Verslaðu merkjavöru á afslætti Versla Núna

Frí sending í póstbox innan Íslands

Allar vörur eru vottaðar Ekta af sérfræðingum

Attikk Merkjavörur Louis Vuitton

Louis Vuitton

Stærsta úrval landsins af vottuðum Louis Vuitton vörum. Attikk fær til sín í sölu mikið að Louis Vuitton vörum í hverri viku. Þetta franska tískuhús var stofnað árið 1854 af Louis Vuitton og er mjög vinsælt meðal Íslendinga. Þó nokkuð er af eftirlíkingum af Louis Vuitton í umferð hérna heima og því mikilvægt að kaupa eingöngu vottaðar vörur þegar það er keypt notað.

Louis Vuitton Blois hliðartaska Louis Vuitton Blois hliðartaska
Louis Vuitton Blois hliðartaska 130.000 kr

Glæsileg hliðartaska frá Louis Vuitton. Taskan er í brúna Monogram canvasinum með gylltum málm. Þrjú hólf eru á töskunni, eitt gott aðalhólf með einu opnu hólfi og eitt auka opið hólf að framan. Stillanleg ól og framleidd árið 2006.

Louis Vuitton Artsy MM taska Louis Vuitton Artsy MM taska
Louis Vuitton Artsy MM taska 190.000 kr

Hrikalega flott Artsy MM hliðartaska frá Louis Vuitton í monogram canvas og gylltum málm. Eitt rúmgott, opið aðalhólf er á töskunni með auka hólfum ofan í, eitt rennt og fimm opin. Með töskunni kemur lyklakippuól sem hægt er að fjarlægja.

Louis Vuitton Alma PM taska Louis Vuitton Alma PM taska
Louis Vuitton Alma PM taska 50.000 kr

Louis Vuitton Alma taska í monogram canvas með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka opnu hólfi.

Louis Vuitton Speedy 30 Bandoulière taska Louis Vuitton Speedy 30 Bandoulière taska
Louis Vuitton Speedy 30 Bandoulière taska 175.000 kr

Glæsileg og vinsæl Speedy 30 frá Louis Vuitton í damier ebene canvas og gylltum málm. Eitt rennt stórt aðalhólf með einu auka hólfi. Með töskunni fylgir fjarlægjanleg ól, lás og lykill, upprunalegur rykpoki og kassi. Taskan var framleidd árið 2017.

Louis Vuitton x TSA lás og lyklar Louis Vuitton x TSA lás og lyklar
Louis Vuitton x TSA lás og lyklar 21.000 kr

Lás og lyklar frá Louis Vuitton í sérstakri ferðaútgáfu og í samstarfi við TSA, Transportation Security Administration - sem er hliðstætt íslensku Tollgæslunni. Kemur í upprunalegum rykpoka.

Louis Vuitton Keepall Bandoulière 50 Louis Vuitton Keepall Bandoulière 50
Louis Vuitton Keepall Bandoulière 50 180.000 kr

Æðisleg og eftirsótt Keepall Bandoulière frá Louis Vuitton í stærðinni 50. Eitt rennt aðalhólf. Framleidd í Frakklandi, Janúar 1998. Upprunalegur rykpoki og Vachetta ól fylgir með.

Louis Vuitton Keepall 50 taska Louis Vuitton Keepall 50 taska
Louis Vuitton Keepall 50 taska 129.000 kr

Vintage keepall taska frá Louis Vuitton í klassíska monogam canvas og gylltum málm. Eitt stórt og rennt aðalhólf er á töskunni og fylgir bæði merkispjald og lítil ól til að festa saman handföngin - framleidd 1991

Louis Vuitton Favorite taska Louis Vuitton Favorite taska
Louis Vuitton Favorite taska 199.990 kr

Falleg og nett Favorite hliðartaska frá Louis Vuitton í brúnum monogram canvas með gylltum málm. Taskan opnast með segli að framanverðu og hefur að geyma eitt rúmgott aðalhólf ásamt flötum minni vasa þar fyrir innan. Leður crossbody ól sem hægt er að fjarlægja fylgir með. Framleidd 2016.

