Franska tískuhúsið Chanel er eitt af stærri lúxus merkjum í heimi. Chanel var stofnað árið 1910 af Coco Chanel. Töskurnar frá Chanel eru einstaklega vinsælar og hækka margar þeirra í verði eftir því sem þær verða eldri.
Ótrúlega falleg tote taska frá Chanel í brúnu slitsterku Caviar leðri með gylltum 24k húðuðum málmi. Eitt opið aðalhólf sem lokast með klassíska ''CC'' snúnings málminum. Þrjú auka hólf, eitt rennt og eitt að aftan. Authenticity kort fylgir með.
Falleg og hentug Boy taska frá Chanel í svörtu slitsterku caviar leðri með silfur málm. Eitt aðalhólf sem opnast með flipa, þar ofan í er eitt auka hólf. Taskan var framleidd eftir 2021.
Glæsileg Boy taska frá Chanel í svörtu slitsterku caviar leðri með gylltum málm. Eitt aðalhólf sem opnast með flipa, þar ofan í er eitt auka hólf. Taskan er í stærð Medium og var framleidd árið 2018. Upprunalegur rykpoki með.
Single Flap hliðartaska frá Chanel í svörtu lambaleðri með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf með einu auka renndu hólfi
Hentug snyrtitaska frá Chanel í svörtu eftirsótta quilted lambaleðri. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með einu auka renndu hólfi og teygjum í innvolsi. Framleidd árið 1986 - 1988.