Franska tískuhúsið Chanel er eitt af stærri lúxus merkjum í heimi. Chanel var stofnað árið 1910 af Coco Chanel. Töskurnar frá Chanel eru einstaklega vinsælar og hækka margar þeirra í verði eftir því sem þær verða eldri.
Tímalaus og glæsileg Single Flap axlar/hliðartaska frá Chanel í gömlu Jumbo stærðinni. Taskan opnast með klassíska CC turn-lock læsingunni að framan, þar fyrir innan er eitt rúmgott aðalhólf, einn flatur opinn vasi og einn flatur renndur vasi. Einnig er opinn flatur vasi að aftan. Taskan er í svörtu lambaleðri og er allt innvols einnig svart. Allir málmar gullhúðaðir með 24K gulli. Upprunalegur rykpoki og uppruna kort fylgir með. Framleidd á bilinu 1994-1996.
Classic Double Flap frá Chanel með tvítónuðum málmi að framan. CC lógóið framan á töskunni er bæði silfur- og 24K gullhúðaður málmur sem er einkennandi fyrir þennan safngrip, sem og aðrir málmar töskunnar. Taskan var framleidd í tveimur stærðum, 26 og 28 cm og er þessi taskan minni stærðin sem er enn erfiðara að fá. Þessi taska hefur verið vinsæl og eftirsótt meðal safnara vegna hennar einkennandi útlits og vegna þess að hún var einungis framleidd og seld í verslunum í París á sínum tíma. Taskan er í svörtu lambaleðri en er innvols vínrautt. Undir ytri flipanum er einn flatur vasi og undir innri flipanum er eitt rúmgott aðalhólf, einn renndur flatur vasi, tveirr smærri opnir vasar og einn stærri flatur fyrir framan aðal hólfið. Ytri flipinn opnast með CC turn-lock læsingu og innri flipinn með smellu. Aftan á töskunni er einn flatur vasi. Allir málmar eru gulltónaðir fyrir utan annað C-ið í lógóinu að framan. Keðjuólin er fléttuð með svörtu leðri. Framleidd um 1991-1994. Upprunakort og upprunalegur rykpoki fylgir með.
Eftirsótt og sígild Classic Double Flap frá Chanel í stærðinni Medium. CC turn-lock læsing að framan í 24K gullhúðuðum málmi sem og aðrir málmar töskunnar. Taskan er gerð úr svörtu lambaleðri með ísaumuðu tíglamynstri (e. quilted). Keðjuól er þrædd með svörtu leðri. Innvols er vínrautt og svart. Undir ystri flipanum er einn flatur vasi og örmjór renndur vasi í flipanum sjálfum. Undir innri flipanum er rúmgott opið aðalhólf, tveir flatir vasar og annar rýmri flatur vasi framan við aðalhólfið. Framleidd í kring um 1996-1997.
Æðisleg Travel Line Tote taska frá Chanel í drapplituðu. Canvas töskunnar er úr Nylon og höldurnar úr leðri. Málmar eru gulltónaðir. Eitt opið aðalhólf og þar að innan eru tveir rúmgóðir renndir vasar og krókur á bandi til að festa t.d. lykla eða seðlaveski.
Falleg og stílhrein Tote taska frá Chanel í svörtu caviar leðri með vínrauðu tau innvolsi. Hægt er að renna aðal hólfi að miklu leiti, í hliðum aðal hólfsins er öðru megin renndur vasi og hinu megin tveir misstórir opnir vasar. Málmar töskunnar eru silfur litaðir og með töskunni fylgir CC bag charm sem er fjarlægjanlegt. Pochette fylgir og er á bandi sem er fast við töskuna en krókur er á enda þess og því hægt að taka Pochette af til að nota sér. Upprunakort og bæklingur fylgir með.
Æðisleg hekluð LAX taska frá Chanel úr bómull og leðri í kremuðum lit. Málmur er silfraður og að framan er stór niðurhleypt CHANEL merking í leðrinu. Aðalhólfið er rennt og í innvolsi er einn minni renndur vasi. Að framan og aftan eru opnir vasar sem opnast og lokast með segullokun. Taskan er frá árinu 2005.
Æðislega bleik Medium Boy Flap taska frá Chanel úr endingargóða og klassíska Caviar leðrinu í bleikum lit. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl. Málmurinn er burstaður gylltur/kopar og fylgir upprunalegur rykpoki með töskunni. Sanngildiskortið vantar. Taskan var framleidd árið 2018.
Single Flap hliðartaska frá Chanel í svörtu lambaleðri með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf með einu auka renndu hólfi