Veskin eru vinsæl hjá Attikk og koma til okkar í öllum stærðum og gerðum frá öllum helstu lúxusmerkjunum.
Lítið Portefeuille Victorine veski frá Louis Vuitton í Damier Azur canvas með ljósbleikum og gylltum áherslum. Veskið lokast með flipa (b-fold) og læsist með smellu. Að innan eru 6 kortahólf, tveir flatir vasar og sérhólf fyrir peningaseðla. Að auki er sér hólf er fyrir klinkið sem lokast með rennilás. Veskið er framleitt árið 2018. Með veskinu fylgir rykpoki og kassi.
Vitello Cruise veski með upphleyptu F monogrami í klassíska brúna tóbakslitnum og gulu leðri með silfur F logi. Veskið opnast og lokast eins og umslag og læsist með smellu. Veskið skiptist í þrjú hólf fyrir miðju er renndur vasi og sitthvoru megin við eru ýmist kortahólf og flatir vasar.