Stærsta úrval landsins af vottuðum Louis Vuitton vörum. Attikk fær til sín í sölu mikið að Louis Vuitton vörum í hverri viku. Þetta franska tískuhús var stofnað árið 1854 af Louis Vuitton og er mjög vinsælt meðal Íslendinga. Þó nokkuð er af eftirlíkingum af Louis Vuitton í umferð hérna heima og því mikilvægt að kaupa eingöngu vottaðar vörur þegar það er keypt notað.
Fallegur og hentugur Ellipse bakpoki frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvas með ljós brúnu leðri og gylltum málm. Eitt rennt rúmgott aðalhólf erá töskunni, þar ofan í er eitt auka hólf. Hægt er að lengja og stytta leðurböndin. Framleidd árið 1999.
Lítil og hentug Ipanema taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene mynstrinu. Eitt rennt aðalhólf og eitt auka hólf að framan. Framleidd árið 2003 og fylgir stillanleg ól með.
Glæsileg og sjúklega hentug Bloomsbury hliðartaska frá Louis Vuitton. Taskan er í Damier Ebene mynstrinu með gylltum málm og rauðu innvolsi. Eitt rennt aðalhólf með þrem auka hólfum, tvö opin í innvolsi en eitt opið að framan sem læsist með smellu. Framleidd árið 2012.
Glæsilega, eftirsótta Neverfull taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene mynstrinu og gylltum málm. Eitt rúmgott aðalhólf er á töskunni sem lokast með krækju, þar ofan í er eitt auka rennt hólf. Hægt er að snúa töskunni við og nota hana öfuga, sem er sjúklega kúl! Taskan er enn til sölu á Louis Vuitton vefsíðunni og kostar hún þar £1,430.00 sem er ca. 233,321 isk.
Falleg og hentug Pallas hliðartaska frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvas með svörtu leðri og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt opið að framan og eitt opið innan. Tvær fjarlægjanlegar ólar fylgja með, ein styttri keðjuól og ein leðuról. Taskan var framleidd árið 2016.
Glæsileg taska frá Louis Vuitton í Damier Geant Citadin gerðinni. Leður áherslur í í dökkbrúnum lit og málmar silfurlitaðir. Bæði að framan og aftan á töskunni stendur "Louis Vuitton Paris". Taskan er svört á litinn og hefur 1 rennt aðalhólf og tvö auka opin hólf að innan. Rennt hólf framan á töskunni og opið hólf aftan á. Taskan er frá árinu 2006. Stillanleg ól.
Gullfalleg Alma taska frá Louis Vuitton í stæðinni BB. Taskan er í fallegu appelsínugulu epi leðri en epi leðrið er kúaleður sem gerir töskuna mjög endingargóða. Taskan opnast með tvöföldum rennilás að ofan, inn í töskunni er eitt rúmgott hólf ásamt auka flötum vasa. Tvö handfönd eru á töskunni ásamt fjarlægjanlegri leðuról svo hægt væri að bera töskunni á öxl eða á ská yfir líkamann (e. crossbody). Málmarnir á töskunni eru silfurlitaðir. Með töskunni fylgir lás, í upprunalegum rykpoka og einn lykill, upprunalegur rykpoki fyrir töskuna og upprunalegur kassi. Taskan var framleidd í 15. viku ársins 2013 í Frakklandi.
Ótrúlega stílhrein og hentug OnTheGo PM taska. Hönnunin er innblásin af hinni sígildu Sac Plat frá Louis Vuitton sem var í framleiðslu 1968. Taskan er gerð úr Monogram Empreinte leðri, með áprentuðu tvílitu, svörtu og beige, Monogram mynstri. Stærðin hentar fullkomlega fyrir allar þínar nauðsynjar út í daginn. Stillanleg og fjarlægjanleg axlaról, sem gerir þér kleift að bera hana á ýmsa vegu – í hendi, á öxl eða yfir líkamann (e. crossbody). Innvols er í dökkum rauðum lit með einum renndum vasa og tveimur flötum opnum vösum. Innan í töskunni eru tveir gulltóna málm hringir til að krækja ólina ásamt öðrum gulltóna málm hring og krók til að loka töskunni. Plastið er ennþá á rennilásnum af rennda vasanum. Upprunalegur kassi, rykpoki og Louis Vuitton búðarpoki fylgir með. Taskan er enn í sölu hjá Louis Vuitton og kostar ný um 308.000 kr.
Svört Jeune Fille taska frá Louis Vuitton úr svörtu Epi leðri. Taskan opnast að ofan með gylltum rennilás. Eitt aðalhólf með einn flatan vasa sem lokast með rennilás. Framan á töskunni er flatur vasi sem lokast með flipa og læsist með ól og sylgju. Aftan á er opinn flatur vasi. Á töskunni er áföst stillanleg crossbody ól. Taskan er frá árinu 2009. Athugið ástand eins og alltaf!
Töff Montaigne taska frá Louis Vuitton í stærð GM. Taskan er í hvítu Epi leðri með silfur málm, eitt rennt aðalhólf er á henni sem opnast með smellu og eru þrjú auka hólf, tvö í innvolsi og eitt að aftan. Með töskunni fylgja lyklar og lás.
