Síðastliðinn laugardag hófum við nýjan lið í beinu streymi á helstu miðlunum okkar; Beint frá Attikk. Beint frá Attikk verður streymt í rauntíma nokkrum sinnum í mánuði úr versluninni okkar og munum við sína frá nokkrum vel völdum vörum, koma með nokkra fróðleiksmola og svara fyrirspurnum sem kunna að berast á meðan. Ekki missa af þessari snilld!



Gucci Change Bezel úr
Við byrjuðum á að sýna frá skemmtilegri vöru frá Gucci. Þetta Change Bezel úr er mjög sjaldgæfur gripur frá ca. 1987. Þá er sérstaklega sjaldgæft að allir hringirnir séu enn til staðar - en yfirleitt vantar einhverja liti.

Chanel Change Bezel úr
Þetta úr finnur þú í verslun okkar á litlar 65,500 krónur. Hlekkur á úrið: https://attikk.is/Product/View/1963/Gucci-Change-Bezel-ur

Chanel sólgleraugu
Þessi klassísku og fallegu sólgleraugu frá Chanel, með Butterfly Chain örmum og sígildu CC lógó á hliðum voru sýnd í streyminu.

Chanel sólgleraugu
Með gleraugunum fylgir upprunalegt hulstur. Hlekkur á sólgleraugun: https://attikk.is/Product/View/1649/Chanel-Butterfly-Chain-solgleraugu

Yeezy True Form
Við skiptum síðan aðeins um gír og sóttum þessa Yeezy skó úr Streetwear horninu okkar.

Yeezy True Form
Skórnir eru í litnum “True Form” og við eigum þá til í stærð 45 & ⅓. Hlekkur á skóna: https://attikk.is/Product/View/1388/Yeezy-Boost-350-V2--True-Form--45-1-3

Outfit I
Við sýndum frá skemmtilegu outfitti samansettu af hvítri Moncler úlpu, brúnni Moncler húfu, stórri Louis Vuitton Sac Shopping tösku og Jimmy Choo sólgleraugum. Hér má sjá mynd af því: 
MYND

Stærðir og verð á vörunum má finna á neðangreindum hlekkjum.

Louis Vuitton Alma taska
Við sýndum frá einni mestu klassík sem Louis Vuitton hefur gefið út, Alma töskunni. Alma er önnur handtaskan sem Louis Vuitton gaf út á eftir Speedy töskunni en hún kom fyrst við sögu árið 1934. Alma taskan hefur verið gríðarlega vinsæl frá upphafi og hefur verið framleidd í 5 mismunandi stærðum - en sú sem við eigum til í augnablikinu er í stærð MM.

Louis Vuitton Alma
Með töskunni fylgja silkislæður á handföngum (auðvelt að fjarlægja) og upprunalegur lás og lykill. Algengt er að lásinn og lykilinn vanti á vintage töskum sem þessum. Hlekkur á töskuna: https://attikk.is/Product/View/1949/Louis-Vuitton-Alma-MM-taska

Svartir Guccissima monogram skór
Þessir strigaskór frá Gucci í svörtu Guccissima monogram mynstri eru algjör klassík sem henta hvaða tilefni sem er.

Svartir Gucci skór
Skórnir eru í stærð 39,5 og með þeim fylgir upprunalegur skókassi. Hlekkur á skóna: https://attikk.is/Product/View/625/Gucci-svartir-monogram-strigaskor

Outfit II
Næsta outfittið sem við sýndum frá samanstóð af “Little Black Dress” kjólnum frá Off-White í stærð 38, vintage Ophidia tösku frá Gucci í dökkbláu GG Supreme monogram mynstri og sólgleraugum frá Gucci. 
MYND

Fleiri upplýsingar og verð eru að finna á hlekkjunum hér að neðan.

Gucci svört gleraugu
Við sýndum frá þessum flottu Gucci sólgleraugum í Aviator stíl. Með þeim fylgir upprunalegt hulstur og klútur.

Svört Gucci sólgleraugu
Gleraugun eru til sölu í Attikk á 36.000,- krónur. Hlekkur á sólgleraugun: https://attikk.is/Product/View/1792/Svort-Gucci-solgleraugu 

Jordan 5 Retro skór
Aftur fórum við í Streetwear hornið og sýndum frá þessum geggjuðu Jordan 5 Retro skóm í litnum “Raging Bull”.

Jordan 5 Retro
Við eigum skóna til í stærð 46. Hlekkur á skóna: https://attikk.is/Product/View/1591/Jordan-5-Retro--Raging-Bull-

Louis Vuitton Looping GM taska
Þessi taska er af stærstu gerðinni (GM) í Looping fjölskyldunni en hún kom fyrst út árið 2002 og hætti síðan í framleiðslu nokkrum árum seinna. Það hefur orðið vinsælt á síðari árum að breyta töskunni í cross-body tösku með því að fjarlægja Looping handfangið og skipta því út fyrir króka - þá er hægt að krækja fína keðju eða lengri ól á töskuna.

