Stærsta úrval landsins af vottuðum Louis Vuitton vörum. Attikk fær til sín í sölu mikið að Louis Vuitton vörum í hverri viku. Þetta franska tískuhús var stofnað árið 1854 af Louis Vuitton og er mjög vinsælt meðal Íslendinga. Þó nokkuð er af eftirlíkingum af Louis Vuitton í umferð hérna heima og því mikilvægt að kaupa eingöngu vottaðar vörur þegar það er keypt notað.
Æðisleg vintage Saumur 30 taska frá Louis Vuitton - taskan er minnst sinnar gerðar (30) og breiðist út eins og hnakkur og hefur ólar á hliðunum sem eru losaðar. Rúmgóð hólf eru á framhlið og afturhlið. Taskan er framleidd árið 1991.
Sæt og lítil taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt aðalhólf sem lokast með segli. Belti er 80-85cm
Æðisleg, vintage speedy 35 taska frá Louis Vuitton í klassíska monogam canvas með ljósu vachetta leðri og gyltum málm. Taskan hefur eitt rúmgott aðalhólf sem lokast með rennilás og einn minni flatan vasa sem er með rennilás. Framleidd árið 1981 og er því algjör vintage gersemi, fylgja lás & lyklar með.
Æðisleg Josephine taska frá Louis Vuitton í ljósu Mini Lin mynstri með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum í innvolsi, eitt rennt og eitt lítið hólf.
Æðisleg Sportini taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með vachetta áherslum og gulltónuðum málmum. Taskan er hætt í framleiðslu! Þessar töskur voru framleiddar fyrir 2002 útgáfuna hjá Louis Vuitton. Eitt rúmgott og rennt aðalhólf, þar fyrir innan eru auka vasar og teygjur í innvolsi til að halda góðu skipulagi. Taskan fór nýverið erlendis í viðgerð til að skipta út lúnu Vachetta leðrinu fyrir nýju, ásamt nýrri ól skipt út fyrir gömlu, sem gefur töskunni glæsilegan nútíma ljóma þrátt fyrir að vera framleidd 2001.
Louis Vuitton Alma taska í monogram canvas með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka opnu hólfi. Með töskunni fylgir lás en enginn lykill.
Æðisleg og eftirsótt Keepall Bandoulière frá Louis Vuitton í stærðinni 50. Eitt rennt aðalhólf. Framleidd í Frakklandi, Janúar 1998. Upprunalegur rykpoki og Vachetta ól fylgir með.
Vintage keepall taska frá Louis Vuitton í klassíska monogam canvas og gylltum málm. Eitt stórt og rennt aðalhólf er á töskunni og fylgir bæði merkispjald og lítil ól til að festa saman handföngin - framleidd 1991
Æðisleg hliðartaska frá Louis Vuitton. Taskan opnast að framan undir svörtu og gylltu stóru LV lógói, þar undir er segulloki. Innvols er vínrautt og með einu rúmgóðu hólfi ásamt renndum vasa. Þar fyrir framan er opinn auka vasi. Málmar eru gulltóna, fyrir utan lógó að framan. Einnig er opinn flatur vasi aftan á töskunni. Gyllt keðjuól sem er að hluta með svörtu leðri fyrir aukin þægindi. Ólina er hægt að hafa einfalda eða tvöfalda. Fylgir upprunalegur rykpoki og verslunarpoki með.
Stór glæsileg Petite Malle taska frá Louis Vuitton sem var framleidd í október 2017. Taskan er í svörtu Epi og kálfa leðri, svörtum málmum á hornum ásamt gull tóna málm áherslum víða. Taskan opnast að framan og losnar þá leður flipinn sem leggst yfir töskuna og opnast hún þá að ofan. Taskan sjálf lokast með segli og er ljós að innan með einum flötum vasa. Svört þunn crossbody ól, stillanleg, fylgir með og er hægt að hafa töskuna með eða án hennar. Einnig fylgir upprunalegur rykpoki með. Taskan er enn til sölu hjá LV og kostar hún 5,200 evrur sem er um 748.000 isk.
Falleg tote taska frá Louis Vuitton í glæsilegu grænu Epi leðri með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt og eitt opið, einnig er krókur í innvolsi. Taskan var framleiddí nóvember 1995 í Frakklandi.
Noé Bucket taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf og stillanleg ól.
