Christian Dior Crystal O hálsmen í gylltum tón með gylltri keðju og kristöllum á hengiskrauti. Hengiskrautið stafar DIOR. Athugið að það vantar einn stein í O-ið.
Ótrúlega veglegur 14k gullhúðaður blýpenni/skrúfblýantur frá must de Cartier. Trinity skraut á efsta hluta pennans, en Trinity er heitið yfir hönnun Cartier þar sem tveir eða fleiri hringir fléttast saman. Cartier er þekkt fyrir vandaða og þykka gullhúðun sem tryggir að hann eldist vel eins og þessi gersemi augljóslega gerir. Penninn er rifflaður sem tryggir gott grip. Efsti hluti pennans snýst í hálf hring til að ýta blýinu niður/upp. Kemur í upprunalegum og vönduðum kassa sem tryggir að penninn geymist vel. Það er smá far eftir blýið í kassanum á einum stað. Framleiddur á árunum 1975-1985 í París, Frakklandi.
Skemmtileg hárspenna frá Balmain í ljósbleikum lit (pastel pink) með 18K gull húðuðum pinna og lógó. Með spennunni fylgir upprunalegur kassi og rykpoki.
Fallegt úr frá Dolce & Gabbana í silfurlituðum lit með svartri sylgju. Upprunalegt box, tveir auka hlekkir og rykpoki fylgir með.
All stainless steel & water resistant
Tímalaust og glæsilegt Chanel cuff armband úr málmi og svörtu resin með „CC“ merki allan hringinn. Opið og stíft í hönnun, auðvelt að renna á úlnliðinn og passar flestum.
Ótrúlega fallegt vintage armband frá 1990 í Byzantine stíl eftir Victoire de Castellane fyrir Chanel. Armbandið er gyllt með rauðum, grænum og bláum steinum frá hinum sögufræga Gripoix glerframleiðanda. Box fylgir með sem er ekki upprunalegt.
Vintage Chanel Première úr frá árinu 1987 úr gullhúðuðu stáli. Skífan er svört og einföld, án talna, merkt CHANEL og SWISS með hvítum lit.
Ólin er fléttuð saman með gullhúðuðu stáli við svartan leðurþráð. Lengd ólar er 17 cm í ummál og er 10mm breið og hentar meðalstórum úlnið. Úrið gengur fyrir batteríi eða quartz.
Með úrinu fylgir upprunaleg bók, vottorð og kassi (frekar illað farið boxið en annað box fylgir með til að vernda úrið, ekki upprunalegt).
Hermès Behapi Double Tour armband úr svörtu leðri með silfurlituðum málmi sem lokast með sylgjum. Armandið vefst tvöfaldri lykkju um úlnliðinn. Box fylgir með (ekki upprunalegt)
Tag Heuer SEL gold úr frá ca. 1990. Úrið er úr gráu möttu málmi og „step“ úrskífu. Skífan hefur upphleypt klukkutímamerki og sýnir dagsetningu við vísinn kl. 3. Úrið gengur fyrir quartz. Armbandið er úr stáli og gullhúðuðu efni. Með úrinu fylgir kassi.
Fendi úr með Canvas Zucchino Logo cloth ól og bronze málmi. Skífan er hvít á litinn og skartar diamond like steinum sem sýnir klukkutímana. Einnig stendur Fendi í gylltum/bronze stöfum á skífunni. Úrið gengur fyrir Quartz og þegar þetta er ritað virkar úrið og batterí er í lagi (22. júní 2025). Því miður getum við ekki ábyrgst ef batterí verður búið. Með úrinu fylgir kassi.
Glæsilegt úr frá Gucci í hvítum lit með ljósri ól sem skartar eftirsóttu web (rauð og græn) línunni. Skífan er einnig hvít á litinn og umgjörðin úr ryðfríu stáli. Úrið er vatnshelt og kemur í upprunalegum kassa með meðfylgjandi bæklingi.
Hrikalega fallegir, vintage klemmueyrnalokkar frá Chanel í gullhúðuðum málm með hvítri glerperlu. Rykpoki fylgir með.
Eyrnalokkarnir koma frá einstöku tímabili Lagerfeld og Castellane í kringum 1980, sem ekki verður endurtekið.
Fallegt vintage Christian Dior octagon úr sem gengur fyrir quartz. Úrið er í gylltum málm en skífan er hvít á litinn og skartar CD stöfunum fyrir miðju og sýnir dagsetninguna neðst. Ath. ástand.