Louis Vuitton Keepall 55 taska Louis Vuitton Keepall 55 taska
Louis Vuitton Keepall 55 taska 149.000 kr

Hin sívinsæla og klassíska Vintage Keepall 55 taska frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvasnum með gylltum málmi. Taskan passar í farangurshólf flugvéla og smellpassar í skottið fyrir ferðalögin. Eitt rennt stórt aðalhólf, framleidd 1991. Með töskunni fylgir nafnspjald og lítil leðuról til að festa haldföngin saman.

Louis Vuitton Keepall 50 taska Louis Vuitton Keepall 50 taska
Louis Vuitton Keepall 50 taska 129.000 kr

Flott, vintage keepall 50 taska frá Louis Vuitton í monogram canvas, ljósu leðri og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf og fylgir nafnspjald með og lítil leðuról til að festa haldföngin saman.

Louis Vuittton Zippy XL veski Louis Vuittton Zippy XL veski
Louis Vuittton Zippy XL veski 80.000 kr

XL zippy veski frá Louis Vuitton í Eclipse canvas með silfur málm. Eitt aðalhólf sem skiptist í þrjú hólf, þar ofan í eru þrjú auka opin hólf, eitt rennt og 16 kortahólf. Upprunalegur kassi fylgir með.

Louis Vuitton Monogram Bomber jakki Louis Vuitton Monogram Bomber jakki
Louis Vuitton Monogram Bomber jakki 180.000 kr

Æðislegur Louis Vuitton Bomber jakki í monogram denim mynstri með leður örmum.

Louis Vuitton Arizona Eclipse skór Louis Vuitton Arizona Eclipse skór
Louis Vuitton Arizona Eclipse skór 34.000 kr

Flottir Arizona mokkasíur frá Louis Vuitton í Eclipse mynstrinu, upprunalegur rykpoki fylgir með.

Louis Vuitton Passy hliðartaska Louis Vuitton Passy hliðartaska
Louis Vuitton Passy hliðartaska 290.000 kr

Æðisleg hliðartaska frá Louis Vuitton. Taskan opnast að framan undir svörtu og gylltu stóru LV lógói, þar undir er segulloki. Innvols er vínrautt og með einu rúmgóðu hólfi ásamt renndum vasa. Þar fyrir framan er opinn auka vasi. Málmar eru gulltóna, fyrir utan lógó að framan. Einnig er opinn flatur vasi aftan á töskunni. Gyllt keðjuól sem er að hluta með svörtu leðri fyrir aukin þægindi. Ólina er hægt að hafa einfalda eða tvöfalda. Fylgir upprunalegur rykpoki og verslunarpoki með.

Louis Vuitton Atoll Organizer veski Louis Vuitton Atoll Organizer veski
Louis Vuitton Atoll Organizer veski 38.000 kr

Hentugt veski frá Louis Vuitton í svörtu leðri með LV lógó neðst. Tólf kortahólf eru á veskinu, fimm opin hólf, eitt rennt og ein teygja. Framleitt árið 2013.

Louis Vuitton Neverfull MM taska + Pochette Louis Vuitton Neverfull MM taska + Pochette
Louis Vuitton Neverfull MM taska + Pochette 180.000 kr

Geggjuð sæt Louis Vuitton Neverfull taska, Taskan er i stærð MM, í brúnum monogram canvas og með dökkbleiku fóðri. Pochette fylgir sem hægt er að krækja í töskuna innan frá. Taskan kostar 225.000 - 270.000 ný hjá Louis Vuitton en heldur verðgildi sínu og jafnvel hækkar í virði ef vel er farið með hana.