Luco Tote taska frá Louis Vuitton í klassíska monogram mynstrinu. Í aðalhólfinu er einn stór renndur vasi og annar opinn. Tveir minni opnir vasar sem flestir snjallsímar myndu passa í og gamaldags símahólf. Rykpoki fylgir.
Klikkað falleg Capucines taska frá Louis Vuitton. Taskan er með opnu aðalhólfi þar sem Python flipi leggst yfir að hluta og er hægt að smeygja inn fyrir leður rönd að innan verðu til að halda í stað. Á enda flipans er fallega LV blómið í gylltum málmi. Undir flipanum er rúmgott aðalhólf sem er tvískipt og í innra hólfinu er flatur vasi. Python haldfang og gylltir málmar. Breið svört leðuról sem er hægt að fjarlægja, upprunalegur rykpoki og upprunalegur kassi fylgir með. Framleidd í lok febrúar 2020 í Frakklandi.
Ótrúlega vinsæl, hentug og glæsileg Neverfull taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene mynstrinu með gylltum málm. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með eitt auka rennt hólf og krók. Taskan var framleidd árið 2011 og hægt er að snúa töskunni við og nota hana öfuga, sem er sjúklega kúl! Kostar ný $2,170.00, eða 265,260isk á núverandi gengi.
Sæt og lítil taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt aðalhólf sem lokað með segli.
Æðisleg snyrtitaska frá Louis Vuitton í klassíska Monogram canvasnum. Hentar líka sem veski fyrir helstu hlutina út í daginn. Framleidd í Frakklandi í Febrúar 1985. Ath ástand vel.
Fallegur og hentugur Ellipse bakpoki frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvas með ljós brúnu leðri og gylltum málm. Eitt rennt rúmgott aðalhólf erá töskunni, þar ofan í er eitt auka hólf. Hægt er að lengja og stytta leðurböndin. Framleidd árið 1999.
Töff Montaigne taska frá Louis Vuitton í stærð GM. Taskan er í hvítu Epi leðri með silfur málm, eitt rennt aðalhólf er á henni sem opnast með smellu og eru þrjú auka hólf, tvö í innvolsi og eitt að aftan. Með töskunni fylgja lyklar og lás.
Æðisleg bucket taska í stærð GM frá Louis Vuitton. Taskan er í brúna monogram canvasinum með gylltum málm. Eitt stórt, opið aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt og eitt opið. Með töskunni fylgir veski sem hægt er að krækja í innvolsið. Framleidd árið 2001.
Ótrúlega falleg, unique ferðataska frá Louis Vuitton í Monogram canvas frá árinu 2017. Eitt stórt, rennt aðalhólf er á töskunni og tvö auka rennd hólf, eitt í innvolsi og annað að framan. Einnig fylgir henni sérstakt hólf sem geymir útdraganlegt handfang, sem gerir það mögulegt að breyta töskunni í þægilega ferðatösku. Allur málmur er gylltur og eru tvö dekk á einni hliðinni. Sjúklega hentug og stílleg taska í ferðalögin!
Rúmgóð Saleya taska frá Louis Vuitton í Damier Azur Canvas lit. Taskan er mjög hentug fyrir hversdagslegu hlutina og hefur eitt stór aðalhólf sem lokast með reinnilási. Auk þess eru tveir minni opnir vasar sem og krókur til að krækja lyklakippu í. Alltur málmur er gylltur á litinn. Taskan er frá árinu 2007. Vottorð fylgir útprentað með töskunni.
Louis Vuitton Damier Ebene Pariolo PM taska. Taskan lokast með segulloka og hefur eitt aðalhólf og tvo opin hólf inn í. Að innan er taskan gerð úr velúr eða rúskinni sem er appelsínugult á litinn. Taskan er framleidd árið 2004. Rykpoki fylgir.
Geggjuð Louis Vuitton Damier Ebene Uzes taska með brúnu leðri og gylltum málmi. Taskan hefur eitt opið aðalhólf og að innan er einn flatur renndur vasi og símahólf fyrir gamlar týpur af símum. Að innan er takskan úr rúskinni sem er í ljós rauðu/appersínugulum lit. Framan á töskunni eru tvennir vasar sem lokast með belti og ól. Date kóðinn er til staðar en hefur afmáðst af með tímanum og er illa læsilegur en okkur sýnist taskan hafa verið framleidd árið árið 2004.