Eitt af vinsælli lúxus merkjum hjá íslendingum þessa dagana er Gucci. Hjá Attikk kemur mikið af vörum frá þeim í hverri einustu viku og eru þær oft á tíðum jafn fljótar að fara í hendur nýrra eiganda. Verandi vinsælt merki er einnig algengt að eftirlíkingar séu í umferð, viðskiptavinir Attikk geta verið vissir að allar Gucci vörur sem seldar eru hjá Attikk séu ekta þar sem þær gangast allar undir ítarlega skoðun hjá sérfræðingum.
Ótrúlega falleg tote taska frá Gucci í brúnu endurtekna ''GG'' mynstrinu í velvet efni og með web (rauð & græn) línu og tígrisdýr að framan. Eitt opið aðlhólf sem lokast með smellu, Með töskunni fylgir veski með í sama mynstri og upprunalegur rykpoki.
Glæný og ónotuð GG Supreme Ophidia mittistaska frá Gucci með hvítu leðri og burstuðum gulllituðum málmi. Eitt stórt aðalhólf með segullokun. Uppranlegur rykpoki og kassi fylgja.
Flott, vintage hliðartaska frá Gucci í dökkbláu leðri með Supreme mynstrinu og Web (blá og rauð) línu lárétt niður miðja töskuna. Eitt rennt aðalhólf með einu auka hólfi að framan. Allur málmur gylltur.
Camera taska frá Gucci í Supreme mynstrinu með brúnu leðri og silfur málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka renndu hólfi.
Hentug, vintage hliðartaska frá Gucci í Supreme mynstrinu með web skrauti að framan og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni.
Vintage taska frá Gucci í Supreme mynstrinu með web (rauð og græn) línunni að framan og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf sem skiptist í þrjú hólt, í einu hólfinu er auka rennt hólf.
Skemmtileg og falleg bucket taska frá Gucci í svörtu leðri með gylltum málm og bambus haldfangi. Með töskunni fylgir gyllt, fjarlægjanleg keðjuól og opnast taskan með smellu.
Fjölhæf Pouch clutch taska frá Gucci í dökkbláu GG Supreme mynstri úr Ophidia línunni. Virkar vel sem clutch taska eða jafnvel undir snyrtivörurnar. Í innvolsi er einn lítill vasi. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Ótrúlega flott og hentug Messenger hliðartaska frá Gucci í svörtu GG Supreme Monogram. Svartar leður áherslur og silfurlitaðir málmar. Web (blá og rauð) ól. Eitt rúmgott aðalhólf, þar fyrir innan er lítill flatur vasi og rúmgóður renndur vasi. Framan á töskunni er einnig rúmgóður renndur vasi.
Vintage Gucci GG Supreme hliðartaska með svartri leður umgjörð og Sherry Line (blá og rauð) niður miðjuna. Opnast með flap sem leggst yfir töskuna og lokast með smellu. Eitt opið aðalhólf og renndur vasi þar fyrir innan. ATH ástand.
Gucci Ophidia GG Supreme canvas, Web (blá og rauð) lína lárétt niður miðja töskuna. Eitt rennt aðalhólf sem opnast að ofan verðu, þar fyrir innan er eitt rennt auka hólf. Rennt hólf framan á töskunni.
Glæsileg Bamboo Suede axlartaska frá Gucci. Suede efnið er með endurtekna GG lógóinu. Rennt aðalhólf og auka rennt hólf í innvolsi. Bambus haldfang sem er svart málað.
Æðisleg Sherry Line tote taska frá Gucci með hvítu GG Plus Supreme canvas. Eitt stórt opið aðalhólf, auka opið hólf framan á töskunni sem lokast þó með smellu. Web (grænt og rautt) höldur og gylltur málmur framan á töskunni. ATH ástand.
Einstök Padlock taska frá Gucci í kálfaleðri með gulltóna göddum og perluskrauti. Eitt rúmgott aðalhólf og flatur vasi að innan. Gulltóna keðju ól fylgir með sem er bæði hægt að hafa einfalda sem crossbody eða tvöfalda sem axlartösku. Upprunalegur rykpoki, tveir lyklar á bandi og í hulstri fylgja með. ATH ástand.
Æðisleg Ophidia taska, með Web línu (rauð og græn) fyrir miðju, frá Gucci í GG Supreme canvasnum af stærðinni Small. Taskan opnast með smellu undir flipanum (e. flap), þar undir er eitt rúmgott aðalhólf, einn frekar rúmur flatur vasi þar fyrir framan. Í aðalhólfinu er einn flatur renndur vasi og opinn flatur vasi. Allur málmur er gylltur. Brúnt leður á slitflötum og er stillanlega ólin í sama leðri. Upprunalegur rykpoki og kassi fylgir með. Kostar ný um 275.000kr.
Falleg og vinsæl Gucci Marmont hliðartaska í svörtu Matelassé leðri með ísaumuðu hjarta á bakhlið. Í töskunni er eitt aðalhólf sem opnast með smellu, og lítill opinn vasi að innan. Allur málmur er gylltur.
Sæt, lítil bucket taska frá Gucci í klassíska endurtekna ''GG'' mynstrinu með web (rauð og græn) línunni að neðan. Eitt aðalhólf sem lokast með togbandi og stillanleg axlaról. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með.
Glæsileg Soho Tote taska frá Gucci í hvítum lit með gylltum málm og áhangandi kögri að framan. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með þremur auka hólfum, tveimur opnum og einu renndu, upprunalegur rykpoki fylgir með. Fullkomin hversdagstaska!
Skemmtileg top handle taska frá Gucci í svörtu leðri með rauðum köntum og gylltum málm. Eitt aðalhólf sem opnast með smellu, þar ofan í er eitt auka opið hólf í innvolsi. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki og fjarlægjanleg ól.
Vegleg Ipanema GM taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Einn opinn vasi að framanverðu. Aðalhólf er rennt og hefur að geyma tvo minni opna vasa að innanverðu.
Klikkað flott Off The Grid Duffle taska frá Gucci. Taskan er úr svörtu nylon-efni með endurteknu „GG“ mynstri og glæsilegu gylltu „Gucci“ lógói að framan. Taskan er með eitt rúmgott rennt aðalhólf og tveimur auka hólfum að innan, sem gerir hana fullkomna bæði fyrir stuttar ferðir, ræktina eða sem stílhreina helgartösku. Með töskunni fylgir löng axlaról, þannig að auðvelt er að bera hana bæði yfir öxl eða í hendi – eftir tilefni og stíl.
Vintage Clutch taska frá Gucci í GG Supreme útgáfu og skartar Web flipa (grænu og rauðu línunum) að framanverðu. Eitt stórt aðalhólf með minni vasa sem er hægt að smella.