Eitt af vinsælli lúxus merkjum hjá íslendingum þessa dagana er Gucci. Hjá Attikk kemur mikið af vörum frá þeim í hverri einustu viku og eru þær oft á tíðum jafn fljótar að fara í hendur nýrra eiganda. Verandi vinsælt merki er einnig algengt að eftirlíkingar séu í umferð, viðskiptavinir Attikk geta verið vissir að allar Gucci vörur sem seldar eru hjá Attikk séu ekta þar sem þær gangast allar undir ítarlega skoðun hjá sérfræðingum.
Geggjaðir Princetown Loafer leðurskór frá Gucci með klassíska Horsebit málminu að framanverðu. Skórnir skarta áberandi mjúku loði meðfram innri sólanum.
Glæsilegir High top Gucci strigaskór í bæði bláum og ljósum lit.
Æðislegir Runway Drocade hælaskór frá Gucci í suede efni með fallegu mynstri og silfur sylgju að framan.
Espadrillur frá Gucci með þykkum botni, gylltu leðri og skreyttir stórri slaufu að framanverðu í Sylvie Web litunum.
Ótrúlega fallegir Aline hælar frá Gucci í svörtum lit með gylltri slaufu og web (rauð, blá og hvít) slaufu. Upprunalegur kassi fylgir með.
Geggjaðir og eftirsóttir Rhyton leður strigaskór frá Gucci í ivory lit. Skórnir eru með þykkan botn og er "vintage" Gucci lógó á hliðunum, sem er innblásið frá árinu 1980. Upprunalegur kassi og rykpokar fylgja með.
Ótrúlega fallegir hælaskór frá Gucci í glæsilegum grænum lit með fylltum botn og ''GG'' mynstrinu að framan. Með skónum fylgir upprunalegur kassi og rykpoki.
Gucci beige og bláir GG supreme canvas low top strigaskór. Aftan á hælum er grænn litur sem skartar GG lógó í gylltum lit. Þykkir hvítir sólar með engraved GUCCI merkinu aftan á skónum. Með skónum fylgja 2 rykpokar og ónotaðar auka reimar.
Sætir sandalar frá Gucci í fallegum ljós bleikum lit með perlu ''GG'' mynstri á hliðunum.