Æðislegur glitrandi Monogram trefill frá Louis Vuitton úr Mohair og ullarblöndu. Trefillinn er eins ljósgrár með dökkgráu Monogram mynstri og glimmerþræðum í efninu ásamt pallíettum. 39% Mohair 22%Nylon 15% Bómull 11% Akrýl 5% Ull 5% Polýester 2% Rayon
Vinsæla Neverfull MM taskan frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu með bleiku innvolsi. Upprunalegt Pochette veski fylgir sem er krækt í töskuna að innan. Taskan var framleidd árið 2018. Eitt stórt aðalhólf með einum renndum vasa. Hægt er að loka aðalhólfinu með krækju. Taskan er upphaflega hönnuð til að vera reversible, þ.e. hægt er að snúa hana á röngunni einnig. Taskan kostar ný $2,170.00 hjá Louis Vuitton, eða um 270,035 isk á núverandi kortagengi. Um er að ræða vinsælustu töskuna frá Louis Vuitton í endursölu. Kemur með upprunalegum rykpoka.
Ótrúlega sæt tote taska frá Fendi í brúna "Tobacco Zucca" canvasnum með ísaumað tígul mynstur (e. Quilted). Taskan er aðeins fóðruð og því kjörin tote taska fyrir íslenskt veðurfar. Eitt rennt aðalhólf og einn stór, auka, renndur vasi þar fyrir innan. Lítil opin auka hólf í hliðunum. Höldur eru úr svörtu glansandi leðri og á öðru haldfanginu er fjarlægjanlegt stórt "FF" málm skraut. Efri brún töskunnar er í sama Patent leðri.
Æðisleg Ophidia taska, með Web línu (rauð og græn) fyrir miðju, frá Gucci í GG Supreme canvasnum af stærðinni Small. Taskan opnast með smellu undir flipanum (e. flap), þar undir er eitt rúmgott aðalhólf, einn frekar rúmur flatur vasi þar fyrir framan. Í aðalhólfinu er einn flatur renndur vasi og opinn flatur vasi. Allur málmur er gylltur. Brúnt leður á slitflötum og er stillanlega ólin í sama leðri. Upprunalegur rykpoki og kassi fylgir með. Kostar ný um 275.000kr.
Sívinsæl Keepall Bandoulière frá Louis Vuitton í monogram canvas, með ljósu Vachetta leðri, af stærðinni 55. Með töskunni fylgir allt það helsta svo sem ól, nafnspjald í leður hulstri, lítið belti til að festa saman höldurnar, lás og lykill. Þessi stærð er fulkomin fyrir langa helgi út úr bænum. Framleidd í október 2001, í Frakklandi.
Saint Cloud taska frá Louis Vuitton í monogram canvas og með gylltum málm.Taskan opnast með flipa og helst lokuð með smellu. Eitt rúmgott aðalhólf og einn renndur, flatur, vasi að innan ásamt opnum flötum vasa að aftan. Merkilegt þó er að Saint Cloud töskurnar frá Louis Vuitton eru með þeim fyrstu crossbody töskum sem þau byrjuðu að framleiða um 1960, fullkomin hversdags taska sem getur bæði klæðst yfir öxl eða þvert á líkamann sem "handfrjáls" taska. Þessi tiltekni gersemi var framleiddur í apríl 1983.
Æðisleg Babylone tote taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með Vachetta leður áherslum. Rúmgott, rennt, aðalhólf. Þar fyrir innan er einn renndur flatur vasi, einn opinn flatur vasi og tvö mjó t.d. fyrir penna eða eitthvað álíka í stærð. Framleidd í maí 1996 í Frakklandi. Þessi tiltekna hönnun er hætt í framleiðslu og því sannur fjársjóður sem hér um ræðir. Þó er hægt að fá nýja hönnun undir sama nafni í forpöntun hjá LV um þessar mundir þar sem Babylone töskurnar hafa ekki minkað í vinsældum þrátt fyrir framleiðslu stöðvun.
