Hinar ýmsu yfirhafnir fyrir allar árstíðir. Úlpur, jakkar, anoraks og fleira. Yfirhafnir frá öllum helstu lúxus merkjunum finnast hjá Attikk.
Flott síðúlpa frá Moncler í svörtum lit, bæði tölur og rennilás er á úlpunni og dökkt Moncler lógó á ermi. Ath. ástand
Skemmtilegur jakki frá Moncler í dökk bláum lit með rauðum og hvítum línum.
Jonathan Giubbotto jakki frá Moncler í svarbláum lit með fimm vösum og hettu sem hægt er að fela.
Töff dúnúlpa frá Moncler í svörtum lit með svörtu lógó. Tveir renndir vasar eru á hliðunum. Ath ástand
Skemmtilegur vindjakki frá Moncler í bláum, hvítum og rauðum lit. Tveir renndir vasar eru á hliðunum.
Glæsileg úlpa frá Moncler í dökkum lit með lógó á ermi. Tveir vasar eru á hliðunum.
Hentugur jakki frá Moncler í dökk bláum lit mep ljósu Moncler lógóá erminni.
Skemmtileg úlpa frá Moncler í bæði svörtum og bláum lit. Bæði er hægt að hneppa og renna úlpunni og eru tveir vasar á hliðunum.
Klikkað fallegur blazer frá Just Cavalli í svörtum lit með skemmtilegu mynstri í gylltum lit.
Fallegur cropped gallajakki frá Dolce & Gabbana í bláum lit með gylltum málm. Nokkrir vasar eru á jakkanum og skemmtilegt logo að innan.
Glæsilegur jakki frá Prada sem skiptist í nokkra liti, ljós gráan, dökk gráan og svo svartan.
Ótrúlega flottur frakki frá Gucci í svörtum lit, nokkrir vasar eru á frakkanum, tveir að framan og þrír að innan.
Glæsilegur og eftirsóttur Kensington rykfrakki frá Burberry í svörtum lit með Nova Check mynstur að innan. Tveir vasar eru á hliðunum og fylgir mittisband með. Hægt er að stíla rykfrakkann á svo margar vegur, fullkominn fyrir haustið!
Ljósblátt dún vesti frá Prada með silfur og rauðum áherslum. Vestið hefur tvenna rennda vasa á hliðunum og gráa nylon hettu sem hægt er að fela í hálsmálið. Tveir vasar eru innan í vestinu sem lokast með frönskum rennilás. Að innan er hægt að smella vestinu að neðan til að hindra að loft fari þar í gegn. Á hægri hliðinni er lítið rautt Prada merki. Vestið er úr 100% nylon og er fyllt með dún. Innan í hægri vasa að utan er lítill silfraður lás með rauðu Prada stöfum.
Falleg úlpa frá Prada í brúnum lit með silfur málm og Prada lógó á vinstri ermi. Tveir vasar eru að framan og einn á erminni.
Yves Saint Laurent Fourrures vintage leðurkápa úr brúnu leðri með loðfóðruðum kraga sem nær niður að framan, einnig er loð á ermum og faldi. Kápan lokast með belti í mitti og er með opna vasa að framan. Framleidd í Frakklandi og er ca. frá árunum 1978–1983. Algjör vintage gersemi hér á ferð! Yves Saint Laurent Fourrures var sérstök pelsa- og skinnlína sem var framleidd seint á árunum 1970s og fram yfir 1980 en náði hámarki á árunum 1978–1985.
Vintage jakki fra Burberry London í ljósbrúnum lit. Að innan er jakkinn hálf fóðraður í klassiska nova check mynstrinu.
Svört Alamandin jakki frá Moncler með silfur áherslum. Þessi dúnjakki er úr nælonefni og er innblásin frá 5. áratugnum og líkist jakka með klassísku sniði frá þeim tíma. Jakkinn er með kringlóttum kraga, útvíðum ermum með reimum til að stilla sniðið. Að framan eru tveir opnir framvasar og á vinstri ermi er klassíska Moncler lógoið. Úlpan tilheyrir Longue Saison línunni.
Sívinsæli Kensington frakkinn frá Burberry í drapplituðum lit með dökkum tölum. Jakkinn er tvíhnepptur að framan og fóðraður að innan með klassíska nova check mynstrinu sem er úr 100% bómull. Tveir hnepptir vasar eru á hliðunum og fylgir mittisband með. Hægt að stílisera hann á svo margar vegur. Upprunalegur rykpoki fylgir með. Kostar nýr 375.000 isk á núverandi gengi.
Sjaldgæfur, flottur og vel með farinn svartur frakki frá Prada. Frakkinn er með tvöföldum tölum að framan sem hægt er að hneppa í báðar áttir og er aðsniðinn.
Glæsileg kápa frá Burberry í kremlituðum lit með prjónamynstur að aftan, en að framan í loð áferð. Nokkrar brúnar tölur eru á kápunni en krókar að innan til að loka kápunni.
Grá aðsniðin ullarkápa frá Burberry með ekta loðfeldi á hettunni. Kápan er rennd upp að framan en rennilásinn er falinn. Framan á kápunni eru fjórar svartar leðurfestingar. Tvennir vasar eru að framan. 100% ull