Grá aðsniðin ullarkápa frá Burberry með ekta loðfeldi á hettunni. Kápan er rennd upp að framan en rennilásinn er falinn. Framan á kápunni eru fjórar svartar leðurfestingar. Tvennir vasar eru að framan. 100% ull
Falleg hliðartaska frá Louis Vuitton í klassíska brúna Monogram canvas með ljósu leðri og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með tveimur auka opnum hólfum, eitt í innvolsi og eitt að framan. Stillanleg ól og var framleidd árið 2003. Upprunalegur rykpoki fylgir. H19 x L24 x W7cm
Hentug snyrtitaska frá Chanel í svörtu eftirsótta quilted lambaleðri. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með einu auka renndu hólfi og teygjum í innvolsi. Framleidd árið 1986 - 1988.
Rúmgóð Saleya taska frá Louis Vuitton í Damier Azur Canvas lit. Taskan er mjög hentug fyrir hversdagslegu hlutina og hefur eitt stór aðalhólf sem lokast með reinnilási. Auk þess eru tveir minni opnir vasar sem og krókur til að krækja lyklakippu í. Alltur málmur er gylltur á litinn. Taskan er frá árinu 2007. Vottorð fylgir útprentað með töskunni.
Klikkað sæt mini axlartaska úr ekta minkafeldi frá Prada. Taskan hefur eitt aðalhólf sem lokast með segulloka og að innan er einn flatur vasi sem hægt er að renna. 25 x 15 x 8cm
Töff belti frá Prada í svörtum lit með silfur sylgju. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með. 175 cm (68,9)
Hrikalega krúttleg Girly Boston taska frá Dior. Taskan er hvít og bleik á litinn í Dior monogram mynstrinu með sætum blómum og skrauti. Eitt aðalhólf er á henni og eitt rennt hólf í innvolsi. - Ath. ástand.
Svört oversized sólgleraugu frá Gucci í svartri umgjörð með gylltu ''GG'' mynstri á hliðunum.
Vintage Top Handle taska frá Christian Dior í svörtu cannage/vetteruðu efni og Patent leður handfangi. Eitt aðalhólf er á töskunni og tvö auka hólf í innvolsi.
Nettir og stílhreinir hvítir strigaskór frá Celine úr kálfaleðri með dökkbláum línum á hliðunum og látlausu lógó á tungunni. Skórnir kosta nýjir um $850 hjá Celine, þ.e. um 115.000 isk á núverandi kortagengi. Upprunlaegir rykpokar fylgja.
Svört 'BlackSuit' sólgleraugu með kringlóttri umgjörð og silfuráherslum og dökkur gleri. Með sólgleraugunum fylgir upprunalegt hulstur og klútur.
Fölbleik Joy Boston Microguccissima taska frá Gucci með gylltum áherslum. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf, í innvolsi í hliðunum eru tveir opnir flatir vasar og einn stærri flatur vasi sem hægt er að renna. Kálfaskinn leður. Á töskunni eru tvenn handföng en með töskunni fylgir stillanleg ól sem festist við handfanga festingarnar. Þessar týpur voru framleiddar á árunum 2016-2023. Með töskunni fylgir rykpoki.
Hreinsir sérstaklega hannaður fyrir ómeðhöndlað leður á borð við fræga Vachetta leðrið í Louis Vuitton töskum. Sérhæfður að því leyti að það þrífur leðrir vel án þess að dekkja það. Berið efnið á leður jafnt og þétt með klút. Leyfið að þorna eðlilega. Attikk mælir með að næra leðrið einnig, en endurtekin hreinsun á leðrinu getur valdið þurrk. Varist að efnið berist á húð, í munn eða augu. Eins er ráðlagt að prófa efnið á lítið áberandi stað til þess að varast óæskileg viðbrögð, sérstaklega ef leðrið er óþekkt, málað eða þess háttar. Hreinsinn má nota á ómeðhöndlað leður eins og Vachetta. Athugið að leðrið mun dökkna þegar hreinsinum er borið á það en það lýsist á ný þegar efnið þornar. Mjög ljóst leður (nýtt) gæti dökknað örlítið.
Glæsileg, vintage hliðartaska frá Christian Dior í eftirsótta, endutekna ''Dior'' mynstrinu. Allur málmur er gylltur, eitt rennt aðalhólf er á töskunni. Á rennilásnum er CD logo. ATH. Ástandslýsingu vel
Æðisleg svört vintage taska frá Chrisitan Dior úr cannage/vetteruðu canvas. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf og einn renndan innri vasa. Allur málmur er gylltur og fylgir með gyllt Dior charm/kippa. Taskan er vintage eða frá 1980.
Falleg vintage GG taska frá Gucci fallega brúnu litunum með gylltum málmi. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf sem hefur einn flatan renndan vasa að innan. Glæsileg vintage taska. Farið vel yfir ástand eins og við mælum alltaf með.
Æðisleg ljósgræn Hobo taska frá Bottega Veneta úr lambaskinni. Leðrið er hálffléttað og skartar langri fléttu meðfram ramma töskunnar. Stórt rennt aðalhólf með einu gamaldals símahólfi og renndum smáhlutavasa. Rykpoki fylgir.
Pigalle Spikes hælaskór frá Christian Louboutin í svörtum lit með silfur lituðum ''spikes'' og rauðum botn.
Gucci Ace strigaskórnir eru úr hvítu leðri og þekkjast samstundis á einkennandi grænum og rauðum röndum. Smáatriðin við hælana eru í sitthvorum litnum og býflugurnar á hliðunum eru gylltar. Skórnir eru úr hvítu leðri og skarta smáum "bee" (býflugum) prentum á hliðunum, sem gefa þeim mjög einkennandi útlit. Skórnir eru enn til sölu hjá Gucci og kosta nýjir $890 án vsk/VAT sem er ca. 122.000 isk
Falleg og vegleg Cabas Tote taska frá Saint Laurent úr rauðu leðri. Rennt aðalhólf með tveimur opnum vösum og litlum renndum vasa. Leðuról fylgir sem hægt er að krækja í hliðar töskunnar. Lítil leðuról hangir á öðru handfanginu og hefur að geyma lyklakippuhring. Loks er stórt málmlógó að framanverðu í ól sem er smellt yfir töskuna.
Vintage Zucca Jacquard Tote taska frá Fendi sem er samanbrjótanleg í klassíska Tobacco brúna litnum. Taskan hefur eitt aðalhólf sem lokast með einni smellu fyrir miðju. Taskan er rúmgóð og hægt er að brjóta saman töskuna og minnka hana þannig að það fari minna fyrir henni.
Lítil og nett Trousse Make up Pouch veski frá Louis Vuitton í Damier canvasnum með gylltum málmi. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf og með veskinu fylgir stutt ól sem er fjarlægjanleg. Taskan er frá árinu 2001.
Ómissandi Fendi peysa með FF mynstri. Peysan er svört og brún á litinn og er lengri að aftan heldur en framan.