Glæsileg Vavin taska í stærð PM frá Louis Vuitton. Taskan er í brúna monogram canvasinum með gylltum málm og ljósu vachetta leðri. Eitt opið aðalhólf með nokkrum auka hólfum ofan í, eitt rennt, eitt smellt og þrjú opin.
Æðisleg bucket taska í stærð GM frá Louis Vuitton. Taskan er í brúna monogram canvasinum með gylltum málm. Eitt stórt, opið aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt og eitt opið. Með töskunni fylgir veski sem hægt er að krækja í innvolsið. Framleidd árið 2001.
Skemmtileg Alma Horizontal taska frá Louis Vuitton í bleiku Mini Lin mynstrinu með gylltum málm. Taskan opnast með rennilás og er eitt lang aðalhólf á henni með einu auka renndu hólfi. Framleidd árið 2001.
Louis Vuitton tölvu/skjala hulstur. Þunn og stílhreint hulstur sem lokast með rennilás og hentar fullkomlega fyrir skjöl, spjaldtölvur eða fartölvu. Hulstrið er framleitt árið 1994.
Louis Vuitton taska úr klassísku Monogram Canvas með dökkbrúnum áherslun og gylltum málmum. Taskan lokast með rennilás. Að innan er eitt rúmgott aðalhólf ásamt litlum flötum vasa fyrir smáhluti. Á bakhlið er opinn flatur vasi fyrir skjöl eða annað sem þarf að hafa aðgengilegt. Taskan er frá árinu 1999. Praktísk, endingargóð og klassísk hönnun frá Louis Vuitton sem hentar fyrir daglega notkun eða á ferðinni.
Sígild Louis Vuitton Alma MM taska úr brúnu monogram leðri og gylltum málm. Stórt aðalhólf sem opnast að ofan með litlu hólfi innan í. Með töskunni fylgir lás og par af lyklum. Framleidd árið 2004. Nýjar eru að kosta 1800,00 € hjá Louis Vuitton sem er 258.000 isk í núverandi gengi.
Þessi klassíska, flotta og sívinsæla Neverfull taskan frá Louis Vuitton í glæsilegu rauðu Epi leðri með silfur málm. Taskan er í stærð MM og hefur eitt stórt aðalhólf sem lokast með krók. Þar ofan í er ein auka Pochette taska sem fylgir með. Framleidd árið 2013.
Fallegt veski frá Louis Vuitton í eftirsótta svarta Vernis leðrinu með silfur málm. Tvö opin hólf, átta hólf fyrir kortin og eitt rennt.
Nett Speedy vintage taska frá Louis Vuitton með gylltum málmi. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf og einn flatan vasa innan í. Með töskunni fylgir 1 lás og 1 lykill. Taskan er frá árinu 1987.
Skemmtileg vintage Epi Soufflot taska frá Louis Vuitton í Orange Mandarin lit með gylltum málmi. Taskan opnast að ofan með rennilás og inniheldur lítinn flata vasa. Í töskunni er hanki sem hægt er að krækja í hluti. Með töskunni fylgi lítil pouch í sama lit. Báðar töskurnar eru frá árinu 2003. Virkilega skemmtilegt sett frá Louis Vuitton, með töskunni fylgir rykpoki.
Rivoli top handle taska í brúna Ebene Damier lit með gylltum áherslum. Með töskunni fylgir fjarlægjanleg ól. Taskan hefur eitt aðalhólf sem hefur að geyma tvenna flata vasa, annar opinn en hinn er með rennilás. Taskan er fóðruð að innan með rauðu velvet efni. Framan á töskunni er vasi með lás sem læsir vasanum. Á hliðunum eru smellur til að þrengja töskuna sem gefur töskunni chic útlit. Rykpoki fylgir töskunni. Taskan er framleidd árið 2014.
Rúmgóð Naviglio Messenger hliðartaska frá Louis Vuitton í Damier Ebene Canvas með gylltum málmi. Taskan hefur eitt rúmgott hólf sem opnast að ofan með rennilás. Að innan er einn flatur vasi. Fyrir ofan rennilásinn er tveir flipar sem lokast á móti hvor öðrum með smellum, inn af flipunum eru tveir vasar. Með töskunni er breið ól (sem nær utan um töskuna) sem á stendur Louis Vuitton. Rykpoki fylgir töskunni. Taskan er frá árinu 2001. Fín taska út í daginn sem rúmar það helsta og meira til.
Houston axlartaska frá Louis Vuitton í gulum Vernis leðri með gylltum málmi. Taskan opnast að ofan og lokast með rennilási. Að innan eru tveir flatir vasar, annar opinn og hinn með rennilás. Einnig er lítill hanki sem hægt er að krækja í t.d. lykla. Taskan er framleitt árið 2000 og er því algjör vintage moli.
Hin sívinsæla og klassíska Vintage Keepall Bandouliere 55 taska án ólar frá Louis Vuitton. Taskan er í klassíska brúna Monogram canvasnum með gylltum málmi. Á hliðunum er hankar fyrir ól en eins og áður er nefnt er engin ól sem fylgir með. Taskan passar í farangurshólf flugvéla og smellpassar í skottið fyrir ferðalögin. Upprunalegt leðurnafnspjald fylgir ásamt belti til þess að festa haldföngin saman. Eitt rennt stórt aðalhólf. Taskan er framleidd árið 1984.