Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!
Hrikalega falleg og eftirsótt LouLou taska frá Yves Saint Laurent. Taskan er í svörtu vatteruðu kálfaleðri með silfur málm. Eitt aðalhólf sem opnast með segli og þar innan í eru nokkur hólf, eitt rennt, eitt opið en aðalhólfið skiptist í tvennt.
Hentug og falleg ''wallet on chain'' hliðartaska frá Chanel úr endingargóða og klassíska Caviar leðrinu í hvítu. Taskan opnast með smellu og hefur nokkur hólf, tvö rennd, tvö opin og sex kortahólf.
Æðisleg og sæt Chanel boy taska íi gráu lambaleðri með glansandi silfur málm. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl. Taskan var framleidd í kringum 2017 - 2018.
Ótrúlega falleg Boy taska frá Chanel í glæsilegum baby pink lit með silfur málm. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl.
Vintage Fendi Tote Zucca taska með gylltum áherslum úr FF canvas. Taskan hefur eitt rúmgott aðalhólf sem lokast með rennilás. Að innan er einn minni flatur vasi sem hægt er að renna. Á töskunni eru handföng úr brúnu leðri sem eru áföst með fallegum gylltum FF áherslum. Á hliðunum eru smellur og er í boði að smella endunum að ofan á smellurnar og "minnka" útlitið á töskunni.
Falleg, lítil taska frá Chloe í rauðu leðri með gylltum málm, eitt rennt aðalhólf og þar innan í er eitt auka rennt hólf.
Louis Vuitton Amarante Vernis Brea burgandy taska með gylltum áherslum. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf sem inniheldur einn minni flatan vasa. Með töskunni fylgir fjarlægjan ól sem krækist í sérstaka hanka. Með töskunni fylgir rykpoki.
Flott og hentug Off The Grid tote taska frá Gucci. Taskan er úr svörtu nylon-efni með endurteknu „GG“ mynstri og glæsilegu gylltu „Gucci“ lógói að framan. Eitt stórt aðalhólf með tveimur auka renndum hólfum. Með töskunni fylgir löng axlaról, þannig að auðvelt er að bera hana bæði yfir öxl eða í hendi – eftir tilefni og stíl.
Klikkað flott hliðartaska frá Alexaander McQueen í ljósu quilted lambaleðri með silfur málm. Að framan er graffað silfur ''McQueen'' lógó og málmskraut sem rúmar fjóra fingur. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf með einu auka kortahólfi. Upprunalegur rykpoki, kassi og poki sem fylgir með. Hriklega töff taska og fylgir einnig upprunalegu miði.
Falleg New Wave Multi Pochette taska frá Louis Vuiitton í svörtu kálfaleðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf með einu auka hólfi ofan í. Tvær ólar fylgja með, ein lítil keðjuól og önnur lengri tauól með fjarlægjanlegri buddu. Upprunalegur rykpoki fylgir með, kassi og verslunarpoki.
Ótrúlega falleg taska frá Gucci í svörtu matelasse leðri með gylltum málm. Sterkur segull er á töskunni sem lokar og inní töskunni er pastel bleikt rúskin, tvö stór hólf og lítil hólf fyrir smáhluti á sitthvorri hliðinni, annað er rennt og hitt er opið.
Virkilega falleg Pochette Twin GM taska frá Louis Vuitton í klassískum brúnum monogram canvas. Eitt aðalhólf sem lokast með smellu, í því er opinn vasi sem rúmar flesta snjallsíma.
Prada tote taska í svörtu nylon efni með patent leðri og hvítum saumum. Eitt opið aðalhólf með einu auka renndu hólfi og krók til að loka aðalhólfinu.
Hliðartaska frá Burberry í svörtu nylon efni með Burberry lógó. Eitt rennt aðalhólf með þremur kortahólfum og einu auka renndu hólfi að framan.
Ótrúlega falleg Baguette taska frá Fendi í brúnu leðri með silfur málm og handsaumuðum áherslum meðfram brúnum. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf með einu auka renndu hólfi ofan í. Upprunalegur rykpokii og tvær fjarlægjanlegar ólar fylgja með, ein lengri og hin styttri. Kostar ný €3,600, eða 490.500isk á núverandi gengi.
Æðisleg brún Bowling axlartaska frá Prada. Taskan er vintage og með mikinn persónuleika en ummerki um fyrri notkun gefa henni svolítið "distressed" útlit. Einn renndur vasi er að framanverðu. Innvols er stórt og tvískipt með einum renndum smáhlutavasa og einum opnum vasa.
Glæsileg Dauphine taska frá Louis Vuitton í svörti Epi leðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf sem skiptist í þrennt, tvö opin og eitt rennt hólf. Með töskunni fylgir bæði fjarlægjanleg keðjuól og leðuról, m.a. upprunalegur rykpoki.
Falleg Tote taska frá Gucci í svörtu glans coated canvas með leður höldum. Eitt rennt rúmgott aðalhólf með þremur auka hólfum, tvö opin og eitt rennt.
Glæsileg Hudson taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka opnum hólfum. Þrjú auka hólf eru að framan, tvö sem opnast með smellu og eitt rennt. Framleidd árið 2006.
Falleg, vintage taska frá Gucci í supreme mynstrinu með web (rauð & græn) línunni að framan, dökkbrúnu leðri og gylltum málm. Eitt aðalhólf með auka opnu hólfi.
Skemmtileg Tote taska frá Fendi í endurtekna ''FF'' mynstrinu með fjólubláum saum og innvolsi. Eitt rennt aðalhólf með þremur auka hólfum, eitt rennt og tvö opin.
Æðisleg My Dior Daily taska frá Christian Dior í svörtu lambaleðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur sex kortahólf, eitt rennt hólf og tvö opin. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Ótrúlega vinsæl og hentug Favorite taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Taskan opnast með segli og hefur eitt aðalhólf með einu auka hólfi. Tvær ólar fylgja töskunni, ein fjarlægjanleg leðuról og ein keðjuól. Taskan var framleidd árið 2014.
Ótrúlega vinsæl Saint Louis PM tote taska frá Goyard. Taskan er í gulu Goyardine mynstrinu með ljósu innvolsi og handmáluðu rauðu og hvítu GOYARD hjarta að framan. Eitt opið aðalhólf og lítið auka veski sem er krækt í með bandi sem er hægt að fjarlægja sem er einnig í sama mynstri og með gulltónuðum málmum. Vegna þess að Goyard töskur er ekki hægt að kaupa á netinu heldur alfarið í verslunum þeirra reynast þær mjög eftirsóttar. Þessi taska er fyrsta sinnar tegundar í verslun Attikk. Upprunalegur gulur rykpoki fylgir með.