Louis Vuitton Looping GM
Þessi taska var mjög vinsæl þegar hún kom út og hefur orðið eftirsóttari með árunum - Louis Vuitton aðdáendur líta á hana sem eins konar safngrip. Hlekkur á töskuna: https://attikk.is/Product/View/1947/Louis-Vuitton-Monogram-Looping-GM-taska

Outfit III
Við fórum í aðeins litríkara outfit fyrir ykkur að þessu sinni. Ýr mátaði þessa geggjuðu rauðu peysu frá Balenciaga í stærð M og Metis tösku frá Louis Vuitton í litnum “Marine Rouge”.
MYND

Því miður er taskan þegar seld en hér er hlekkur á peysuna: https://attikk.is/Product/View/1167/Balenciaga-Knit-peysa

Gucci Flashtrek strigaskór
Næst tókum við upp þetta geggjaða eintak. Flastrek skórnir frá Gucci skartar óhefðbundnu en skemmtilegu lógói á tungunni sem sækir innblástur sinn til japanska tölvuleikjaframleiðandans SEGA. Skórnir skarta einnig kristöllum sem hægt er að fjarlægja fyrir einfaldara lúkk.

Gucci Flashtrek
Skórnir hafa verið mjög vinsælir hjá fræga fólkinu en t.d. hefur Billie Eilish sagt að hún eigi 5 pör af skónum til skiptana - en skórnir komu einmitt út í 5 mismunandi útfærslum/litum. Við eigum skóna í svörtum lit, með grænum botni í stærð 37. Hlekkur á skóna: https://attikk.is/Product/View/1840/Gucci-Flashtrek-SEGA-Skor-

Gucci horsebit sólgleraugu
Þessi ónotuðu Horsebit sólgleraugu frá Gucci eru geggjuð! Sólgleraugun eru frekar stór með fallegum, gylltum örmum sem skarta méli á hliðum.

Gucci Horsebit
Gleraugun eru ónotuð og með þeim fylgja upprunalegt hulstur, rykpoki og klútur sem er enn í plastinu. Hlekkur á sólgleraugun: https://attikk.is/Product/View/1782/Gucci-Horsebit-solgleraugu-

Outfit IV
Næst var þessi geggjaða Balenciaga hettupeysa mátuð en peysan skartar stóru lógói að framanverðu í regnbogalitum.
MYND

Peysan fæst í Attikk í stærð Large á 80.000,- krónur. Hlekkur á peysuna: https://attikk.is/Product/View/1871/Balenciaga-BB-regnboga-hettupeysa

Chanel hálsmen
Við gátum síðan ekki sleppt því að sýna ykkur frá þessari Chanel dásemd en hálsmenið er gyllt keðja með perlum í. Perlurnar eru síðan umlyktar klassísku CC lógóum úr gylltum málmi.

Chanel Pearl
Hlekkur á hálsmenið: https://attikk.is/Product/View/1630/Chanel-CC-gullkedja-med-perlum

Burberry hologram veski
Þetta skemmtilega hologram veski frá Burberry minnir mann smá á gömlu góðu dagana en útlit veskisins breytist eftir sjónarhorni. Þá er veskið annað hvort í klassíska Nova Check mynstrinu eða TB (Thomas Burberry) monogram mynstrinu.

Burberry Hologram

Veskið lækkaði nýlega í verði en var upprunalega á 30.000,- krónur en fæst núna á litlar 24.500,- krónur. Með veskinu fylgir rykpoki og kassi. Hlekkur á veskið: https://attikk.is/Product/View/1583/Burberry-Hologram-Monogram-Check-veski

Burberry hælaskór
Við gátum nú ekki hjá því komist að sýna ykkur einhverja skemmtilega hælaskó og urðu þessir geggjuðu Burberry hælar fyrir valinu. Hælaskórnir eru í klassíska Nova Check mynstrinu, með háum, svörtum hæl.

Burberry hælaskór
Skórnir eru til í stærð 38 á 32.000,- krónur. Hlekkur á hælaskóna: https://attikk.is/Product/View/1613/Burberry-Nova-Check-haelaskor
Síðast en ekki síst fannst okkur réttast að sýna ykkur frá þessari flottu tösku. Þessi Monogram Messenger taska frá Gucci er æði! Hún er unisex, með stillanlegri cross-body ól og í frábæru ástandi.

Gucci Messenger
Ekki láta þessa tösku fram hjá þér fara. Hlekkur á töskuna: https://attikk.is/Product/View/1990/Gucci-Web-GG-Supreme-Messenger

Vertu viss um að missa ekki af næsta þætti af Beint úr Attikk. 
Þú getur séð síðasta þátt í heild sinni á Facebook síðu Attikk. Hlekkur á þáttinn: https://www.facebook.com/watch/live/?ref=watch_permalink&v=1107326366479443

Við mælum með að þú fylgir okkur á Facebook og Instagram og kveikir á tilkynningum ef þú vilt vera viss um að missa ekki af! Þar til næst.