Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!
Falleg og hentug tote taska frá Fendi í klassíska og eftirsótta Zucca monogram mynstrinu. Með dökkbrúnum leðurhöldum og einum renndum vasa í innvolsi.
Falleg hliðartaska frá Prada í ljósgráum lit með gylltum málm. Taskan opnast með segli og hefur eitt aðalhólf með auka renndu hólfi. Fjarlægjanleg ól fylgir með og upprunalegur rykpoki.
Skemmtileg Chain It PM taska frá Louis Vuitton bæði í svörtu kálfa leðri og brúnu monogram canvas. Taskan opnast með smellu og er þar eitt aðalhólf, í innvolsi eru tveir vasar, einn renndur og einn opinn. Hægt er að nota töskuna á þrenna vegur. Sem axlartösku, hliðartösku eða bara notað haldfangið. Taskan er hönnuð árið 2017 en er hætt í sölu.
Vinsæl og klassísk messenger taska frá Gucci í endutekna ''GG'' mynstrinu með web (rauð og græn) línunni. Eitt rennt aðalhólf með einu auka renndu hólfi í innvolsi og tveimur opnum. Stillanleg ól.
Æðisleg hversdags taska frá Chloé í Linen canvas, brúnu kálfaleðri og polyester. Bæði hægt að halda á henni og nota hana sem hliðartösku (e. crossbody bag) þar sem löng brún ól fylgir með. Eitt rúmgott aðalhólf og einn flatur vasi að innan. Kostar um 152.000kr skv. núverandi kortagengi. Upprunalegur rykpoki, verslunarpoki og upprunakort fylgir með.
Sígild Alma PM taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Að innanverði er eitt stórt aðalhólf með einum smærri vasa og gamaldags vasa undir gemsa. Málmur er gylltur. Kostar ný 1820 evrur. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Stór Chelsea Tote taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Harður botn og rennt aðalhólf. innvols er rautt og hefur að geyma einn minni renndan vasa. Smellur á hliðunum þar sem er hægt að losa rennilásinn frá hliðunum og gera töskuna aðeins ferkanntaðari í laginu. Höldur stillanlegar í lengd. Upprunalegur lás og lykill fylgir ásamt rykpoka.
Klassíska Keepall 45 taskan í monogram útgáfu. Með töskunni fylgir lás og tveir lyklar ásamt upprunalegum rykpoka. Taskan er vel með farin og er framleidd árið 2015. Leðurnafnspjaldið fylgir með en hefur verið merkt með upphafsstöfunum LAN.
Sæt, lítil bucket taska frá Gucci í klassíska endurtekna ''GG'' mynstrinu með web (rauð og græn) línunni að neðan. Eitt aðalhólf sem lokast með togbandi og stillanleg axlaról. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með.
Glæsileg Favorite hliðartaska frá Louis Vuitton í stærðinni MM í monogram canvas. Tvær fjarlægjanlegar ólar, önnur úr Vachetta leðri og hin er keðja. Taskan opnast með segli að framanverðu og hefur að geyma eitt rúmgott aðalhólf ásamt flötum minni vasa þar fyrir innan. Taskan var framleidd í júlí 2013.
Glæsileg Cabas Piano tote taska frá Louis Vuitton með Damier Ebene canvas. Gulltóna málmar á töskunni og brúnt leður á slit flötum. Eitt rennt, rúmgott, aðalhólf með einum renndum vasa þar fyrir innan. Gemsa hólf af gömlu stærðinni sem gæti í dag frekar geymt penna eða varalit. Einnig er í innvolsi málm hringur til að krækja t.d. lyklum í. Innvols töskunnar er rautt. Framleidd í Frakklandi í Desember 2002. Það er búið að merkja á annað handfangið "M.S", það er þó ekki mjög áberandi við notkun.
Æðisleg vintage hliðartaska frá Chanel í svörtu lambaleðri með svörtu ''CC'' lógó að framan. Taskan opnast með flipa og hefur eitt gott aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt í innvolsi og eitt opið að aftan. Authenticity kort fylgir með og var taskan framleidd í kringum 1991 - 1994.
Single Flap hliðartaska frá Chanel í svörtu lambaleðri með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf með einu auka renndu hólfi
Klikkað sæt mini Tote taska frá Prada í metallic lit. Þrjú aðalhólf eru á töskunni, tvö opin og eitt rennt. Með töskunni fylgir stillanleg ól, lyklar og bæði upprunalegur kassi og rykpoki.
Gæðaleg Medium Voyou axlartaska úr ljósgráu kálfaleðri frá Givenchy. Taskan blandar gylltum og silfruðum málmi með skemmtilegri útfærslu. Upprunalegur rykpoki fylgir. Einn renndur vasi í stóru opnu innvolsi.
Glæsileg Soho Tote taska frá Gucci í hvítum lit með gylltum málm og áhangandi kögri að framan. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með þremur auka hólfum, tveimur opnum og einu renndu, upprunalegur rykpoki fylgir með. Fullkomin hversdagstaska!
Skemmtileg top handle taska frá Gucci í svörtu leðri með rauðum köntum og gylltum málm. Eitt aðalhólf sem opnast með smellu, þar ofan í er eitt auka opið hólf í innvolsi. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki og fjarlægjanleg ól.
Falleg vintage tote taska frá Chanel í svörtu lambaleðri með ''CC'' lógó að framan og keðjuól. Taskan opnast með smellu og hefur eitt gott aðalhólf með tveimur auka hólfum ofan í. Taskan var framleidd í kringum 1997 - 1999 og fylgir upprunalegur rykpoki með.
Burberry taska í klassíska Haymarket Check mynstrinu með dökkbrúnu leðri. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum í innvolsi.
Skemmtileg vintage Marjorie GM taska frá Louis Vuitton í Mini Lin útgáfu í litnum Cerise/Cherry. Aðalhólf er lokað með beltasylgju en í innvolsi er einn minni opinn vasi og gamaldags gemsavasi. Að framanverðu er annar opinn vasi. Hægt er að stilla lengd ólarinnar lítillega og þrengja lokunina að framan. Upprunalegur rykpoki fylgir með töskunni.
Ótrúlega falleg og hentug City Keepall taska frá Louis Vuitton í Eclipse monogram canvas með silfur málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka hólfi í innvolsi. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki, kassi og stillanleg ól. Taskan er enn til sölu hjá Louis Vuitton og kostar 2000€ eða 290.000 isk á núverandi gengi.
Ótrúlega sæt hliðartaska frá Gucci í endurtekna ''GG'' mynstrinu með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum í innvolsi. Ath ástand.
Gullfalleg, trending Chloé Paddington taska í metallic lit með silfur málm. Nokkur hólf eru á töskunni, eitt rennt aðalhólf með einu renndu hólfi og einu opnu í innvolsi, tvö auka opin og þrjú sem læsast með beltisskrauti.
Hentug og klassísk snyrtitaska frá Louis Vuitton í Monogram canvas. Eitt rúmgott og rennt hólf með ísaumaðri teygju sem er þrískipt til að halda snyrtivörum uppréttum ásamt opnum rúmum vasa. Ath ástand vel.