Glæsileg næla frá Dolce & Gabbana í bleikum og bláum lit með allskonar skrauti.
Glæsilegt úr frá Yves Saint Laurent í bæði gylltum og silfur málm með fallegri blárri skífu.
Ótrúlega falleg, vintage næla frá Chanel í gylltum málm, skreytt með kristölum. Frá ca. 1990 - 2000s
Falleg úlpa frá Prada í brúnum lit með silfur málm og Prada lógó á vinstri ermi. Tveir vasar eru að framan og einn á erminni.
Mittisbelti frá Burberry í svörtu patent leðri með hvítu, gráu og svörtu Nova check mynstri. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með.
Æðislega vönduð Mount Chain Envelope taska í litnum Almond Gold. Taskan er úr lambaskinni og skartar gylltum málmi. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki og upplýsingakort. Taskan er alveg ónotuð og er tilvalin gjöf! Taskan kostar ný $3.700 eða um 460.000 isk á núverandi kortagengi.
Æðisleg og eftirstótt Chain Pouch taska frá Bottega Veneta úr fallegu brúnu kálfaleðri. Taskan skartar gylltri málmkeðju sem ól, sem hægt er að krækja af/á. Taskan kostar ný $4.100 eða eða um 500.000 isk á núverandi kortagengi. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Æðislegir eyrnalokkar frá Balenciaga úr gylltum kopar. Rykpoki og box fylgir.
Ótrúlega falleg og klassísk Jackie hobo axlartaska frá Gucci í ljósu taui með svörtum leðurkanti og silfurlituðum málmi. Líkleg árgerð ca. 1998–2004. Aðalhólfið er rúmgott með rennilásvasa í innvolsi. Lokast með einkennandi Jackie lock læsingunni að framan.
Klassískir loafers frá Gucci úr svörtu leðri með gullituðu horsebit skrauti að framan. Þægileg og tímalaus hönnun sem hentar jafnt hversdags sem við fínni tilefni.
Gæðaleg og látlaus grá ullarpeysa frá Gucci með V hálsmáli. Peysan er létt og þunn en hlý, úr 100% ulli. Á brjóstkassa er ísaumað gult Gucci merki.
Ótrúlega falleg tote taska frá Celine í svörtu lambaleðri og silfur málm. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með einu auka hólfi. Á hliðunum eru fjórir rennilásar, sem hægt er að renna niður og stækka aðalhólfið. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Louis Vuitton Zippy Wallet í klassísku Monogram Canvas með gylltum málmi. Að innan eru rúmgóð hólf m.a. kortahólfu, renndur vasi og flöt minni hólf.
Flott og hentugt Zippy veski frá Louis Vuitton í Damier Ebene mynstrinu með gylltum málmi. Veskinu er skipt í 3 stærri hólf, með einu renndu hólfi, seðlahólfi og 8 kortahólfum. Veskið er framleitt á árinu 2008.
Louis Vuitton tölvu/skjala hulstur. Þunn og stílhreint hulstur sem lokast með rennilás og hentar fullkomlega fyrir skjöl, spjaldtölvur eða fartölvu. Hulstrið er framleitt árið 1994.
Chloé Marcie hliðartaska í litnum Motty Grey (brúngráleitur litur) með gylltum málmi. Marcie línan frá Chloé er ein sú vinsælasta með handsaumuðum skreytingum að framan. Taskan opnast með flipa og hefur eitt aðalhólf og einn minni flatan vasa. Með töskunni fylgir rykpoki.
Sumarlegir Gucci Horsebit hælaskór í glæsilegu gulu leðri með klassíska Horsebit málmskrauti í gylltum lit. Stillanleg sylgja við ökkla og opin tá. Með skónum fylgir kassi og 2 rykpokar.
Tiffany & Co. sólgleraugu, gerð TF4109, litur 8001/9S. Umgjörðin er svört með gráum gradient linsum. Á örmum er „T & CO.“ engraved. Á vinstra glerinu í horninu er engraved í skrautstöfum 'Tiffany & co". Með sólgleraugun fylgir upprunalegt Tiffany Blue box, hulstur og hreinsiklútur.
Vintage Crécy taska frá Céline úr svörtu patent leðri og gylltum málmi. Á töskunni er áföst ól sem er stillanleg. Taskan opnast með flipa og læsist með smellu. Taskan skiptist í þrjú aðalhólf. Einn renndur flatur vasi innst og tveir opnir vasar í miðju hólfinu. Virkilega sæt hentug vintage taska. Með töskunni fylgir rykpoki, ekki upprunalegur.
Vintage svart leður belti frá Celine með Celine gylltri hesta sylgju.
Ljós og flott Balenciaga Signature tote taska í miðlungs stærð úr slitsterku brúnu PVC efnu með leðuráferð. Taskan er framleidd á Ítalíu og er endingargóð og stílhrein. Hún er með tveimur leðurhandföngum og hefur eitt opið aðalhólf. Að innan er tau fóður með einu auka renndu hólfi á hliðinni.
Gucci Dionysus Super Mini Bag úr rauðu grained leðri. Taskan er með silfurlitaðri keðju og „Dionysus“ málm skeifu að framan. Lokast með flipa og læsist með segulloka undir flipanum. Að innan er taufóður og eitt hólf. Keðjuna er hægt að fjarlægja. Með töskunni fylgir rykpoki og kassi.
Yves Saint Laurent Fourrures vintage leðurkápa úr brúnu leðri með loðfóðruðum kraga sem nær niður að framan, einnig er loð á ermum og faldi. Kápan lokast með belti í mitti og er með opna vasa að framan. Framleidd í Frakklandi og er ca. frá árunum 1978–1983. Algjör vintage gersemi hér á ferð! Yves Saint Laurent Fourrures var sérstök pelsa- og skinnlína sem var framleidd seint á árunum 1970s og fram yfir 1980 en náði hámarki á árunum 1978–1985.
Svört Camellia blóma regn gúmmístígvel frá Chanel. Stígvélin skarta tveimur blómum hvítum og svörtum á hvorri hlið og á þeim báðum er gyllt CC málm lógó. Sólarnir eru hvítir og hafa smávægilegan hæl. Á ristinni er upphleypt CC lógóin. Virkilega skemmtileg stígvél sem sést ekki á götum borgarinnar. Hvernig væri að tríta sig og vera í svörtum Chanel stígvélum í íslenska regnsumrinu?