Verslaðu merkjavöru á afslætti Versla Núna

Frí sending í póstbox innan Íslands

Allar vörur eru vottaðar Ekta af sérfræðingum

Töskur

Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!

Louis Vuitton Spontini taska Louis Vuitton Spontini taska
Louis Vuitton Spontini taska 148.000 kr

Æðisleg Sportini taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með vachetta áherslum og gulltónuðum málmum. Taskan er hætt í framleiðslu! Þessar töskur voru framleiddar fyrir 2002 útgáfuna hjá Louis Vuitton. Eitt rúmgott og rennt aðalhólf, þar fyrir innan eru auka vasar og teygjur í innvolsi til að halda góðu skipulagi. Taskan fór nýverið erlendis í viðgerð til að skipta út lúnu Vachetta leðrinu fyrir nýju, ásamt nýrri ól skipt út fyrir gömlu, sem gefur töskunni glæsilegan nútíma ljóma þrátt fyrir að vera framleidd 2001.

Burberry mittistaska Burberry mittistaska
Burberry mittistaska 60.000 kr

Lítil og hentug mittistaska frá Burberry í svörtum lit með hvítu lógó. Eitt rennt aðalhólf og eitt auka hólf að framan, upprunalegur rykpoki fylgir.

Burberry Henley taska Burberry Henley taska
Burberry Henley taska 72.000 kr

Æðisleg Henley taska frá Burberry í svörtu leðri. Taskan opnast með smellu og hefur þar fjögur opin hólf, eitt rennt og tíu kortahólf. Upprunalegur rykpoki fylgir með.

Gucci Ophidia Small hliðartaska Gucci Ophidia Small hliðartaska
Gucci Ophidia Small hliðartaska 150.000 kr

Geggjuð Ophidia taska frá Gucci í GG Supreme mynstri með klassísku web litunum niður miðjuna. Innvols er úr bláu satín efni. Taskan kostar $1850 ný, sem er ca 232.397isk á núverandi gengi.

Gucci Bamboo bakpoki Gucci Bamboo bakpoki
Gucci Bamboo bakpoki 52.000 kr

Glæsileg, sjaldgæf Gucci Bamboo taska í dökkbláu/svörtu patent leðri. Ein hliðaról er á töskunni, sem er hægt að krækja öðru hvoru megin að neðan á bakhlið töskunnar. Bamboo skraut á rennilásum að utan en gylltur að innan. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með einu auka hólfi að innan og einu stóru að utan.

Fendi FF Charm Tote taska Fendi FF Charm Tote taska
Fendi FF Charm Tote taska 44.000 kr

Glæsileg Tote taska frá Fendi í FF Charm útgáfunni sem er einkennandi fyrir hangandi FF málm skrautið að framanverðri töskunni. Taskan er í ljósu FF monogram canvas með ólífu-grænum leður áherslum og höldum. Málmar eru gulltónaðir og höldur stillanlegar. Eitt rennt aðalhólf og tveir nettir opnir vasar í innvolsi. Ath ástand.

Fendi Zucca Boston axlartaska Fendi Zucca Boston axlartaska
Fendi Zucca Boston axlartaska 45.000 kr

Æðisleg Boston axlartaska frá Fendi í tóbaksbrúna FF Zucca canvasnum með svörtum leður áherslum og silfurtónuðum málmum. Á einum enda töskunnar er stórt og glæsilegt hringlótt Fendi logo hangandi. Eitt rennt aðalhólf ásamt einum auka renndum vasa í innvolsi.

Gucci GG Supreme XL mittistaska Gucci GG Supreme XL mittistaska
Gucci GG Supreme XL mittistaska 80.000 kr

Stór og vegleg mittistaska frá Gucci í GG Supreme canvas efninu. Ólin er stillanleg og er eitt rennt aðalhólf með litlu opnu hólfi. Upprunalegur rykpoki fylgir með.

