Ótrúlega veglegur 14k gullhúðaður blýpenni/skrúfblýantur frá must de Cartier. Trinity skraut á efsta hluta pennans, en Trinity er heitið yfir hönnun Cartier þar sem tveir eða fleiri hringir fléttast saman. Cartier er þekkt fyrir vandaða og þykka gullhúðun sem tryggir að hann eldist vel eins og þessi gersemi augljóslega gerir. Penninn er rifflaður sem tryggir gott grip. Efsti hluti pennans snýst í hálf hring til að ýta blýinu niður/upp. Kemur í upprunalegum og vönduðum kassa sem tryggir að penninn geymist vel. Það er smá far eftir blýið í kassanum á einum stað. Framleiddur á árunum 1975-1985 í París, Frakklandi.
Vertu viss um að hafa kynnt þér ástand vörunnar hér fyrir neðan áður en þú kaupir.
Áætlaður afhendingartími: 1-2 virkir dagar (Innanlands), 5-10 working days (International).
Þessi vara hefur verið vottuð sem ekta Cartier vara .
Öruggt
Kaupaferli