasi, og að innan er rúmgott aðalhólf með skipulögðum kortahólfum og auka vasa.
Balenciaga Neo Classic City í "All Black". Taskan sameinar klassíska hönnun með skýrari línum, uppfærðu leðri og smáatriðum sem gerir töskuna praktíska í daglegri notkun. Framan á töskunni er stendur 'Balenciaga'. Taskan er úr svörtu leðri sem er slitsterkt og heldur sér vel. Að framan er rennilásavasi með áberandi smáatriðum, og innvolsið er rúmgott með rennilásavasa og auka vasa. Taskan er með tvö sterk handföng og á töskunni eru sér hankar fyrir ól, en því miður fylgir engin ól með.
Tom Ford Fausto TF711 sólgleraugu í svartri umgjörð með áberandi „T“ málmi á örmunum. Með gleraugunum fylgir upprunalegt svart Tom Ford hulstur og ónotaður klútur
Acne Studios Frame sólgleraugun með „shield“ linsu sem nær yfir allan framhlutann. Rammarnir eru í svörtum tónum með sléttum málmskreytingum og einstöku hjarta-charm sem hangir á hægri arminum. Með fylgir svartur Acne Studios rykpoki. Sólgleraugun er enn í sölu hjá Acne Studios og kosta ný ca. 75.000 isk
Einstök gulltóna Boy hliðartaska frá Chanel. Taskan er gerð úr lambaleðri og er með eftirsótta ísaumaða demants mynstrið (e. quilted). Stillanleg keðju og leðuról, bæði hægt að hafa hana einfalda og tvöfalda. Bæði keðjan og aðrir málmar eru í gylltum tón. Eitt af helstu einkennum Boy taskanna frá Chanel er hvernig taskan lokast að framan þar sem er þrýst saman beggja vegna við CC lógóið. Eitt rúmgott hólf og auka flatt opið hólf að innan. Framleidd árið 2014. Upprunalegur kassi, rykpoki, upprunakort og bæklingur fylgir með.
Ótrúlega falleg og sívinsæl quilted Single Flap hliðartaska frá Chanel í stærðinni medium. Taskan er gerð úr svörtu lamba leðri og innvolsið úr rauðu leðri. Innan í töskunni er flatur rendur vasi. Taskan var framleidd á árunum 1997-1999. Upprunakort og bæklingur fylgir með.
Glæsilegur og eftirsóttur Kensington rykfrakki frá Burberry í svörtum lit með Nova Check mynstur að innan. Tveir vasar eru á hliðunum og fylgir mittisband með. Hægt er að stíla rykfrakkann á svo margar vegur, fullkominn fyrir haustið!
Töff skíðabuxur frá Moncler í hvítum og svörtum lit með lógó. Tveir renndir vasar eru á hliðunum og band til að þrengja á mittinu.
Ótrúlega fallegir hælaskór frá Gucci í glæsilegum grænum lit með fylltum botn og ''GG'' mynstrinu að framan. Með skónum fylgir upprunalegur kassi og rykpoki.
Svört Jeune Fille taska frá Louis Vuitton úr svörtu Epi leðri. Taskan opnast að ofan með gylltum rennilás. Eitt aðalhólf með einn flatan vasa sem lokast með rennilás. Framan á töskunni er flatur vasi sem lokast með flipa og læsist með ól og sylgju. Aftan á er opinn flatur vasi. Á töskunni er áföst stillanleg crossbody ól. Taskan er frá árinu 2009. Athugið ástand eins og alltaf!
Ótrúlega stílhrein og hentug OnTheGo PM taska. Hönnunin er innblásin af hinni sígildu Sac Plat frá Louis Vuitton sem var í framleiðslu 1968. Taskan er gerð úr Monogram Empreinte leðri, með áprentuðu tvílitu, svörtu og beige, Monogram mynstri. Stærðin hentar fullkomlega fyrir allar þínar nauðsynjar út í daginn. Stillanleg og fjarlægjanleg axlaról, sem gerir þér kleift að bera hana á ýmsa vegu – í hendi, á öxl eða yfir líkamann (e. crossbody). Innvols er í dökkum rauðum lit með einum renndum vasa og tveimur flötum opnum vösum. Innan í töskunni eru tveir gulltóna málm hringir til að krækja ólina ásamt öðrum gulltóna málm hring og krók til að loka töskunni. Plastið er ennþá á rennilásnum af rennda vasanum. Upprunalegur kassi, rykpoki og Louis Vuitton búðarpoki fylgir með. Taskan er enn í sölu hjá Louis Vuitton og kostar ný um 308.000 kr.
Skemmtileg hliðartaska frá Gucci í klassíska Supreme mynstrinu með brúnu leðri og gylltum áherslum. Eitt rennt aðalhólf er á töskunn með auka renndu hólfi að framan. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Geggjaðir og eftirsóttir Rhyton leður strigaskór frá Gucci í ivory lit. Skórnir eru með þykkan botn og er "vintage" Gucci lógó á hliðunum, sem er innblásið frá árinu 1980. Upprunalegur kassi og rykpokar fylgja með.
Fallegt Ophidia veski frá Gucci í Supreme mynstrinu með brúnu leðri og web línunni (rauð & græn) í miðju. Veskið opnast með rennilás og eru nokkur hólf, tólf fyrir kortin og eitt rennt. Kemur með upprunalegum rykpoka og kassa.
Glæsilegir, stíllegir strigaskór frá Gucci í brúnum og hvítum lit, með gylltu ''GG'' mynstri að aftan. Upprunalegur verslunarpoki fylgir með.
Ljósblátt dún vesti frá Prada með silfur og rauðum áherslum. Vestið hefur tvenna rennda vasa á hliðunum og gráa nylon hettu sem hægt er að fela í hálsmálið. Tveir vasar eru innan í vestinu sem lokast með frönskum rennilás. Að innan er hægt að smella vestinu að neðan til að hindra að loft fari þar í gegn. Á hægri hliðinni er lítið rautt Prada merki. Vestið er úr 100% nylon og er fyllt með dún. Innan í hægri vasa að utan er lítill silfraður lás með rauðu Prada stöfum.
Töff strigaskór frá Gucci í eftirsótta ''GG Supreme'' mynstrinu með gylltu glansandi hjarta á hliðunum.
Stórglæsilegir hælaskór frá Chanel í svörtum lit með þykkbotna hæl. Með skónum fylgir upprunalegur kassi.
Falleg Wallet on Chain taska frá Chanel í svörtu lambaleðri með silfur áhreslum. Eitt aðalhólf er á töskunni sem lokast með flipa, að innan eru nokkur hólf, eitt rennt, tvö opin og sex kortahólf. Að aftan er einnig auka opið hólf og er taskan framleidd árið 2011.
Glæsileg og stílhrein Baguette taska frá Fendi í ljósu og gráu FF Jacquard mynstri með gylltum málm. Eitt aðalhólf er á töskunni með einu auka renndu hólfi. Tvær ólar fylgja með, ein minni leðuról og ein stærri ól í ljósum og dökkum lit. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Gullfalleg Up In The Air hliðartaska frá Chanel í svörtu leðri með silfur málm. Eitt aðalhólf er á töskunni með tveimur auka hólfum, eitt rennt í innvolsi og eitt opið að framan. Með töskunni fylgir skipulagshólf með nokkrum hólfum. Taskan var framleidd í kringum 2012 - 2013 og er ótrúlega hentug en stílleg!