Ótrúlega falleg boots frá Tom Ford í brúnu suede efni með gylltum ''padlock'' málm, rennilás er á hliðum og belti. Upprunalegur kassi og rykpokar fylgja með.
Vinsæl og klassísk messenger taska frá Gucci í endutekna ''GG'' mynstrinu með web (rauð og græn) línunni. Eitt rennt aðalhólf með einu auka renndu hólfi í innvolsi og tveimur opnum. Stillanleg ól.
Æðisleg hversdags taska frá Chloé í Linen canvas, brúnu kálfaleðri og polyester. Bæði hægt að halda á henni og nota hana sem hliðartösku (e. crossbody bag) þar sem löng brún ól fylgir með. Eitt rúmgott aðalhólf og einn flatur vasi að innan. Kostar um 152.000kr skv. núverandi kortagengi. Upprunalegur rykpoki, verslunarpoki og upprunakort fylgir með.
Flottir Run 55 strigaskór frá Louis Vuitton í hvítum lit með eftirsótta monogram mynstrinu. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með. Nýjir hjá Louis Vuitton kosta þeir £945.00, sem er ca. 156,538 isk á núverandi gengi.
Sígild Alma PM taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Að innanverði er eitt stórt aðalhólf með einum smærri vasa og gamaldags vasa undir gemsa. Málmur er gylltur. Kostar ný 1820 evrur. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Stór Chelsea Tote taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Harður botn og rennt aðalhólf. innvols er rautt og hefur að geyma einn minni renndan vasa. Smellur á hliðunum þar sem er hægt að losa rennilásinn frá hliðunum og gera töskuna aðeins ferkanntaðari í laginu. Höldur stillanlegar í lengd. Upprunalegur lás og lykill fylgir ásamt rykpoka.
Æðisleg svört Jumbo Single Flap taska frá Chanel frá ca. 1997-1999 úr lambaskinni. Taskan er stimpluð, þ.e. allur gylltur málmur er 24k gullhúðaður. Að framanverðu er stórt interlocking CC lógó með snúningslás. Í innvolsi er eitt stórt hólf með einum opnum vasa og einum renndum. Með töskunni fylgir upprunalegt sanngildiskort og rykpoki.
Klassíska Keepall 45 taskan í monogram útgáfu. Með töskunni fylgir lás og tveir lyklar ásamt upprunalegum rykpoka. Taskan er vel með farin og er framleidd árið 2015. Leðurnafnspjaldið fylgir með en hefur verið merkt með upphafsstöfunum LAN.
Klassískt Web belti frá Gucci með stórri interlocking G sylgju. Beltið er grænt og rautt með svörtu leðri. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Sæt, lítil bucket taska frá Gucci í klassíska endurtekna ''GG'' mynstrinu með web (rauð og græn) línunni að neðan. Eitt aðalhólf sem lokast með togbandi og stillanleg axlaról. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með.
Lítið Portefeuille Victorine veski frá Louis Vuitton í Damier Azur canvas með ljósbleikum og gylltum áherslum. Veskið lokast með flipa (b-fold) og læsist með smellu. Að innan eru 6 kortahólf, tveir flatir vasar og sérhólf fyrir peningaseðla. Að auki er sér hólf er fyrir klinkið sem lokast með rennilás. Veskið er framleitt árið 2018. Með veskinu fylgir rykpoki og kassi.
Glæsileg Favorite hliðartaska frá Louis Vuitton í stærðinni MM í monogram canvas. Tvær fjarlægjanlegar ólar, önnur úr Vachetta leðri og hin er keðja. Taskan opnast með segli að framanverðu og hefur að geyma eitt rúmgott aðalhólf ásamt flötum minni vasa þar fyrir innan. Taskan var framleidd í júlí 2013.
Glæsilegir ''Major loafers'' frá Louis Vuitton í Damier Graphite mynstrinu með silfur málm. Upprunalegir rykpokar fylgja með.
Flott keðjubelti frá Salvatore Ferragamo í gylltum málm með svörtu lógó.
Glæsilegt úr frá Gucci í bæði gylltum og silfur málm með hvítri skífu, á skífunni er gyllt Mystic kisa og allskonar af flottum mynstrum. Upprunelgur kassi fylgir með og bæklingur.
Glæsileg Cabas Piano tote taska frá Louis Vuitton með Damier Ebene canvas. Gulltóna málmar á töskunni og brúnt leður á slit flötum. Eitt rennt, rúmgott, aðalhólf með einum renndum vasa þar fyrir innan. Gemsa hólf af gömlu stærðinni sem gæti í dag frekar geymt penna eða varalit. Einnig er í innvolsi málm hringur til að krækja t.d. lyklum í. Innvols töskunnar er rautt. Framleidd í Frakklandi í Desember 2002. Það er búið að merkja á annað handfangið "M.S", það er þó ekki mjög áberandi við notkun.
Æðisleg vintage hliðartaska frá Chanel í svörtu lambaleðri með svörtu ''CC'' lógó að framan. Taskan opnast með flipa og hefur eitt gott aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt í innvolsi og eitt opið að aftan. Authenticity kort fylgir með og var taskan framleidd í kringum 1991 - 1994.
Single Flap hliðartaska frá Chanel í svörtu lambaleðri með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf með einu auka renndu hólfi
Klikkað sæt mini Tote taska frá Prada í metallic lit. Þrjú aðalhólf eru á töskunni, tvö opin og eitt rennt. Með töskunni fylgir stillanleg ól, lyklar og bæði upprunalegur kassi og rykpoki.
Æðislegt vatterað belti frá Chanel úr svörtu Caviar leðri með keðju CC sylgju. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Gæðaleg Medium Voyou axlartaska úr ljósgráu kálfaleðri frá Givenchy. Taskan blandar gylltum og silfruðum málmi með skemmtilegri útfærslu. Upprunalegur rykpoki fylgir. Einn renndur vasi í stóru opnu innvolsi.
Fallegt úr frá Gucci í rose gold lit með hvítri sylgju og endurtekna ''GG'' mynstrinu. Swiss Made Quarts
Glæsilegt úr frá Christian Dior í bæði silfur og gylltum málm með blárri sylgju (3025). Swiss made Quartz
Ótrúlega fallegt, gulltónað úr frá Gucci með endurtekna ''GG'' mynstrinu á sylgjunni. Swiss Made Quartz