Eitt af vinsælli lúxus merkjum hjá íslendingum þessa dagana er Gucci. Hjá Attikk kemur mikið af vörum frá þeim í hverri einustu viku og eru þær oft á tíðum jafn fljótar að fara í hendur nýrra eiganda. Verandi vinsælt merki er einnig algengt að eftirlíkingar séu í umferð, viðskiptavinir Attikk geta verið vissir að allar Gucci vörur sem seldar eru hjá Attikk séu ekta þar sem þær gangast allar undir ítarlega skoðun hjá sérfræðingum.
Glæsileg tölvutaska frá Gucci í dökkbláu supreme mynstri með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka hólfi ofan í. Ath. ástand
Ótrúlega hentug og falleg hliðartaska frá Gucci í svörtu kálfaleðri með gylltum málm. Tvö opin aðalhólf með einu auka hólfi. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Falleg og hentug hliðartaska frá Gucci í taupe stóru endurteknu ''GG'' mynstri (Jumbo GG) og silfur málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og eitt auka hólf í innvolsi. Tvær ólar fylgja töskunni, ein crossbody og ein clutch ól - sem færi yfir úlnlið.
Klikkað flott Blondie Bowler leðurtaska frá Gucci með stóru gulltóna málmlógó að framanverðu. Taskan er rúmgóð með einu stóru renndu aðalhólfi og einum minni renndum vasa.
Vegleg Ipanema GM taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Einn opinn vasi að framanverðu. Aðalhólf er rennt og hefur að geyma tvo minni opna vasa að innanverðu.
Töff vintage Tote taska frá Gucci í klassísku Monogram Canvas með dökkbrunu leðri. Taskan skartar stóru Horsebit málmskrauti að framanverðu ásamt sígildu Web línunum. Málmur er gylltur og innvolst lokast með segulsmellu en að innanverðu er einn renndur vasi.
Fjölhæf Pouch clutch taska frá Gucci í dökkbláu GG Supreme mynstri úr Ophidia línunni. Virkar vel sem clutch taska eða jafnvel undir snyrtivörurnar. Í innvolsi er einn lítill vasi. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Klikkað flott Off The Grid Duffle taska frá Gucci. Taskan er úr svörtu nylon-efni með endurteknu „GG“ mynstri og glæsilegu gylltu „Gucci“ lógói að framan. Taskan er með eitt rúmgott rennt aðalhólf og tveimur auka hólfum að innan, sem gerir hana fullkomna bæði fyrir stuttar ferðir, ræktina eða sem stílhreina helgartösku. Með töskunni fylgir löng axlaról, þannig að auðvelt er að bera hana bæði yfir öxl eða í hendi – eftir tilefni og stíl.
Æðisleg og nýleg Aphrodite axlartaska frá Gucci í stærðinni small. Taskan er úr svörtu kúaleðri og með brasslituðum málm. Með töskunni fylgir brasslituð keðjuól sem er svipað löng og leðurólin en vinsælt er að nota báðar samtímis. Hægt er að fjarlægja leðurólina en önnur lengri svört leðuról fylgir einnig. Aðalhólfið er rennt og í innvolsi eru tveir litlir kortavasar. Með töskunni fylgir rypoki og kassi - tilvalin gjöf.
Vintage Clutch taska frá Gucci í GG Supreme útgáfu og skartar Web flipa (grænu og rauðu línunum) að framanverðu. Eitt stórt aðalhólf með minni vasa sem er hægt að smella.
Skemmtileg, vintage jakkafatataska frá Gucci í Supreme mynstrinu. Eitt hólf sem hentar vel fyrir skópör og annað stærra fyrir fatnað, þar eru tvö herðatré sem hægt er að hengja flíkurnar á. Lás og lyklar fylgja með.
Mjög eftirsótt og klassísk Soho taska frá Gucci í svörtu leðri með gylltum áherslum. Á töskunni er Ísaumað upphleypt GG lógó að framanverðu og á rennilás er leðurkögur. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf sem hefur tvo innri flata vasa. ATH ÁSTAND!
Skemmtileg taska frá Gucci í mintu bláum lit með silfur málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með tveimur kortahólfum ofan í.
Ótrúlega falleg og klassísk Jackie hobo axlartaska frá Gucci í ljósu taui með svörtum leðurkanti og silfurlituðum málmi. Líkleg árgerð ca. 1998–2004. Aðalhólfið er rúmgott með rennilásvasa í innvolsi. Lokast með einkennandi Jackie lock læsingunni að framan.
Gucci Dionysus Super Mini Bag úr rauðu grained leðri. Taskan er með silfurlitaðri keðju og „Dionysus“ málm skeifu að framan. Lokast með flipa og læsist með segulloka undir flipanum. Að innan er taufóður og eitt hólf. Keðjuna er hægt að fjarlægja. Með töskunni fylgir rykpoki og kassi.
Glæsileg og nett hliðartaska frá Gucci í drapplituðum lit með gylltum málm. Eitt aðalhólf sem opnast með smellu, þar ofan í eru nokkur hólf, eitt rennt og 16 hólf fyrir kortin. Með töskunni fylgir upprunalegur kassi, rykpoki og keðjuól sem hægt er að fjarlægja.
Ótrúlega falleg og krúttleg, lítil Boston taska frá Gucci í Supreme mynstrinu. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og fylgir bæði leðuról og upprunalegur rykpoki.
Æðsileg Web Sylvie axlartaska frá Gucci í stærðinni small. Úr off white sléttu leðri með gylltum málmi. Taskan kostaði ný $2590, eða um 330.000isk á núverandi kortagengi. Upprunalegi borðinn fylgir með sem hægt er að hengja á töskuna (skraut) og upprunalegur rykpoki.
Virkilega falleg Marmont Aria Camera taska frá Gucci í ljósgráum lit með gráum GG málmi. Í töskunni er eitt rennt aðalhólf sem opnast að ofan sem inniheldur eitt opið hólf í innvolsi. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki, kassi og innkaupapoki.
Klikkuð og eftirsótt limited edition hliðartaska frá Gucci. Taskan er í bleikum lit með svarta endurtekna ''GG'' mynstrinu, skreytt með rauðum hjörtum og gulum stjörnum. Að framan er falleg hestaskífa með tígrisdýra andlit og kristölum. Taskan opnast með smellu og skiptist aðalhólfið í tvö hólf, eitt rennt hólf er í miðju og eitt opið að framan.
Fölbleik Joy Boston Microguccissima taska frá Gucci með gylltum áherslum. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf, í innvolsi í hliðunum eru tveir opnir flatir vasar og einn stærri flatur vasi sem hægt er að renna. Kálfaskinn leður. Á töskunni eru tvenn handföng en með töskunni fylgir stillanleg ól sem festist við handfanga festingarnar. Þessar týpur voru framleiddar á árunum 2016-2023. Með töskunni fylgir rykpoki.
Falleg vintage GG taska frá Gucci fallega brúnu litunum með gylltum málmi. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf sem hefur einn flatan renndan vasa að innan. Glæsileg vintage taska. Farið vel yfir ástand eins og við mælum alltaf með.