Sumarlegir Gucci Horsebit hælaskór í glæsilegu gulu leðri með klassíska Horsebit málmskrauti í gylltum lit. Stillanleg sylgja við ökkla og opin tá. Með skónum fylgir kassi og 2 rykpokar.
Louis Vuitton taska úr klassísku Monogram Canvas með dökkbrúnum áherslun og gylltum málmum. Taskan lokast með rennilás. Að innan er eitt rúmgott aðalhólf ásamt litlum flötum vasa fyrir smáhluti. Á bakhlið er opinn flatur vasi fyrir skjöl eða annað sem þarf að hafa aðgengilegt. Taskan er frá árinu 1999. Praktísk, endingargóð og klassísk hönnun frá Louis Vuitton sem hentar fyrir daglega notkun eða á ferðinni.
Tiffany & Co. sólgleraugu, gerð TF4109, litur 8001/9S. Umgjörðin er svört með gráum gradient linsum. Á örmum er „T & CO.“ engraved. Á vinstra glerinu í horninu er engraved í skrautstöfum 'Tiffany & co". Með sólgleraugun fylgir upprunalegt Tiffany Blue box, hulstur og hreinsiklútur.
Vintage Crécy taska frá Céline úr svörtu patent leðri og gylltum málmi. Á töskunni er áföst ól sem er stillanleg. Taskan opnast með flipa og læsist með smellu. Taskan skiptist í þrjú aðalhólf. Einn renndur flatur vasi innst og tveir opnir vasar í miðju hólfinu. Virkilega sæt hentug vintage taska. Með töskunni fylgir rykpoki, ekki upprunalegur.
Vintage svart leður belti frá Celine með Celine gylltri hesta sylgju.
Ótrúlega fallegt vintage armband frá 1990 í Byzantine stíl eftir Victoire de Castellane fyrir Chanel. Armbandið er gyllt með rauðum, grænum og bláum steinum frá hinum sögufræga Gripoix glerframleiðanda. Box fylgir með sem er ekki upprunalegt.
Vintage Chanel Première úr frá árinu 1987 úr gullhúðuðu stáli. Skífan er svört og einföld, án talna, merkt CHANEL og SWISS með hvítum lit. Ólin er fléttuð saman með gullhúðuðu stáli við svartan leðurþráð. Lengd ólar er 17 cm í ummál og er 10mm breið og hentar meðalstórum úlnið. Úrið gengur fyrir batteríi eða quartz. Með úrinu fylgir upprunaleg bók, vottorð og kassi (frekar illað farið boxið en annað box fylgir með til að vernda úrið, ekki upprunalegt).
Ljós og flott Balenciaga Signature tote taska í miðlungs stærð úr slitsterku brúnu PVC efnu með leðuráferð. Taskan er framleidd á Ítalíu og er endingargóð og stílhrein. Hún er með tveimur leðurhandföngum og hefur eitt opið aðalhólf. Að innan er tau fóður með einu auka renndu hólfi á hliðinni.
Sígild og tímalaus Saint Laurent Kate Monogram Wallet on Chain í svörtu „Grain de Poudre” leðri með silfur málmi. Taskan er með klassísku chevron V-saumuðu mynstri (eins og umslag) og hefur YSL málm að framan. Taskan lokast með flipa og læsist með segulsmellu. Að innan eru nokkrir kortaraufar. Rúmgott rennt hólf fyrir mynt eða smáhluti. Annað hólf fyrir seðla eða síma. Loks nokkur opin hólf fyrir skipulag. Þetta er fullkomin töskustærð fyrir nauðsynjar, hvort sem er í kvöldboðið eða yfir daginn, og hægt að bera bæði á öxl eða sem hliðartösku.
Hentug Chanel tote taska út Travel línunni í beige bleikum lit. Taskan er úr jacquard efni og er ca. frá árunum 2003 til 2004. Taskan er með eitt opið aðalhólf sem opnast að ofan og tveimur handföngum. Að innan eru minni vasar fyrir smærri hluti. Botn með málmtöppum.
Gucci Dionysus Super Mini Bag úr rauðu grained leðri. Taskan er með silfurlitaðri keðju og „Dionysus“ málm skeifu að framan. Lokast með flipa og læsist með segulloka undir flipanum. Að innan er taufóður og eitt hólf. Keðjuna er hægt að fjarlægja. Með töskunni fylgir rykpoki og kassi.
