Mikið úrval af úrum og skartgripum frá öllum helsu lúxusmerkjunum koma inn hjá Attikk. Kíktu á úrvalið.
Glæsilegt Rolex Datejust 36, ref.16233, í klassískri tvítóna útfærslur úr ryðfríu stáli og 18k gulli. Úrið skartar fallegri kónga blárri skífu með demöntum og gylltum vísum, riffluðum gullramma (fluted bezel) og hinu sígilda Jubilee-ól frá Rolex. Úrið býr yfir sjálfvirku Rolex Caliber 3135 gangverki og dagsetningarglugga með Cyclops-stækkunargleri. Gler úrsins er Safírgler og er úrið árgerð 1994. Með úrinu fylgir veglegur Rolex kassi, ekki sá sem fylgdi með úrinu upprunalega en þó Rolex kassi í góðu ástandi. Úrið var ekki vottað af sérfræðingum Attikk heldur hefur það verið yfirfarið af úrasmiði sem staðfesti raðnúmer úrsins við gagnagrunn Rolex.
Fallegir og sjaldgæfir vintage gylltir eyrnalokkar úr burstuðum málmi frá Jean Paul Gaultier. Eyrnalokkarnir minna á íkonísku keilubrjóstahaldarana eftir hönnuðinn frá 9. áratugnum.
Flottur gulltónaður hringur frá Versace með chained medusa mynstri. Upprunalegur kassi fylgir með.
Versace Medusa Signet Cocktail hringur í gulltónuðum málmi, með Medusa að framan. Upprunalegur kassi fylgir með.
Æðislegt G-class úr frá Gucci með svartri skífu, rómverskum tölum og silfur málm (stainless steel). Upprunalegur kassi fylgir með.
Gullfallegt úr frá Raymond Weil í silfur málm með hvítri mother of pearl skífu og sapphire kristölum í kring. Upprrunalegur kassi fylgir með + kort. Keypt árið 2008 og gengur fyrir Swiss Made Quartz hreyfingu