Gullfallegt Lady Datejust úr frá Rolex sem er 26mm í þvermál. Úrið er með Jubilee, tvílitaðri (e. two-tone) keðjuól, annarsvegar úr ryðfríu stáli og hinsvegar 18k gulli. Skífan er svört og með demöntum (steinum) við hvern heilan klukkutíma fyrir utan þegar klukkan slær 12, þar er einkennandi Rolex kórónan og þar sem 3 ætti að vera er Cyclops stækkunargler með dagsetningu. Upprunalegur úra kassi, gjafakassi, pappírar og kort. Einnig fylgja tveir auka hlekkir með. Serial: W Ref: 69173 Movement: 2135
Glæsilegt Rolex Datejust 36, ref.16233, í klassískri tvítóna útfærslur úr ryðfríu stáli og 18k gulli. Úrið skartar fallegri kónga blárri skífu með demöntum og gylltum vísum, riffluðum gullramma (fluted bezel) og hinu sígilda Jubilee-ól frá Rolex. Úrið býr yfir sjálfvirku Rolex Caliber 3135 gangverki og dagsetningarglugga með Cyclops-stækkunargleri. Gler úrsins er Safírgler og er úrið árgerð 1994. Með úrinu fylgir veglegur Rolex kassi, ekki sá sem fylgdi með úrinu upprunalega en þó Rolex kassi í góðu ástandi. Úrið var ekki vottað af sérfræðingum Attikk heldur hefur það verið yfirfarið af úrasmiði sem staðfesti raðnúmer úrsins við gagnagrunn Rolex.