Það eru 4 með þessa vöru í körfu.
Glæsileg Beverly taska frá Louis Vuitton í monogram canvas af stærðinni GM. Framleidd í Frakklandi í júní 1997. Opnast og lokast með beltis sylgju að framan, eitt rúmgott aðalhólf og einn flatur renndur vasi. Haldfang að ofan verðu með gulltóna málm hankum til að krækja ól við. Allur málmur er gulltóna. Þessi gersemi fór til Parísar í yfirhalningu um árið og fékk nýtt Vachetta leður meðfram öllum köntum ásamt nýju haldfangi og Vachetta meðfram rennilás í innvolsi. Ekki var skipt um Vachetta sem kemur að beltissylgjunni né ólina sjálfa. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Áætlaður afhendingartími: 1-2 virkir dagar (Innanlands), 5-10 working days (International).
Þessi vara hefur verið vottuð sem ekta Louis Vuitton vara með tækni frá Entrupy.
Öruggt
Kaupaferli