Æðisleg Ophidia taska, með Web línu (rauð og græn) fyrir miðju, frá Gucci í GG Supreme canvasnum af stærðinni Small. Taskan opnast með smellu undir flipanum (e. flap), þar undir er eitt rúmgott aðalhólf, einn frekar rúmur flatur vasi þar fyrir framan. Í aðalhólfinu er einn flatur renndur vasi og opinn flatur vasi. Allur málmur er gylltur. Brúnt leður á slitflötum og er stillanlega ólin í sama leðri. Upprunalegur rykpoki og kassi fylgir með. Kostar ný um 275.000kr.
Áætlaður afhendingartími: 1-2 virkir dagar (Innanlands), 5-10 working days (International).
Þessi vara hefur verið vottuð sem ekta Gucci vara með tækni frá Entrupy.
Öruggt
Kaupaferli