Franska tískuhúsið Chanel er eitt af stærri lúxus merkjum í heimi. Chanel var stofnað árið 1910 af Coco Chanel. Töskurnar frá Chanel eru einstaklega vinsælar og hækka margar þeirra í verði eftir því sem þær verða eldri.
Æðislega bleik Medium Boy Flap taska frá Chanel úr endingargóða og klassíska Caviar leðrinu í bleikum lit. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl. Málmurinn er burstaður gylltur/kopar og fylgir upprunalegur rykpoki með töskunni. Sanngildiskortið vantar. Taskan var framleidd árið 2018.
Taskan er úr fallegu svörtu lambaskinni og skartar gylltum málmi. Aðalhólfið er rennt og hefur að geyma tvo minni vasa en annar þeirra er renndur og hinn opinn. Upprunalegur rykpoki og sanngildiskort fylgir. Taskan er framleidd á tímabilinu 1994-1996.
Æðisleg Chanel tote taska í svörtu lambaleðri með 24K gullhúðuðum málm. Eitt rennt aðalhólf og fjögur auka hólf, tvö rennd í innvolsi, eitt opið að aftan og annað að framan sem lokast með klassíska ''CC'' turn lock. Taskan er frá ca 1994 - 1996.
Glæsileg Boy taska frá Chanel í svörtu slitsterku caviar leðri með gylltum málm. Eitt aðalhólf sem opnast með flipa, þar ofan í er eitt auka hólf. Taskan er í stærð Medium og var framleidd árið 2018. Upprunalegur rykpoki með.
Single Flap hliðartaska frá Chanel í svörtu lambaleðri með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf með einu auka renndu hólfi
Hentug snyrtitaska frá Chanel í svörtu eftirsótta quilted lambaleðri. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með einu auka renndu hólfi og teygjum í innvolsi. Framleidd árið 1986 - 1988.