Ótrúlega flott, varla notuð stígvél frá Gucci í svörtum lit með web skrauti að framan. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Tímalaus og glæsileg Single Flap axlar/hliðartaska frá Chanel í gömlu Jumbo stærðinni. Taskan opnast með klassíska CC turn-lock læsingunni að framan, þar fyrir innan er eitt rúmgott aðalhólf, einn flatur opinn vasi og einn flatur renndur vasi. Einnig er opinn flatur vasi að aftan. Taskan er í svörtu lambaleðri og er allt innvols einnig svart. Allir málmar gullhúðaðir með 24K gulli. Upprunalegur rykpoki og uppruna kort fylgir með. Framleidd á bilinu 1994-1996.
Classic Double Flap frá Chanel með tvítónuðum málmi að framan. CC lógóið framan á töskunni er bæði silfur- og 24K gullhúðaður málmur sem er einkennandi fyrir þennan safngrip, sem og aðrir málmar töskunnar. Taskan var framleidd í tveimur stærðum, 26 og 28 cm og er þessi taskan minni stærðin sem er enn erfiðara að fá. Þessi taska hefur verið vinsæl og eftirsótt meðal safnara vegna hennar einkennandi útlits og vegna þess að hún var einungis framleidd og seld í verslunum í París á sínum tíma. Taskan er í svörtu lambaleðri en er innvols vínrautt. Undir ytri flipanum er einn flatur vasi og undir innri flipanum er eitt rúmgott aðalhólf, einn renndur flatur vasi, tveirr smærri opnir vasar og einn stærri flatur fyrir framan aðal hólfið. Ytri flipinn opnast með CC turn-lock læsingu og innri flipinn með smellu. Aftan á töskunni er einn flatur vasi. Allir málmar eru gulltónaðir fyrir utan annað C-ið í lógóinu að framan. Keðjuólin er fléttuð með svörtu leðri. Framleidd um 1991-1994. Upprunakort og upprunalegur rykpoki fylgir með.
Eftirsótt og sígild Classic Double Flap frá Chanel í stærðinni Medium. CC turn-lock læsing að framan í 24K gullhúðuðum málmi sem og aðrir málmar töskunnar. Taskan er gerð úr svörtu lambaleðri með ísaumuðu tíglamynstri (e. quilted). Keðjuól er þrædd með svörtu leðri. Innvols er vínrautt og svart. Undir ystri flipanum er einn flatur vasi og örmjór renndur vasi í flipanum sjálfum. Undir innri flipanum er rúmgott opið aðalhólf, tveir flatir vasar og annar rýmri flatur vasi framan við aðalhólfið. Framleidd í kring um 1996-1997.
Falleg Matelassé Nappa taska frá Miu Miu í drapplituðum-bleikum lit af stærðinni Small. Taskan er úr leðri og innvols úr gráu tau efni. Allir málmar eru gulltónaðir. Eitt opið aðalhólf, yfir það leggst leður flipi með málmum og læsingu sem er smellt í festinguna að framan og opnast með því að þrýsta öðrum málm hringnum að miðju. Einnig er hægt að læsa því með lyklinum sem fylgir með og er í leður hulstri sem hangir á töskunni. Í aðal hólfinu er einn renndur vasi og einn opinn vasi. Aftan á töskunni er stílhreina Miu Miu lógóið. Á hliðunum eru málm smellur til að taka töskuna saman á hliðunum. Höldur eru þykkar úr fléttuðu leðri sem tryggir þægindi þegar haldið er á henni og með töskunni fylgir crossbody ól sem er hægt að hafa á og taka af eftir notkun.
Glæsileg leður axlartaska frá Miu Miu í rauðu leðri og með gull tónuðum málmum. Aðalhólfið opnast/lokast með segul smellu á leðurflipa. Aðalhólfið skiptist í tvö misstór opin hólf og einn renndan vasa þar á milli, einnig er renndur vasi í innra opna hólfinu. Framan á töskunni er lás sem hægt er að læsa/aflæsa og þrýsta til hliðar og opna þar annan nettan vasa. Með töskunni fylgir lykill á bandi og crossbody ól sem hægt er að taka af.
Heritage Espadrille skór frá Gucci í litunum "Lame Brown og beige GG". Rykpokar fylgja skónum.
Æðislegur trefill/sjal frá Burberry í svörtum lit og nova check mynstri með tveimur vösum.
