Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!
Klassísk og eftirsótt Ophidia hliðartaska frá Gucci í GG Supreme canvas með Web (græn og rauð) línu niður miðjuna. Rennt rúmgott aðalhólf og auka rennt hólf að framan. Málmar gulltónaðir en GG málmur að framan er tví litaður (gull- og silfur tónaður). Brúnar leður áherslur og brún áföst leðuról sem er stillanleg.
Æðislega flott Palermo 2way axlartaska frá Louis Vuitton í stærðinni PM. Taskan er í monogram canvsa með Vachetta leður áherslum og gulltóna málmum. Eitt rennt aðalhólf, í innvolsi eru fjögur mis stór opin hólf. Með töskunni fylgir auka upprunalegur rykpoki og axlaról. Framleidd 2012 í Frakklandi.
Æðisleg hekluð LAX taska frá Chanel úr bómull og leðri í kremuðum lit. Málmur er silfraður og að framan er stór niðurhleypt CHANEL merking í leðrinu. Aðalhólfið er rennt og í innvolsi er einn minni renndur vasi. Að framan og aftan eru opnir vasar sem opnast og lokast með segullokun. Taskan er frá árinu 2005.
Klassísk og stílhrein axlartaska frá Gucci í GG Supreme canvas, með dökkbláu leðri og gulltóna málmum. Eitt rennt og rúmgott aðalhólf ásamt einum renndum vasa í innvolsi. Stillanleg, upprunaleg, axlaról sem er fjarlægjanleg og upprunalegur rykpoki fylgir með.
Hentug og sæt GG Supreme Sherry Line (blá og rauð) taska frá Gucci með fjarlægjanlegri leður ól svo hægt er að hafa hana sem axlartösku eða clutch. Leður er í dökkbláum lit og taskan annars í GG Supreme canvas. Tveir málm hankar aftan á töskunni til að krækja ólina í. Málmar hafa eflaust verið gull tónaðir en það er lítill litur eftur á málmum aftan á töskunni - sjá myndir. Eitt rennt aðalhólf og einn flatur vasi í innvolsi.
Gæðaleg og klassísk tote taska frá Prada úr súkkulaðibrúnu leðri. Aðalhólfið er rennt og í innvolsi er einn renndur vasi einnig. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Tímalaus lítil Gucci taska með GG Supreme mynstri og brúnu leðri. Aðalhólfið er rennt og í innvolsi er einn renndur vasi.
Klassíska 2way taskan frá Miu Miu í stórri stært og úr hvítu leðri. Málmur er gylltur og taskan skartar málmlógóinu á annarri hliðinni. Aðalhólfið er rennt en í innvolsi er einnig einn renndur vasi. Löng ól sem hægt er að taka af. Hentar undir fartölvu!
Æðisleg Monogram Bordeaux clutch/axlartaska frá Louis Vuitton. Þessi gerð er þekktust fyrir einfaldleikann við að breyta henni úr clutch í axlartösku og öfugt. Axlaról smellist af/á undir leðurflipanum, þar sem taskan opnast. Taskan opnast með þéttri smellu, þar fyrir innan er eitt rúmgott hólf og einn renndur flatur vasi.
Gullfalleg Jackie taska frá Gucci í grænu rúskinni, með grænu leður handfangi og öðrum leður áherslum. Taskan er með handsaumuðum útsaumi, kristölum og perlum. Málmar eru silfur tónaðir og er eitt opið aðalhólf og einn renndur vasi að innan.
Sturluð Paloma clutch frá Christian Louboutin í svörtu leðri með gylltum málm og rauðu innvolsi. Taskan opnast með segulloka undir leður flipanum, innvols er svart og rautt. Í innvolsi er eitt opið aðalhólf, 10 kortahólf, renndur vasi og tveir mis rúmgóðir flatir vasar. Gull tóna keðjuól fylgir með en er fjarlægjanleg með krókum, ólin er að hluta með svörtu og rauðu leðri fyrir aukin þægindi. Hægt er að nota ólina einfalda eða "krossa" undir leðurflipanum til að stytta hana og nota sem axlartösku. Einnig hægt að taka ólina af til að nota töskuna ólarlausa eða sem "clutch". Upprunalegur rykpoki og verslunarpoki fylgir með.