Gucci Soho taska frá Gucci í svörtu leðri, með "long flap" eða stórum flipa sem lokar töskunni. Soho nafnið kemur til vegna ísaumaðra "GG" merkisins að framanverðu á töskunni sem gefur þetta klassíska og flotta útlit. Málmar, og keðjuól, eru gylltir. Svart leður kögur, sem er fjarlægjanlegt, á málm lykkju á hliðinni. Eitt rúmgott aðalhólf sem lokast með smellu undir flipanum (sem leggst yfir töskuna) og þar inn af er eitt opið hólf og einn renndur, flatur, vasi.
Æðisleg axlartaska frá Gucci í GG Supreme canvasnum með Web línu (rauð og græn) lóðrétt niður á framhlið töskunnar. Brún áföst leður ól ásamt sama leðri á köntum. Axlar ólina er hægt að stilla örlítið en það eru þrjú göt svo hægt er að stilla hana örlítið. Megnið af málminum er gylltur en rennilás er brúnn. Eitt rennt rúmgott aðalhólf ásamt flötum renndum vasa að innanverðu. Innvols er ljóst úr mjúku efni.
Vintage Gucci Ophidia hliðartaska, í GG Supreme canvas með Web (græn og rauð) línu fyrir miðju. Málmar gylltir og rennilásar úr brúnu plasti sem lengir líftíma þess án fyrirhafnar. Gyllt interlocking Gucci logo á enda rennilásanna beggja. Taskan opnast með rennilás að ofan. Renndur vasi að framan. Stillanleg cross body ól úr brúnu leðri.
Klassísk og rúmgóð Hobo axlartaska frá Fendi sem er rennd að ofan og er með einum renndum vasa að innanverðu. Sígilt Zucca monogram mynstur og dökkbrúnar leðurhöldur.
Æðisleg og rúmgóð axlartaska frá Prada í Tessuto Nylon efni. Málmur gylltur og keðjuól þrædd með leðri ásamt leðri fyrir miðju ólar til að auka þægindi. Þrískipt hólf þar sem tvö eru opin og rennt hólf á milli þeirra. Einnig er einn renndur vasi innan í aftara opna hólfinu. Fullkomin taska fyrir hvers dags erindi.
Auka ól frá Louis Vuitton úr svörtu Nylon efni, með Vachetta áherslum við endana og Monogram klinkbuddu sem hægt er að krækja af/á ólina. Sambærileg ól kostar ný 127.000 kr
Falleg og vinsæl Gucci Marmont hliðartaska í svörtu Matelassé leðri með ísaumuðu hjarta á bakhlið. Í töskunni er eitt aðalhólf sem opnast með smellu, og lítill opinn vasi að innan. Allur málmur er gylltur.
Æðisleg Hobo taska frá Gucci úr brúnu monogram efni með tveimur renndum vösum að framanverðu. Aðalhólfið er rennt og hefur að geyma einn renndan minni vasa.
Glæsileg Ophidia mini hliðartaska frá Gucci í svörtu leðri með gylltum málm og Web (rauð og græn) línu að framan og aftan. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með einu auka hólfi að innan og stutt gyllt keðja með smá krók. Framan á töskunni er flatur renndur vasi. Stillanleg ól er á töskunni og fylgir rykpoki með. Hentug taska sem rúmar það allra helsta sem þú þarft með út í daginn.
Ótrúlega falleg tote taska frá Céline í dökkum lit með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf sem skiptist í þrjú hólf, tvö opin og eitt rennt á milli.
Skemmtilegt vesti frá Burberry í dökkum lit, með Nova Check mynstrinu að innan. Hægt er að nota vestið á röngunni.
Æðislegur kjóll frá Burberry í klassíka nova check mynstrinu. Kjóllinn er úr 100% ull en fóðrið innan í kjólnum er úr unnum bómul (cupro). Kjóllinn er renndur upp að aftan.
Svartar joggingbuxur frá Prada sem skarta vínrauðu nylon efni meðfram vinstri fæti að framanverðu. Neðst á skálmum er franskur rennilás með gúmmílógó. Tveir vasar að framanverðu og einn rassvasi - stillanlegt band í mitti.
Falleg og hentug tote taska frá Fendi í klassíska og eftirsótta Zucca monogram mynstrinu. Með dökkbrúnum leðurhöldum og einum renndum vasa í innvolsi.