Burberry var stofnað árið 1856 af Thomas Burberry og upprunalega sérhæði sig í hönnun og framleiðslu á yfirhöfnum og útivistarfatnið. Burberry hefur í dag fært sig á hátískumarkaðinn og er heimsþekkt fyrir hönnun sína. Nova Check mynstrið þeirra er mjög einkennandi í mörgum hönnunum og varð fyrst vinsælt í kringum 30. áratuginn á síðustu öld. Fyrir árið 1999 var Burberry þekkt sem Burberrys - áður en "s"ið var látið falla.
Æðsileg ullar/kasmír Wrap kápa frá Burberry sem hefur verið kennd við Sherringham. Kápan er 80% ull og 20% kasmír. Undir kraga er Nova Check mynstur, að framan eru tveir opnir vasar og er kápunni lokað með belti eingöngu. Kápan kostaði ný um 360.000 isk.
Drapplitaður rykfrakki frá Burberry's með Nova Check mynstrinu að innan og ljósum tölum.
Skemmtilegt vesti frá Burberry í dökkum lit, með Nova Check mynstrinu að innan. Hægt er að nota vestið á röngunni.
Glæsilegur og eftirsóttur Kensington rykfrakki frá Burberry í svörtum lit með Nova Check mynstur að innan. Tveir vasar eru á hliðunum og fylgir mittisband með. Hægt er að stíla rykfrakkann á svo margar vegur, fullkominn fyrir haustið!
Glæsileg kápa frá Burberry í kremlituðum lit með prjónamynstur að aftan, en að framan í loð áferð. Nokkrar brúnar tölur eru á kápunni en krókar að innan til að loka kápunni.
Grá aðsniðin ullarkápa frá Burberry með ekta loðfeldi á hettunni. Kápan er rennd upp að framan en rennilásinn er falinn. Framan á kápunni eru fjórar svartar leðurfestingar. Tvennir vasar eru að framan. 100% ull
Stuttur Vintage Burberry Blue Label frakki í fallegum svörtum lit. Jakkinn er hnepptur upp að framan og hefur tvenna hneppta vasa að framan. Jakkinn hefur mittisól sem hægt er að þrengja að í mittinu.
Klassískur stuttur jakki frá Burberry í svörtum lit með nova check mynstrinu að innin. Jakkinn er hnepptur upp að framan og hefur tvenna opna vasa.