Elskar þú merkjavörur? Attikk hefur hent í gang áskriftarkerfi fyrir viðskiptavini Attikk og er með kynningartilboð á áskriftinni. Áskrift á Attikk.is er tvenns konar en hvoru tveggja veita þér víðtækari aðgang að vöruúrvali og öðrum kostum á bakvið tjöldin hjá okkur.

Við bjóðum upp á Merkjavörusjéní áskrift fyrir þá sem vilja engu af missa. Einkum bjóðum við upp á aðeins takmarkaðri en ódýrari áskrift fyrir áhugamenn.

Vaktin
Ertu búin/n að vera að dreyma um ákveðna Louis Vuitton tösku?  Sem áhugamaður í áskrift getur þú skráð 5 vaktanir eftir vörum sem þú ert að bíða eftir að komi í sölu. Skráðu ákveðna vöru á vaktina hjá þér og þú færð tilkynningu 2 klukkustundum áður en sú vara kemur í sölu hjá okkur.
Ef það er ekki nóg fyrir þig þá getur þú uppfært þig í Merkjavöruséní áskriftina okkar. Þar færðu ótakmarkaðar vaktanir og færð þá tilkynningu um að vara á vaktinni sé á leið í sölu UM LEIÐ og hún er skráð í kerfið hjá okkur.

Forgangur
Ef þú ert virkilega þreytt/ur á að missa af draumavörunni þinni af því að einhver annar virðist alltaf vera skrefi á undan, þá fá áskrifendur Attikk einnig forgang þegar nýjar vörur koma í sölu hjá okkur. Allar nýjar vörur í Attikk fara í sölu á slaginu 20:00 á attikk.is, felst alla daga.
Sem áhugamaður í áskrift getur þú hins vegar séð nýjar vörur á leiðinni í sölu kl 18:00 og verslað þær kl. 19:00, klukkustund fyrr en allir aðrir.
En ef þú vilt vera lang fyrst/ur þá getur þú séð nýjar vörur kl 17:00 og verslað þær 2 klst áður en þær fara í almenna sölu, í áskrift sem merkjavöruséní.

Á bakvið tjöldin
Ertu forvitin/n um hvaða vörur eru á leiðinni til okkar? Í áskrift hjá Attikk færðu innsýn á bakvið tjöldin. Sem merkjavöruséní getur þú séð hvaða vörur eru á leiðinni í sölu hjá okkur um leið og hún er skráð í kerfið hjá okkur.
Í sömu áskrift getur þú einnig fengið að sjá allar skráðar verðbreytingar á vörunum okkar aftur í tímann. Var varan hækkuð eða lækkuð í verði frá því hún kom inn? Nú getur þú séð það. Þessi hlunnindi eru ekki aðgengileg fyrir áhugamenn í áskrift.

Hlunnindi sem seljandi hjá Attikk
Ef þú ert meira í því að selja vörur hjá Attikk frekar en að versla hjá okkur, þá getur áskriftin samt nýst þér vel. Sem dæmi þá tekur Attikk 5 prósentustigum lægri þóknun hjá þeim sem eru í áskrift sem merkjavöruséní. Í sömu áskrift fá áskrifendur einnig aukalega 50% afslátt af einni vottun á mánuði, sama hver niðurstaða hennar er. Þetta á ekki við um áhugamenn í áskrift.

Viltu vita hvað sambærilegar vörur hafa verið að seljast á í Attikk? Í áskrift getur þú leitað að seldum vörum í gagnagrunni Attikk. Sem áhugamaður getur þú aðeins leitað uppi sölum 30 dögum aftur í tímann en sem merkjavöruséní eru engin takmörk.


Nældu þér í áskrift á afslætti í dag! Þú getur skráð þig hér.