Fjölbreytt úrval af fatnaði frá öllum helstu lúxus merkjunum. Auk gullmola frá "Street Fashion" merkjunum. Hjá Attikk finnur þú fjölbreytt úrval af fatnaði í flestum stærðum sem hefur verið vottaður sem ekta af sérfræðingum í hverju merki fyrir sig. Mundu að Attikk er bara með eitt eintak af hverri vöru þannig þú gætir þurft að hafa hraðar hendur.
Glæsilegur jakki frá Moncler í dökkum lit, með fjórum vösum að framan og tveimur rennilásum.
Fallegur sundboldur frá Chanel í bleikum, bláum og hvítum lit. Hliðarnar eru með opum og þar á milli er fallegt ''CC'' kristalla lógó. Frá 2022 Collection eftir Virginie Viard.
Hrikalega flott silki skyrta frá Versace með Baroque Medusa mynstri. Skyrtan er hneppt upp að framan og er í Heritage Fit (sniði). Efsta hneppan á skyrtunni er gulllituð og er með Medusa merkinu, hinar tölurnar eru svartar. Virkilega flott og smart skyrta í stærð 48.
Flott síðúlpa frá Moncler í svörtum lit, bæði tölur og rennilás er á úlpunni og dökkt Moncler lógó á ermi. Ath. ástand
Skemmtilegur jakki frá Moncler í dökk bláum lit með rauðum og hvítum línum.
Jonathan Giubbotto jakki frá Moncler í svarbláum lit með fimm vösum og hettu sem hægt er að fela.
Töff dúnúlpa frá Moncler í svörtum lit með svörtu lógó. Tveir renndir vasar eru á hliðunum. Ath ástand
Skemmtilegur vindjakki frá Moncler í bláum, hvítum og rauðum lit. Tveir renndir vasar eru á hliðunum.
Glæsileg úlpa frá Moncler í dökkum lit með lógó á ermi. Tveir vasar eru á hliðunum.
Ótrúlega falleg skyrta frá Prada í ljósbláum lit með svörtu lógó að framan. Tveir vasar eru að framan.
Glæsilegur kjóll frá Gucci í ljósum lit með svörtum gervivösum og slaufu. Allar tölur eru gylltar og er rennilás að aftan. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Ótrúlega fallegur kjóll frá Gucci í svörtum lit, með web (rauð, hvít og blá) línum og slaufu. Rennilás er að framan sem hægt er að renna alla leiðina niður.
Skemmtilegur kjóll frá Gucci. Kjóllinn er rauður á litinn og hefur bleikt hálsmál með slaufu að framan. Framan á kjólnum fyrir miðju eru hnappar með bleikum steinum sem fer alla leið niður. Einnig eru sömu hnappar á sitthvoru erminni. Kjóllinn renndur að aftan.
Flottar gallabuxur frá Prada í gráum washed lit og lógó að aftan. ''Classic fit''
Glæsilegar gallabuxur í gráum washed lit með hvítu lógó að aftan. ''Tapered fit''
Glæsilegur og eftirsóttur Kensington rykfrakki frá Burberry í svörtum lit með Nova Check mynstur að innan. Tveir vasar eru á hliðunum og fylgir mittisband með. Hægt er að stíla rykfrakkann á svo margar vegur, fullkominn fyrir haustið!
Yves Saint Laurent Fourrures vintage leðurkápa úr brúnu leðri með loðfóðruðum kraga sem nær niður að framan, einnig er loð á ermum og faldi. Kápan lokast með belti í mitti og er með opna vasa að framan. Framleidd í Frakklandi og er ca. frá árunum 1978–1983. Algjör vintage gersemi hér á ferð! Yves Saint Laurent Fourrures var sérstök pelsa- og skinnlína sem var framleidd seint á árunum 1970s og fram yfir 1980 en náði hámarki á árunum 1978–1985.
Svört Alamandin jakki frá Moncler með silfur áherslum. Þessi dúnjakki er úr nælonefni og er innblásin frá 5. áratugnum og líkist jakka með klassísku sniði frá þeim tíma. Jakkinn er með kringlóttum kraga, útvíðum ermum með reimum til að stilla sniðið. Að framan eru tveir opnir framvasar og á vinstri ermi er klassíska Moncler lógoið. Úlpan tilheyrir Longue Saison línunni.
Sjaldgæfur, flottur og vel með farinn svartur frakki frá Prada. Frakkinn er með tvöföldum tölum að framan sem hægt er að hneppa í báðar áttir og er aðsniðinn.