Veskin eru vinsæl hjá Attikk og koma til okkar í öllum stærðum og gerðum frá öllum helstu lúxusmerkjunum.
Klassískt Sarah veski frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur kortahólfum, einu opnu hólfi og öðru renndu. Framleitt árið 2003.
Fallegt kortaveski frá Chanel í fjólubláum lit með gulltónuðu CC lógó að framan. Þrjú kortahólf og eitt aðeins dýpra í miðjunni sem gæti rúmað seðla eða kvittanir. Upprunalegur kassi fylgir með.
Hentugt veski frá Louis Vuitton í svörtu leðri með LV lógó neðst. Tólf kortahólf eru á veskinu, fimm opin hólf, eitt rennt og ein teygja. Framleitt árið 2013.