Eitt af vinsælli lúxus merkjum hjá íslendingum þessa dagana er Gucci. Hjá Attikk kemur mikið af vörum frá þeim í hverri einustu viku og eru þær oft á tíðum jafn fljótar að fara í hendur nýrra eiganda. Verandi vinsælt merki er einnig algengt að eftirlíkingar séu í umferð, viðskiptavinir Attikk geta verið vissir að allar Gucci vörur sem seldar eru hjá Attikk séu ekta þar sem þær gangast allar undir ítarlega skoðun hjá sérfræðingum.
Æðisleg Ophidia taska, með Web línu (rauð og græn) fyrir miðju, frá Gucci í GG Supreme canvasnum af stærðinni Small. Taskan opnast með smellu undir flipanum (e. flap), þar undir er eitt rúmgott aðalhólf, einn frekar rúmur flatur vasi þar fyrir framan. Í aðalhólfinu er einn flatur renndur vasi og opinn flatur vasi. Allur málmur er gylltur. Brúnt leður á slitflötum og er stillanlega ólin í sama leðri. Upprunalegur rykpoki og kassi fylgir með. Kostar ný um 275.000kr.
Falleg og vinsæl Gucci Marmont hliðartaska í svörtu Matelassé leðri með ísaumuðu hjarta á bakhlið. Í töskunni er eitt aðalhólf sem opnast með smellu, og lítill opinn vasi að innan. Allur málmur er gylltur.
Sæt, lítil bucket taska frá Gucci í klassíska endurtekna ''GG'' mynstrinu með web (rauð og græn) línunni að neðan. Eitt aðalhólf sem lokast með togbandi og stillanleg axlaról. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með.
Skemmtileg top handle taska frá Gucci í svörtu leðri með rauðum köntum og gylltum málm. Eitt aðalhólf sem opnast með smellu, þar ofan í er eitt auka opið hólf í innvolsi. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki og fjarlægjanleg ól.
Glæsileg Soho Tote taska frá Gucci í hvítum lit með gylltum málm og áhangandi kögri að framan. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með þremur auka hólfum, tveimur opnum og einu renndu, upprunalegur rykpoki fylgir með. Fullkomin hversdagstaska!
Vegleg Ipanema GM taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Einn opinn vasi að framanverðu. Aðalhólf er rennt og hefur að geyma tvo minni opna vasa að innanverðu.
Klikkað flott Blondie Bowler leðurtaska frá Gucci með stóru gulltóna málmlógó að framanverðu. Taskan er rúmgóð með einu stóru renndu aðalhólfi og einum minni renndum vasa.
Klikkað flott Off The Grid Duffle taska frá Gucci. Taskan er úr svörtu nylon-efni með endurteknu „GG“ mynstri og glæsilegu gylltu „Gucci“ lógói að framan. Taskan er með eitt rúmgott rennt aðalhólf og tveimur auka hólfum að innan, sem gerir hana fullkomna bæði fyrir stuttar ferðir, ræktina eða sem stílhreina helgartösku. Með töskunni fylgir löng axlaról, þannig að auðvelt er að bera hana bæði yfir öxl eða í hendi – eftir tilefni og stíl.
Fjölhæf Pouch clutch taska frá Gucci í dökkbláu GG Supreme mynstri úr Ophidia línunni. Virkar vel sem clutch taska eða jafnvel undir snyrtivörurnar. Í innvolsi er einn lítill vasi. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Vintage Clutch taska frá Gucci í GG Supreme útgáfu og skartar Web flipa (grænu og rauðu línunum) að framanverðu. Eitt stórt aðalhólf með minni vasa sem er hægt að smella.