Chanel Long Quilted veski

All Around Zip Caviar Quilt Wallet
ástandseinkunn

SKU: 72033622
Svart lambaleðurveski frá Chanel með ísaumuðu demantsmynstri (e. quilted) og gylltu málmlógó að framanverðu og gylltum rennilási. Innvols er vínrautt með átta eiginlegum kortahólfum, renndum vasa undir lausamuni, tveimur opnum hólfum undir seðla og tveimur breiðari vösum. Veskið er úr Caviar línunni er því líklegt til þess að hækki enn fremur í virði með aldrinum.
Veskið er framleitt í kringum 2016-2017

Vertu viss um að hafa kynnt þér ástand vörunnar hér fyrir neðan áður en þú kaupir.
Long
51.000 kr

Vakta vöru
Það eru 10 með þessa vöru í körfu.

Vottað með Entrupy

Sanngildisvottuð
Þessi vara hefur verið vottuð sem ekta Chanel vara með tækni frá Entrupy.

Ástandslýsing

Veskið er í sæmilegu notuðu ástandi. Það eru ummerki aðallega á leðrinu bæði að aftan og framan, rispur, skrámur og nudd. Einnig eru ummerki á leðurköntunum meðfram veskinu, rispur og það er farið að missa svarta litinn sinn. Að auki eru rispur á málminum og gyllti liturinn farinn að afmáðst af. Að innan eru ummerki um notkun, veskið er nokkuð hreint en það sést aðallega á leðrinu að innan. Einnig eru leður flipar fyrir rennilása ekki upprunalegir, það hefur verið settir nýtt leður á báða rennilásana. Heilt yfir sæmilegt til gott notað ástand.

Lýsing

Svart lambaleðurveski frá Chanel með ísaumuðu demantsmynstri (e. quilted) og gylltu málmlógó að framanverðu og gylltum rennilási. Innvols er vínrautt með átta eiginlegum kortahólfum, renndum vasa undir lausamuni, tveimur opnum hólfum undir seðla og tveimur breiðari vösum. Veskið er úr Caviar línunni er því líklegt til þess að hækki enn fremur í virði með aldrinum.
Veskið er framleitt í kringum 2016-2017

Mælingar

19x10 cm

Verðsaga

Þú þarft að vera í Merkjavörusení áskrift til að fá aðgang að verðsögu vörunnar.