Vörur sem að hafa verið lengur en 80 daga á sölu og gætu verið sóttar af eiganda fljótlega.
Ótrúlega falleg skyrta frá Prada í ljósbláum lit með svörtu lógó að framan. Tveir vasar eru að framan.
Æðisleg svört sokkastígvél frá Prada. Rennilás innan á kálfa og Prada lógó utan á ökkla.
Klikkað falleg stígvél frá Prada í svörtu Nappa leðri. Upprunalegur kassi og rykpokar fylgja með.
Glæsileg skyrta frá Dolce & Gabbana í hvítum lit með hvítum tölum. Slim fit ca
Glæsilegur kjóll frá Gucci í ljósum lit með svörtum gervivösum og slaufu. Allar tölur eru gylltar og er rennilás að aftan. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Ótrúlega fallegur kjóll frá Gucci í svörtum lit, með web (rauð, hvít og blá) línum og slaufu. Rennilás er að framan sem hægt er að renna alla leiðina niður.
Skemmtilegur kjóll frá Gucci. Kjóllinn er rauður á litinn og hefur bleikt hálsmál með slaufu að framan. Framan á kjólnum fyrir miðju eru hnappar með bleikum steinum sem fer alla leið niður. Einnig eru sömu hnappar á sitthvoru erminni. Kjóllinn renndur að aftan.
Ótrúlega fallegir Aline hælar frá Gucci í svörtum lit með gylltri slaufu og web (rauð, blá og hvít) slaufu. Upprunalegur kassi fylgir með.
Canvas hreinsirinn okkar er sérstaklega hannaður til að hreinsa PVC húðað efni. Fjarlægir óhreinindi og lífgar upp á Canvasinn. Við mælum með að bera hreinsinn á Canvas með mjúkum svampi. Gætið að því að hreinsirinn berist ekki í nærliggjandi leður eða annað efni en sem er ekki PVC húðað. Varist að efnið berist á húð, í munn eða augu. Eins er ráðlagt að prófa efnið á lítið áberandi stað til þess að varast óæskileg viðbrögð, sérstaklega ef leðrið er óþekkt, málað eða þess háttar. Canvas hreinsirinn okkar hentar vel fyrir t.d. Monogram Canvas á Louis Vuitton töskum og Check Canvas á Burberry töskum.
Næring sérstaklega hönnuð fyrir ómeðhöndlað leður á borð við fræga Vachetta leðrið í Louis Vuitton töskum. Sérhæfður að því leyti að það nærir leðrir vel án þess að dekkja það. Berið efnið á leður jafnt og þétt með klút. Leyfið að þorna eðlilega. Ætlað til notkunar eftir að búið er að þrífa leðrið. Varist að efnið berist á húð, í munn eða augu. Eins er ráðlagt að prófa efnið á lítið áberandi stað til þess að varast óæskileg viðbrögð, sérstaklega ef leðrið er óþekkt, málað eða þess háttar. Næringuna má nota á ómeðhöndlað leður eins og Vachetta. Athugið að leðrið mun dökkna þegar næringunni er borið á það en það lýsist á ný þegar efnið þornar. Mjög ljóst leður (glænýtt) gæti dökknað örlítið.
Þessi leðurnæring er hönnuð fyrir allt meðhöndlað leður! Nærir og bætir! Við mælum með að þrífa leðrir áður en leðrið er nært með Leður Créme. Að auki mælir Attikk með að nota leðurvörn á leðrið eftir næringarmeðferð. Berið efnið á leður jafnt og þétt með klút. Leyfið að þorna eðlilega. Ætlað til notkunar eftir að búið er að þrífa leðrið. Varist að efnið berist á húð, í munn eða augu. Eins er ráðlagt að prófa efnið á lítið áberandi stað til þess að varast óæskileg viðbrögð, sérstaklega ef leðrið er óþekkt, málað eða þess háttar. Hentar ekki fyrir ómeðhöndlað leður, efni, rúskinn eða nubuck.
Rython strigaskór frá Gucci í ljósum lit, með bleiku, bláu og gulu mynstri á hliðunum. Með skónum fylgja reimar, upprunalegur kassi, og rykpokar.
Flottar gallabuxur frá Prada í gráum washed lit og lógó að aftan. ''Classic fit''
Glæsilegar gallabuxur í gráum washed lit með hvítu lógó að aftan. ''Tapered fit''
Stílhrein og töff ferköntuð sólgleraugu frá Celine. Umgjörð og gler svört með þremur silfurlituðum punktum á hvorum arminum ásamt "Celine" áletrun í gylltum tón. Upprunalegur glerklútur með Celine merkinu á og veglegt leður slíður sem hulstur.
Skemmtilegir strigaskór frá Gucci í Supreme mynstrinu með Floral printi og rauðu leðri.
Rauðir loafers frá Gucci í rauðu leðri með gylltum Horsebit málm að framan. Ath. ástand!
Hrikalega töff neon græn Le Cagole hliðartaska frá Balenciaga í minnstu stærðinni. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og stillanleg ól. Einnig er fjarlægjanlegt veski og spegill að framan. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Gullfalleg Alma taska frá Louis Vuitton í stæðinni BB. Taskan er í fallegu appelsínugulu epi leðri en epi leðrið er kúaleður sem gerir töskuna mjög endingargóða. Taskan opnast með tvöföldum rennilás að ofan, inn í töskunni er eitt rúmgott hólf ásamt auka flötum vasa. Tvö handfönd eru á töskunni ásamt fjarlægjanlegri leðuról svo hægt væri að bera töskunni á öxl eða á ská yfir líkamann (e. crossbody). Málmarnir á töskunni eru silfurlitaðir. Með töskunni fylgir lás, í upprunalegum rykpoka og einn lykill, upprunalegur rykpoki fyrir töskuna og upprunalegur kassi. Taskan var framleidd í 15. viku ársins 2013 í Frakklandi.
Ótrúlega falleg slæða frá Cartier í 100% silki glæsilegum gulum lit með skemmtilegu mynstri í bláum, grænum, og silfur lit.
Glæsilegur og eftirsóttur Kensington rykfrakki frá Burberry í svörtum lit með Nova Check mynstur að innan. Tveir vasar eru á hliðunum og fylgir mittisband með. Hægt er að stíla rykfrakkann á svo margar vegur, fullkominn fyrir haustið!
Svört Jeune Fille taska frá Louis Vuitton úr svörtu Epi leðri. Taskan opnast að ofan með gylltum rennilás. Eitt aðalhólf með einn flatan vasa sem lokast með rennilás. Framan á töskunni er flatur vasi sem lokast með flipa og læsist með ól og sylgju. Aftan á er opinn flatur vasi. Á töskunni er áföst stillanleg crossbody ól. Taskan er frá árinu 2009. Athugið ástand eins og alltaf!