Eitt af vinsælli lúxus merkjum hjá íslendingum þessa dagana er Gucci. Hjá Attikk kemur mikið af vörum frá þeim í hverri einustu viku og eru þær oft á tíðum jafn fljótar að fara í hendur nýrra eiganda. Verandi vinsælt merki er einnig algengt að eftirlíkingar séu í umferð, viðskiptavinir Attikk geta verið vissir að allar Gucci vörur sem seldar eru hjá Attikk séu ekta þar sem þær gangast allar undir ítarlega skoðun hjá sérfræðingum.
Fallegur hringur úr gulltónuðum málmi með ljónshöfði sem heldur á fallegum bleikum kristalssteini frá Gucci.
Æðislegt G-class úr frá Gucci með svartri skífu, rómverskum tölum og silfur málm (stainless steel). Upprunalegur kassi fylgir með.
Fallegt úr frá Gucci í rose gold lit með hvítri sylgju og endurtekna ''GG'' mynstrinu. Swiss Made Quarts