Yves Saint Laurent Fourrures vintage leðurkápa úr brúnu leðri með loðfóðruðum kraga sem nær niður að framan, einnig er loð á ermum og faldi. Kápan lokast með belti í mitti og er með opna vasa að framan. Framleidd í Frakklandi og er ca. frá árunum 1978–1983. Algjör vintage gersemi hér á ferð! Yves Saint Laurent Fourrures var sérstök pelsa- og skinnlína sem var framleidd seint á árunum 1970s og fram yfir 1980 en náði hámarki á árunum 1978–1985.
Svört Camellia blóma regn gúmmístígvel frá Chanel. Stígvélin skarta tveimur blómum hvítum og svörtum á hvorri hlið og á þeim báðum er gyllt CC málm lógó. Sólarnir eru hvítir og hafa smávægilegan hæl. Á ristinni er upphleypt CC lógóin. Virkilega skemmtileg stígvél sem sést ekki á götum borgarinnar. Hvernig væri að tríta sig og vera í svörtum Chanel stígvélum í íslenska regnsumrinu?
Gæðalegir hælar frá Hermés úr fölgrænu rúskinni og kampavínslituðu satíni. Hælarnir eru opnir í tær.
Vintage Cartier Must de Cartier burgundy leðurtaska. Axlartaska úr leðri og gylltum málmi. Taskan opnast með flipa og lokast með smellu. Lokið er skreytt með klassíska Cartier „double C“ lógóinu. Á töskunni er stillanleg axlaról. Með töskunni fylgja upprunaleg skjöl frá kaupin frá árinu 1988, og rauður „Must de Cartier“ bæklingur sem staðfestir uppruna.
Hermès Behapi Double Tour armband úr svörtu leðri með silfurlituðum málmi sem lokast með sylgjum. Armandið vefst tvöfaldri lykkju um úlnliðinn. Box fylgir með (ekki upprunalegt)
Sígild Louis Vuitton Alma MM taska úr brúnu monogram leðri og gylltum málm. Stórt aðalhólf sem opnast að ofan með litlu hólfi innan í. Með töskunni fylgir lás og par af lyklum. Framleidd árið 2004. Nýjar eru að kosta 1800,00 € hjá Louis Vuitton sem er 258.000 isk í núverandi gengi.
Glæsileg og mjög eftirsótt svört Cassandre Matelassé hliðartaska frá Yves Saint Laurent. Taskan er úr kálfaleðri og er hönnuð eins og umslag, sem er klassísk hönnun frá YSL. Allur málmur er silfurlitaður og hefur hún eitt aðalhólf sem lokast með segulloka, einn vasa sem lokast með rennilás og annan sem er opinn. Sér hólf eru fyrir 6 kort. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Hrikalega falleg og eftirsótt Lady Dior taska fra Christian Dior í svörtu leðri með gylltum áherslum. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með auka renndu hólfi að innan. John Galliano hannaði töskuna árið 1997 og er hún því algjör vintage gersemi. Lady Dior töskurnar halda verðgildinu sínu mjög vel. Með töskunni fylgir auka leðuról og upprunalegur rykpoki.
Ótrúlega falleg Lady Dior taska frá Christian Dior í svörtu Patent leðri með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með einu auka renndu hólfi í innvolsi. Með töskunni fylgir upprunaleg ól og rykpoki. Lady Dior taskan er þekkt fyrir að hafa verið nefnd eftir prinsessu Diönu, sem sást oft með hana. Taskan heldur verðgildi sínu mjög vel.
Þessi klassíska, flotta og sívinsæla Neverfull taskan frá Louis Vuitton í glæsilegu rauðu Epi leðri með silfur málm. Taskan er í stærð MM og hefur eitt stórt aðalhólf sem lokast með krók. Þar ofan í er ein auka Pochette taska sem fylgir með. Framleidd árið 2013.
Vintage jakki fra Burberry London í ljósbrúnum lit. Að innan er jakkinn hálf fóðraður í klassiska nova check mynstrinu.
Vintage Mochila bakpoki frá Burberry í klassiska nova check mynstrinu og svörtum áherslum. Bakpokin opnast að ofan með rennilás og hefur eitt aðalhólf. Aftan á töskunni eru tvær höldur sem hægt er að stilla. Ofan á töskunni er svört halda. Canvasinn er gerður úr slitsterku pvc efni. Virkilega hentugur bakpoki sem ætti að rúma það allra helsta sem þú þarft með út í daginn.
Glæsileg og nett hliðartaska frá Gucci í drapplituðum lit með gylltum málm. Eitt aðalhólf sem opnast með smellu, þar ofan í eru nokkur hólf, eitt rennt og 16 hólf fyrir kortin. Með töskunni fylgir upprunalegur kassi, rykpoki og keðjuól sem hægt er að fjarlægja.