Eitt af vinsælli lúxus merkjum hjá íslendingum þessa dagana er Gucci. Hjá Attikk kemur mikið af vörum frá þeim í hverri einustu viku og eru þær oft á tíðum jafn fljótar að fara í hendur nýrra eiganda. Verandi vinsælt merki er einnig algengt að eftirlíkingar séu í umferð, viðskiptavinir Attikk geta verið vissir að allar Gucci vörur sem seldar eru hjá Attikk séu ekta þar sem þær gangast allar undir ítarlega skoðun hjá sérfræðingum.
Glæsileg hringlótt sólgleraugu frá Gucci í svörtum lit og með dökk gráum glerjum. "Gucci" áletrað á hægra gleri einnig innan í hægri arminum. Gulllitað GG Interlocking merkið á báðum örmum og hin sívinsæla býfluga á endunum á báðum örðum. Með sólgleraugunum fylgir upprunalegt gult hulstur með bláu involsi.
Falleg sólgleraugu frá Gucci í svörtum lit með gylltu ''GG'' lógó á hliðunum. Upprunalegt box fylgir með.
Svört oversized sólgleraugu frá Gucci í svartri umgjörð með gylltu ''GG'' mynstri á hliðunum.