Eitt af vinsælli lúxus merkjum hjá íslendingum þessa dagana er Gucci. Hjá Attikk kemur mikið af vörum frá þeim í hverri einustu viku og eru þær oft á tíðum jafn fljótar að fara í hendur nýrra eiganda. Verandi vinsælt merki er einnig algengt að eftirlíkingar séu í umferð, viðskiptavinir Attikk geta verið vissir að allar Gucci vörur sem seldar eru hjá Attikk séu ekta þar sem þær gangast allar undir ítarlega skoðun hjá sérfræðingum.
Falleg Gucci Python axlartaska í snáka líkis leðri og með svörtu bambus haldfangi. Málmar eru gulltónaðir og er áfast lítið veski sem fylgir með.
Gucci hliðartaska í svörtu nylon efni með web (rauð & græn) línunni að framan og svörtu GG lógó. Eitt rennt aðalhólf með þremur auka hólfum, eitt rennt, eitt opið og annað með smellu. Stillanleg ól.
Krúttleg og sæt mini taska frá Gucci í drapplituðum lit með endurtekna ''GG'' munstrið og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og eitt auka hólf.
Hentug Messenger hliðartaska frá Gucci í svörtu GG Supreme mynstri með svartar leður áherslur og silfur málm. Web (blá og rauð) stillanleg ól er á töskunni og eitt rúmgott aðalhólf, þar fyrir innan er lítill flatur vasi og rúmgóður renndur vasi. Framan á töskunni er einnig renndur vasi.
Vegleg Ipanema GM taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Einn opinn vasi að framanverðu. Aðalhólf er rennt og hefur að geyma tvo minni opna vasa að innanverðu.