Jacquemus Le Chiquito taska Jacquemus Le Chiquito taska
Jacquemus Le Chiquito taska 45.000 kr

Glæsileg Jacquemus taska í grænu suede efni með gylltum málm. Eitt rúmgott aðalhólf með einu auka hólfi.

Chanel Cambon Tote taska Chanel Cambon Tote taska
Chanel Cambon Tote taska 100.000 kr

Cambon Tote taska frá Chanel í brúnu kálfaleðri með CC lógó í patent leðri. Eitt rennt aðalhólf í glæsilegum appelsínugulum lit með einu auka renndu hólfi og tveimur pennahólfum. Upprunalegur rykpoki með.

Louis Vuitton Alma PM taska Louis Vuitton Alma PM taska
Louis Vuitton Alma PM taska 50.000 kr

Louis Vuitton Alma taska í monogram canvas með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka opnu hólfi. Með töskunni fylgir lás en enginn lykill.

Burberry Boston taska Burberry Boston taska
Burberry Boston taska 35.000 kr

Æðisleg Boston taska frá Burberry með klassíska Nova Check mynstrinu, brúnum leður áherslum og gull tónuðum málmum. Svart leður innvols og svört plast plata í botni töskunnar til að styða við form töskunnar og verja botninn. Einnig eru plast tappar undir töskunni. Eitt rennt aðalhólf ásamt litlum renndum vasa á utanverðri hlið töskunnar. ATH ástand.

Gucci Dionysus mini hliðartaska Gucci Dionysus mini hliðartaska
Gucci Dionysus mini hliðartaska 160.000 kr

Ótrúlega sæt Dionysus mini hliðartaska frá Gucci í GG Supreme mynstrinu, með svörtu rúskinni í innvolsi. Klassísk, silfruð málmskeifa að framanverðu og gróf keðja í sama lit sem hægt er að hafa cross-body eða tvöfalda.

Gucci Marmont Small hliðartaska Gucci Marmont Small hliðartaska
Gucci Marmont Small hliðartaska 175.000 kr

Eftirsótt og falleg Gucci Marmont hliðartaska í stærðinni Small. Taskan opnast með læsingu að framan, eitt aðahólf og eitt opið lítið hólf. Taskan er úr svörtu leðri og með gull tónuðum málmum. Keðjuól með leðri að hluta til að tryggja þægindi. Upprunalegur kassi, rykpoki, bæklingur og leðurbót fylgir með. Kostar ný $2600 sem samsvarar um 327.000isk.

Gucci GG Supreme Messenger taska Gucci GG Supreme Messenger taska
Gucci GG Supreme Messenger taska 90.000 kr

Æðisleg svört GG Supreme Monogram Messenger taska frá Gucci. Taskan skartar frægu dökkbláu og rauðu Web línunum á ólinni, sem er stillanleg. Framan á er einn renndur vasi en í aðalhólfinu einn opinn vasi og tveir kortavasar. Upprunalegur rykpoki fylgir.

Prada Travel Chain taska Prada Travel Chain taska
Prada Travel Chain taska 120.990 kr

Glæsileg Travel Chain taska frá Prada í dökkbláu Nylon efni, með dökkbláum leður áherslum og gulltónuðum málmum. Eitt rúmgott og rennt aðalhólf með einum renndum vasa í innvolsi. Fléttaðar keðjuhöldur með leðri ásamt leðri fyrir miðju til að tryggja þægindi. Undir töskunni eru fimm málm tappar til að verja Nylon efnið. Með töskunni fylgir lyklaband og tveir lyklar en enginn lás.

Prada Nylon Tessuto Pochette taska Prada Nylon Tessuto Pochette taska
Prada Nylon Tessuto Pochette taska 65.990 kr

Pochette taska frá Prada í svörtu Nylon Tessuto efni með silfur tónuðum málmum og flotta þríhyrnda lógóinu að framan. Eitt rennt aðalhólf.