Skemmtilegir runner strigaskór frá Balenciaga í hvítum, gráum og fjólubláum lit. Að framan er talan 37 í svörtu. Með skónum fylgir upprunalegur kassi.
Klikkað töff höfuðband frá Gucci í hvítum lit með rauðu og grænu web línunni. Upprunalegur kassi fylgir. 75% Polyester & 25% teygju efni.
Stór glæsileg Prada Shadowplay sólgleraugu í svörtum lit og með Prada áletrun í hvítum lit á báðum hliðum umgjarðar. Glerin eru í litnum Slate Gray. Upprunalegt gleraugna hulstur, kassi, bæklingur og gleraugnaklútur fylgir með. Sólgleraugun eru enn í sölu hjá Prada og kosta þar € 390 sem samsvara 56.265kr skv kortagengi í lok júní 2026.
Ótrúlega töff Le Cagole hliðartaska frá Balenciaga í xs, minnstu stærðinni, sem er jafn framt vinsælasta stærðin af Balenciaga töskum. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og keðjuól sem er hægt að hafa einfalda eða tvöfalda eftir því hvort hentar betur og krókur á öðrum endanum. Silfur tónaður málmur með svörtum áherslum. Fjarlægjanlegt klink veski og spegill fylgir með ásamt upprunalegum rykpoka. Taskan er úr svörtu, lituðu, lambaskinni frá haust/vetrar línunni 2021. Því er taskan framleidd seint 2021 eða mjög snemma 2022. Kostar ný í dag um 280.000 kr.
Geggjaður bolur frá Balenciaga í svörtum lit með rhinestone lógó að aftan.
Falleg Gucci Python axlartaska í snáka líkis leðri og með svörtu bambus haldfangi. Málmar eru gulltónaðir og er áfast lítið veski sem fylgir með.
Fallegt kortaveski frá Chanel í fjólubláum lit með gulltónuðu CC lógó að framan. Þrjú kortahólf og eitt aðeins dýpra í miðjunni sem gæti rúmað seðla eða kvittanir. Upprunalegur kassi fylgir með.
Falleg og stílhrein Tote taska frá Chanel í svörtu caviar leðri með vínrauðu tau innvolsi. Hægt er að renna aðal hólfi að miklu leiti, í hliðum aðal hólfsins er öðru megin renndur vasi og hinu megin tveir misstórir opnir vasar. Málmar töskunnar eru silfur litaðir og með töskunni fylgir CC bag charm sem er fjarlægjanlegt. Pochette fylgir og er á bandi sem er fast við töskuna en krókur er á enda þess og því hægt að taka Pochette af til að nota sér. Upprunakort og bæklingur fylgir með.
Bleikur silkiklútur frá Christian Dior með fallegri mynd af blómum í römmum ásamt fleiru skrauti.
Æðisleg Travel Line Tote taska frá Chanel í drapplituðu. Canvas töskunnar er úr Nylon og höldurnar úr leðri. Málmar eru gulltónaðir. Eitt opið aðalhólf og þar að innan eru tveir rúmgóðir renndir vasar og krókur á bandi til að festa t.d. lykla eða seðlaveski.
Hentug og flott tote taska frá Chanel í svörtu leðri með endurteknu upphleyptu áletri. Aðalhólfið er hægt að loka að hluta með segul smellu. Innvols er úr ljósu tau efni og eru þar tvö opin hólf, eitt rennt hólf og áfastur krókur á bandi til að festa t.d. lykla eða peningaveski. Með töskunni fylgir auka innvols sem er þó ekki frá Chanel en auka innvolsið er stíft sem aðstoðar við að halda formi töskunnar og ver innvols töskunnar fyrir blettum ofl. Einnig eru málm tappar undir töskunni til að verja botninn. Málmar eru allir silfur litaðir.
Æðislegur sólhattur frá Jacquemus í drapplituðum lit með silfur lógó. ´
Falleg og nett Favorite hliðartaska frá Louis Vuitton í brúnum monogram canvas með gylltum málm. Taskan opnast með segli að framanverðu og hefur að geyma eitt rúmgott aðalhólf ásamt flötum minni vasa þar fyrir innan. Leður crossbody ól sem hægt er að fjarlægja fylgir með. Framleidd 2016.
Dolce & Gabbana taska í bláu gallaefni með rauðbrúnu leðri og silfur málm. Eitt stórt aðallhólf með einu auka hólfi.