Æðisleg hliðartaska frá Louis Vuitton. Taskan opnast að framan undir svörtu og gylltu stóru LV lógói, þar undir er segulloki. Innvols er vínrautt og með einu rúmgóðu hólfi ásamt renndum vasa. Þar fyrir framan er opinn auka vasi. Málmar eru gulltóna, fyrir utan lógó að framan. Einnig er opinn flatur vasi aftan á töskunni. Gyllt keðjuól sem er að hluta með svörtu leðri fyrir aukin þægindi. Ólina er hægt að hafa einfalda eða tvöfalda. Fylgir upprunalegur rykpoki og verslunarpoki með.
Vinsæla Neverfull MM taskan frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu með rauðu innvolsi. Eitt stórt aðalhólf með einum rendum vasa. Hægt er að loka aðalhólfinu með krækju. Taskan er upphaflega hönnuð til að vera reversible, þ.e. hægt er að snúa henni á röngunni. Taskan kostar ný €1,550.00 hjá Louis Vuitton, eða um 222.688 isk á núverandi kortagengi. Um er að ræða vinsælustu töskuna frá Louis Vuitton í endursölu og fylgir pochette taska með. Framleidd á Spáni 2017.
Svört Gucci Marmont crossbody camera taska úr Matelassé leðri. Taskan lokast með rennilás, í aðalhólfinu er einn opinn vasi. Allur málmur er brass gylltur og upprunalegur rykpoki fylgir. Taskan kostar ný um 240.000 kr.
Falleg og nett Favorite hliðartaska frá Louis Vuitton í brúnum monogram canvas. Leður crossbody ól sem hægt er að fjarlægja, í aðalhólfinu er lítill opinn vasi.
Krúttleg og sæt mini taska frá Gucci í drapplituðum lit með endurtekna ''GG'' munstrið og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og eitt auka hólf.
Mjög eftirsótt og klassísk Soho taska frá Gucci í svörtu leðri með svörtu kögri á rennilás og gylltum áherslum. Upphleypt, útsaumað, GG lógó að framanverðu.
Æðisleg, lítil tote taska frá Prada í svörtu nylon efni og leðurhöldum. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt í innvolsi og eitt opið að framan.
Hentug og flott tote taska frá Prada í svörtu nylon efni, með silfur málm og leður höldum.
Æðislega bleik Medium Boy Flap taska frá Chanel úr endingargóða og klassíska Caviar leðrinu í bleikum lit. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl. Málmurinn er burstaður gylltur/kopar og fylgir upprunalegur rykpoki með töskunni. Sanngildiskortið vantar. Taskan var framleidd árið 2018.
Taskan er úr fallegu svörtu lambaskinni og skartar gylltum málmi. Aðalhólfið er rennt og hefur að geyma tvo minni vasa en annar þeirra er renndur og hinn opinn. Upprunalegur rykpoki og sanngildiskort fylgir. Taskan er framleidd á tímabilinu 1994-1996.
Æðisleg Chanel tote taska í svörtu lambaleðri með 24K gullhúðuðum málm. Eitt rennt aðalhólf og fjögur auka hólf, tvö rennd í innvolsi, eitt opið að aftan og annað að framan sem lokast með klassíska ''CC'' turn lock. Taskan er frá ca 1994 - 1996.
Geggjuð sæt Louis Vuitton Neverfull taska, Taskan er i stærð MM, í brúnum monogram canvas og með dökkbleiku fóðri. Pochette fylgir sem hægt er að krækja í töskuna innan frá. Taskan kostar 225.000 - 270.000 ný hjá Louis Vuitton en heldur verðgildi sínu og jafnvel hækkar í virði ef vel er farið með hana.
Æðisleg axlartaska frá Gucci í GG Supreme canvasnum með Web línu (rauð og græn) lóðrétt niður á framhlið töskunnar. Brún áföst leður ól ásamt sama leðri á köntum. Axlar ólina er hægt að stilla örlítið en það eru þrjú göt svo hægt er að stilla hana örlítið. Megnið af málminum er gylltur en rennilás er brúnn. Eitt rennt rúmgott aðalhólf ásamt flötum renndum vasa að innanverðu. Innvols er ljóst úr mjúku efni.