Louis Vuitton Petite Malle crossbody Louis Vuitton Petite Malle crossbody
Louis Vuitton Petite Malle crossbody 414.000 kr

Stór glæsileg Petite Malle taska frá Louis Vuitton sem var framleidd í október 2017. Taskan er í svörtu Epi og kálfa leðri, svörtum málmum á hornum ásamt gull tóna málm áherslum víða. Taskan opnast að framan og losnar þá leður flipinn sem leggst yfir töskuna og opnast hún þá að ofan. Taskan sjálf lokast með segli og er ljós að innan með einum flötum vasa. Svört þunn crossbody ól, stillanleg, fylgir með og er hægt að hafa töskuna með eða án hennar. Einnig fylgir upprunalegur rykpoki með. Taskan er enn til sölu hjá LV og kostar hún 5,200 evrur sem er um 748.000 isk.

Louis Vuitton Luco Monogram taska Louis Vuitton Luco Monogram taska
Louis Vuitton Luco Monogram taska 100.000 kr

Luco Tote taska frá Louis Vuitton í klassíska monogram mynstrinu. Í aðalhólfinu er einn stór renndur vasi og annar opinn. Tveir minni opnir vasar sem flestir snjallsímar myndu passa í og gamaldags símahólf. Rykpoki fylgir.

Louis Vuitton Noé GM Bucket taska Louis Vuitton Noé GM Bucket taska
Louis Vuitton Noé GM Bucket taska 65.000 kr

Noé Bucket taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf og stillanleg ól.

Louis Vuitton Lussac taska Louis Vuitton Lussac taska
Louis Vuitton Lussac taska 100.000 kr

Falleg tote taska frá Louis Vuitton í glæsilegu grænu Epi leðri með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt og eitt opið, einnig er krókur í innvolsi. Taskan var framleiddí nóvember 1995 í Frakklandi.

Louis Vuitton Capucines Mini Phyton taska Louis Vuitton Capucines Mini Phyton taska
Louis Vuitton Capucines Mini Phyton taska 829.990 kr

Klikkað falleg Capucines taska frá Louis Vuitton. Taskan er með opnu aðalhólfi þar sem Python flipi leggst yfir að hluta og er hægt að smeygja inn fyrir leður rönd að innan verðu til að halda í stað. Á enda flipans er fallega LV blómið í gylltum málmi. Undir flipanum er rúmgott aðalhólf sem er tvískipt og í innra hólfinu er flatur vasi. Python haldfang og gylltir málmar. Breið svört leðuról sem er hægt að fjarlægja, upprunalegur rykpoki og upprunalegur kassi fylgir með. Framleidd í lok febrúar 2020 í Frakklandi.

Louis Vuitton Marignan Satchel taska Louis Vuitton Marignan Satchel taska
Louis Vuitton Marignan Satchel taska 225.000 kr

Tryllt Louis Vuitton Marignan taska í monogram canvas með svörtu leðri og gylltum málm. Fjarlægjanleg og stillanleg crossbody ól. Opnast með segli undir lása skrautinu að framan, eitt stórt opið hólf sem hefur að geyma þrjú þunn hólf í hliðunum, eitt nokkuð stórt og annað í sömustærð sem er tvískipt. Framan á töskunni, en þó undir seglinum er annað opið hólf. Upprunalegur rykpoki fylgir með. Framleidd í Febrúar árið 2019 í Frakklandi.

Louis Vuitton Neverfull MM Damier Ebene taska Louis Vuitton Neverfull MM Damier Ebene taska
Louis Vuitton Neverfull MM Damier Ebene taska 180.000 kr

Ótrúlega vinsæl, hentug og glæsileg Neverfull taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene mynstrinu með gylltum málm. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með eitt auka rennt hólf og krók. Taskan var framleidd árið 2011 og hægt er að snúa töskunni við og nota hana öfuga, sem er sjúklega kúl! Kostar ný $2,170.00, eða 265,260isk á núverandi gengi.

Louis Vuitton Star Trial Boots (36) Louis Vuitton Star Trial Boots (36)
Louis Vuitton Star Trial Boots (36) 110.000 kr

Star Trail ökklastígvél frá Louis Vuitton í brúna Monogram mynstrinu og svörtu kálfaleðri. Kosta $1,900.00 hjá Louis Vuitton, eða 232,237 á núverandi gengi.

Verslun
Leita
Aðgangur
0
Óskalisti
0
Karfa
Innskráning
Filter
Sýna seldar vörur