Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!
Noé Bucket taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf og stillanleg ól.
Hin sívinsæla og klassíska Vintage Keepall 55 taska frá Louis Vuitton í klassíska eftirsótta brúna Monogram canvasnum með gylltum málmi. Taskan passar í farangurshólf flugvéla og smellpassar í skottið fyrir ferðalögin. Upprunalegt leðurnafnspjald fylgir með. Eitt rennt stórt aðalhólf og taskan var framleidd á árinu 1989 og er því algjör vintage gullmoli
Flott Unisex Cube mittistaska frá Burberry í dökkbrúnu Check mynstri. Aðalhólf er rennt með einum opnum vasa en að aftan er einnig rennur smáhlutavasi. Ól er stillanleg og með fylgir kassi og rykpoki. Tilvalin gjöf.
Svört leður TB Burberry mittis taska úr lambaskinni með gylltum áherslum. Taskan opnast með flipa og lokast með segulloka og smellu. Taskan hefur eitt aðalhólf sem inniheldur tvenna flata vasa einn minni fyrir kort og annað aðeins stærri. Á leðrinu er útsaumað TB út um allt eins konar vatterað í leðrið og framan á er gyllt TB málmur.
Ótrúlega falleg tote taska frá Gucci í brúnu endurtekna ''GG'' mynstrinu í velvet efni og með web (rauð & græn) línu og tígrisdýr að framan. Eitt opið aðlhólf sem lokast með smellu, Með töskunni fylgir veski með í sama mynstri og upprunalegur rykpoki.
Luco Tote taska frá Louis Vuitton í klassíska monogram mynstrinu. Í aðalhólfinu er einn stór renndur vasi og annar opinn. Tveir minni opnir vasar sem flestir snjallsímar myndu passa í og gamaldags símahólf. Rykpoki fylgir.
Glæný og ónotuð GG Supreme Ophidia mittistaska frá Gucci með hvítu leðri og burstuðum gulllituðum málmi. Eitt stórt aðalhólf með segullokun. Uppranlegur rykpoki og kassi fylgja.
Ótrúlega flottur Michael bakpoki frá Louis Vuitton í Damier Graphite Noir canvas og silfur málm. Bakpokinn skiptist í þrjú hólf, eitt rennt aðalhólf og tvö auka rennd hólf að framan. Einnig er tölvuhólf í innvolsi og auka opin hólf. Taskan var framleidd árið 2014.
Skemmtileg Papillon taska frá Louis Vuitton í stærð 30. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf og gylltar áherslur. Framleidd árið 2003.
Einstaklega skemmtileg og falleg Claudia taska frá Louis Vuitton í hvítu multicolore monogram mynstri, hönnuð af Takashi Murakami. Fóðrið er rautt, með litlum opnum vasa og gamaldags símahólfi, beint frá 2008.
Falleg tote taska frá Louis Vuitton í glæsilegu grænu Epi leðri með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt og eitt opið, einnig er krókur í innvolsi. Taskan var framleiddí nóvember 1995 í Frakklandi.
Stór og hentug skjalataska/ferðataska frá Burberry. Eitt rennt aðalhólf með þremur hólfum, ól, lás og lykill fylgir með.
Glæsileg Top Handle taska frá Burberry í svörtu leðri með Nova Check línu. Eitt rennt aðalhólf er á töskunn og fjögur opin hólf, eitt að aftan og þrjú í innvolsi. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Falleg og hentug Boy taska frá Chanel í svörtu slitsterku caviar leðri með silfur málm. Eitt aðalhólf sem opnast með flipa, þar ofan í er eitt auka hólf. Taskan var framleidd eftir 2021.
Klikkað falleg Capucines taska frá Louis Vuitton. Taskan er með opnu aðalhólfi þar sem Python flipi leggst yfir að hluta og er hægt að smeygja inn fyrir leður rönd að innan verðu til að halda í stað. Á enda flipans er fallega LV blómið í gylltum málmi. Undir flipanum er rúmgott aðalhólf sem er tvískipt og í innra hólfinu er flatur vasi. Python haldfang og gylltir málmar. Breið svört leðuról sem er hægt að fjarlægja, upprunalegur rykpoki og upprunalegur kassi fylgir með. Framleidd í lok febrúar 2020 í Frakklandi.
Skemmtileg og falleg bucket taska frá Gucci í svörtu leðri með gylltum málm og bambus haldfangi. Með töskunni fylgir gyllt, fjarlægjanleg keðjuól og opnast taskan með smellu.
Glæsileg Boy taska frá Chanel í svörtu slitsterku caviar leðri með gylltum málm. Eitt aðalhólf sem opnast með flipa, þar ofan í er eitt auka hólf. Taskan er í stærð Medium og var framleidd árið 2018. Upprunalegur rykpoki með.
Vintage taska frá Gucci í Supreme mynstrinu með web (rauð og græn) línunni að framan og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf sem skiptist í þrjú hólt, í einu hólfinu er auka rennt hólf.
Camera taska frá Gucci í Supreme mynstrinu með brúnu leðri og silfur málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka renndu hólfi.
Hentug, vintage hliðartaska frá Gucci í Supreme mynstrinu með web skrauti að framan og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni.
Flott, vintage hliðartaska frá Gucci í dökkbláu leðri með Supreme mynstrinu og Web (blá og rauð) línu lárétt niður miðja töskuna. Eitt rennt aðalhólf með einu auka hólfi að framan. Allur málmur gylltur.
Hentugt snyrtiveski í Monogram canvas frá Louis Vuitton. Eitt aðalhólf sem er rennt, þar fyrir innan er eitt opið hólf og teygja sem er saumuð í hina hliðina til að mynda þrískipta teygju sem getur þá haldið snyrtivörum uppréttum. Framleidd í Frakklandi í apríl 1983. Ath ástand.
Glæsileg, eftirsótt Bandoulière frá Louis Vuitton í monogram canvas og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og fylgir ól með sem hægt er að fjarlægja. Afar hentug taska fyrir ferðalagið, létt og sveigjanleg. Taskan er frá árinu 2000 en fæst enn hjá Louis Vuitton á £2,000.00, eða 330,045 isk á núverandi gengi.
Fjölhæf Pouch clutch taska frá Gucci í dökkbláu GG Supreme mynstri úr Ophidia línunni. Virkar vel sem clutch taska eða jafnvel undir snyrtivörurnar. Í innvolsi er einn lítill vasi. Upprunalegur rykpoki fylgir.