Spænski hönnuðurinn Cristóbal Balenciaga stofnaði lúxus tískuhúsið Balenciaga árið 1917. Skoðaðu úrvalið af Balenciaga merkjavörunum hjá Attikk.
Triple S strigaskór frá Balenciaga í svörtum lit með hvítu lógó og glærum botn.
Hrikalega töff neon græn Le Cagole hliðartaska frá Balenciaga í minnstu stærðinni. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og stillanleg ól. Einnig er fjarlægjanlegt veski og spegill að framan. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Æðislegir eyrnalokkar frá Balenciaga úr gylltum kopar. Rykpoki og box fylgir.
Ljós og flott Balenciaga Signature tote taska í miðlungs stærð úr slitsterku brúnu PVC efnu með leðuráferð. Taskan er framleidd á Ítalíu og er endingargóð og stílhrein. Hún er með tveimur leðurhandföngum og hefur eitt opið aðalhólf. Að innan er tau fóður með einu auka renndu hólfi á hliðinni.
Klikkað falleg Cagole Neo hliðartaska frá Balenciaga í ljósu denim efni. Taskan er sjaldséð á endursölumarkaðnum. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf er á töskunni með tveimur auka hólfum, eitt rennt er að framan og eitt rennt í innvolsi. Fléttað handfang og glæsileg detail eru á töskunni, m.a. gimsteinar á málmkúlunum. Með töskunni fylgir hangandi spegill & veski sem hægt er að fjarlægja og upprunalegur rykpoki.