Gucci GG Supreme Messenger taska Gucci GG Supreme Messenger taska
Gucci GG Supreme Messenger taska 85.000 kr

Messenger taska frá Gucci í endingargóðu GG Supreme canvas með brúnum leður áherslum,gulltónuðum málmum og brúnni stillanlegri tau ól. Taskan opnast að framan með segul smellu undir flipanum, þar fyrir innan er eitt rúmgott aðalhólf og einn opinn vasi í innvolsi.

Gucci GG Supreme Vintage Web Sherry Line taska Gucci GG Supreme Vintage Web Sherry Line taska
Gucci GG Supreme Vintage Web Sherry Line taska 88.000 kr

Æðisleg vintage GG Supreme Web Sherry Line crossboy taska frá Gucci. Taskan er úr glæsilega PVC GG Supreme efninu með brúnum leður áherslum og gulltónuðum málmum. Einnig er Web (græn og rauð) niður miðju töskunnar. Eitt rennt aðalhólf og áföst leður crossbody ól sem er aðeins stillanleg.

Prada Duffle taska Prada Duffle taska
Prada Duffle taska 75.000 kr

Æðisleg Duffle taska frá Prada úr Nylon efni og með leður áherslum. Eitt rúmgott og rennt aðalhólf ásamt auka renndum vasa í innvolsi. Með töskunni fylgir ómerktur lás og tveir lyklar á bandi ásamt upprunalegum rykpoka og leður nafnspjaldi.

Louis Vuitton Keepall Bandoulière 50 Louis Vuitton Keepall Bandoulière 50
Louis Vuitton Keepall Bandoulière 50 180.000 kr

Æðisleg og eftirsótt Keepall Bandoulière frá Louis Vuitton í stærðinni 50. Eitt rennt aðalhólf. Framleidd í Frakklandi, Janúar 1998. Upprunalegur rykpoki og Vachetta ól fylgir með.

Gucci Soho Tote taska Gucci Soho Tote taska
Gucci Soho Tote taska 80.000 kr

Hentug Gucci Soho Tote taska í svörtum lit með gylltum málm og áhangandi kögri að framan. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með þremur auka hólfum, eitt rennt og tvö opin.

Chanel Single Flap Jumbo vintage axlar/hliðartaska Chanel Single Flap Jumbo vintage axlar/hliðartaska
Chanel Single Flap Jumbo vintage axlar/hliðartaska 744.000 kr

Tímalaus og glæsileg Single Flap axlar/hliðartaska frá Chanel í gömlu Jumbo stærðinni. Taskan opnast með klassíska CC turn-lock læsingunni að framan, þar fyrir innan er eitt rúmgott aðalhólf, einn flatur opinn vasi og einn flatur renndur vasi. Einnig er opinn flatur vasi að aftan. Taskan er í svörtu lambaleðri og er allt innvols einnig svart. Allir málmar gullhúðaðir með 24K gulli. Upprunalegur rykpoki og uppruna kort fylgir með. Framleidd á bilinu 1994-1996.

Chanel Medium Classic Double Flap Chanel Medium Classic Double Flap
Chanel Medium Classic Double Flap 610.000 kr

Eftirsótt og sígild Classic Double Flap frá Chanel í stærðinni Medium. CC turn-lock læsing að framan í 24K gullhúðuðum málmi sem og aðrir málmar töskunnar. Taskan er gerð úr svörtu lambaleðri með ísaumuðu tíglamynstri (e. quilted). Keðjuól er þrædd með svörtu leðri. Innvols er vínrautt og svart. Undir ystri flipanum er einn flatur vasi og örmjór renndur vasi í flipanum sjálfum. Undir innri flipanum er rúmgott opið aðalhólf, tveir flatir vasar og annar rýmri flatur vasi framan við aðalhólfið. Framleidd í kring um 1996-1997.

Verslun
Leita
Aðgangur
0
Óskalisti
0
Karfa
Innskráning
Filter